silfurdrengirnir

28 12 2008

Ég mæli eindregið með að fólk horfi á þáttinn okkar um Silfurdrengina á gamlársdag. Ég er búin að sjá glefsur og mér varð alveg hlýtt í hjartanu. Það er gaman að rifja upp þessa ósviknu hamingju og gleði og stemninguna sem var hérna heima á meðan strákarnir fóru á kostum í Peking. Ekkert krepputal, allt var í blússandi hamingju bara.

Ég á eftir að fella nokkur tár, ég verð alltaf svo mjúk yfir handboltalandsliðinu :)

RÚV, gamlársdagur kl. 13.20, þú og vasaklútur.





jólaSKEMMTUN

23 12 2008

Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa kannski tekið eftir, þá var þeirri höltu og þeirri blindu boðið að koma á jólahlaðborð Hilton hótel Nordica um liðna helgi. Í fyrstu hélt ég að boðið væri grín, en svo reyndist ekki vera :)

Það var sko mikið hlegið og mikið étið þetta kvöld. Amminamminamminamm maturinn þarna og sem fyrr höfðu forréttirnir vinninginn – sérstaklega danska lifrarkæfan! Reyndar síldin líka… Og graflaxinn.. og, og, og og…

Daddi Disco, í veislustjórahlutverkinu, lét nokkra brandara fjúka á kostnað okkar GurrPurr (grey Gurrý að vera skrifuð fyrir síðunni með mér, I had it coming en hún alveg blásaklaus heheheh), en það var bara gaman, snyrtilegt grín og við erum jú stórar stelpur :) Held reyndar að enginn í salnum hafi trúað sögunni um hvernig þetta kom til að okkur var boðið hehehhe… Svo vorum við auðvitað teknar upp í Singing Bee keppni kvöldsins – en þar gerði undirrituð sér lítið fyrir og VANN! Kampavínflaska á borðið í verðlaun, takk fyrir!! :)

Svo var bara skellt í dansiballsgírinn, Daddi þeytti skífum og við hristum skankana eins og líf okkar lægi við.

Það var svo sannarlega ekkert “riddsjard klædermann best of kristmass disknum á rípít” þetta kvöld, heldur mikið stuð.

Stök snilld bara – TAKK FYRIR OKKUR :)

En nú er ekki þar með sagt að ég mæli með að fólk fari að dissa jólahlaðborð bæjarins í þeirri von um að vera boðið líka – málið er jú ögn flóknara en það ;)





jólaglaðningur

19 12 2008

Ida getur nú verið alveg yndisleg. Voðalega góð.

Hún hefur haft ægilegar áhyggjur af mér í kreppunni á Íslandi. Spurt hvort hér væri til matur og svoleiðis. Hvort erlendar vörur væru ekki orðnar ógeðslega dýrar. Ég reyndi að róa hana og segja að nóg væri til af mat og svoleiðis, en hún vildi ENDILEGA senda mér eitthvað, svo ég leyfði henni á endanum að senda mér hárnæringu (ok, hljómar silly, en ég nota svona prófessjónal sjampó og hárnæringu sem er líklegast orðið vibba dýrt).

Pakkinn kom í vikunni. Við erum að tala um HUGE pakka og þungan. Mig grunaði nú strax að Ida hefði bætt einhverju í, þar sem henni fannst engan veginn nægjanlegt að senda “bara” hárnæringuna.

Í pakkanum var: Enskar karamellur, te, hárnæringin, body lotion og MAC augnskuggi!!!!! Alveg nýjasta línan sem er ekki komin til landsins ennþá!

Ég var alveg steinhissa. Þótt að body lotionið hafi alveg verið pínu fyndið þar sem þetta fæst út í næstu búð, þá er þetta samt alveg óendanlega sæt sending. Sérstaklega í ljósi þess hvernig Ida getur nú stundum verið. Hún er greinilega mjög góð við þá sem hún álítur vini sína.

Ég er búin að hringja í hana og þakka fyrir. Jólasveinninn minn hún Ida.





atvinnulaus

4 12 2008

Jamm. Þá verður maður ekki mikið lengur á RÚV. Eins og staðan er núna klára ég janúar og svo bara búið bless.

Það er ótrúlega furðulegt ástand á RÚV þessa dagana og ótrúlega sorglegt fyrir alla að horfa upp á vinnufélaga til margra ára hverfa á braut. Ég er líka ægilega sorgmædd yfir því að hætta eftir að hafa verið með annan fótinn í Efstaleitinu í 8 ár. Manni þykir auðvitað vænt um RÚV og það er skelfilegt að horfa upp á hvað verið er að eyðileggja stofnunina smám saman.

En þótt maður verði ekki formlegur RÚV-ari lengur, þá verður maður RÚV-ari í hjartanu alla tíð. Það er heldur ekkert sem segir að maður snúi ekki aftur þangað síðar, þegar tíðin verður betri. Það kemur bara í ljós. Maður ber bara höfuðið hátt og einbeitir sér að náminu þangað til.

Ég vona innilega að brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði skili einhverjum á öðrum miðlum starfinu þeirra tilbaka… Og að stjórnvöld átti sig og tryggi RÚV tekjur til að sinna lögbundnu hlutverki sínu..