Jamm. Þá verður maður ekki mikið lengur á RÚV. Eins og staðan er núna klára ég janúar og svo bara búið bless.
Það er ótrúlega furðulegt ástand á RÚV þessa dagana og ótrúlega sorglegt fyrir alla að horfa upp á vinnufélaga til margra ára hverfa á braut. Ég er líka ægilega sorgmædd yfir því að hætta eftir að hafa verið með annan fótinn í Efstaleitinu í 8 ár. Manni þykir auðvitað vænt um RÚV og það er skelfilegt að horfa upp á hvað verið er að eyðileggja stofnunina smám saman.
En þótt maður verði ekki formlegur RÚV-ari lengur, þá verður maður RÚV-ari í hjartanu alla tíð. Það er heldur ekkert sem segir að maður snúi ekki aftur þangað síðar, þegar tíðin verður betri. Það kemur bara í ljós. Maður ber bara höfuðið hátt og einbeitir sér að náminu þangað til.
Ég vona innilega að brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði skili einhverjum á öðrum miðlum starfinu þeirra tilbaka… Og að stjórnvöld átti sig og tryggi RÚV tekjur til að sinna lögbundnu hlutverki sínu..
RISAKNÚS til þín sætasti íþróttafréttamaður ever.. Þú kemur aftur á RUV one day.. alveg sjor á því!
Leitt að heyra að þú sért að hverfa af skjánum!! Vona að þú fáir eitthvað magnað jobb í staðinn!
That’s it, nú horfi ég ekki á íþróttafréttirnar meir! Þú mætir aftur sem anchorwoman, ég er viss um það eins og Arnbjörg.
einu sinni rúvari ávallt rúvari
“Velkomin” í hópinn, við erum í sömu stöðu, ég er líka bara með vinnu út janúar eins og staðan er í dag…ásamt öllu hinum samstarfsfólkinu mínu.
Við Hjalti eigum eftir að sakna þess að sjá þig ekki í íþróttafréttunum !