skammdegi

24 11 2008

Ég er syfjuð allan daginn. Get bókstaflega varla haldið augunum opnum. Langar að leggjast fram á borðið hvar sem ég er stödd og taka smá blund.

Svona er þetta alltaf þegar myrkrið færist yfir. Líkaminn registrerar ekki að það sé kominn dagur, enda bendir umhverfið til annars þegar vekjaraklukkan glymur. Svo á maður að vera að lesa undir próf í svona ástandi! Úff.

Það er þó eitt gott við að vera að lesa undir próf. Það er enginn að tala um kreppuna á Þjóðarbókhlöðunni! Ónei. Þar er þögn. Kærkomin þögn.

Maður sleppur nefnilega hvergi við krepputalið. Sama hvert maður fer og hvar maður er staddur er fólk að segja hryllingssögur. Ég þurfti að sitja undir mjög svo “upplífgandi” sögu hjá leigubílstjóra nokkrum um daginn, um hvað reipi eru að seljast vel þessa dagana. Jolly. Þótt ég hafi nú ekki tekið hann alveg trúanlegan, þá er maður ekkert sá kátasti þegar maður stígur út úr bílnum. Hann var líka allur æstur. Hugsið ykkur, svo byrjar hann sama spjall við næsta farþega. Ég hugsa að ég myndi keyra út í búð eftir einu reipi í lok þannig vinnudags!!

Þannig að ég mæli eindregið með Þjóðarbókhlöðunni. Komið, fáið ykkur góða bók í hönd og njótið þagnarinnar. Ekki veitir af, nú þegar skammdegið bætist ofaná krepputalið.


Actions

Information

2 responses

24 11 2008
Inga Lilja

góð leið til að snúa á skammdegið er að fara í ræktina á morgnana og fara hress inn í daginn…. OG setja upp jólaseríur ekki seinna en núna and plenty of them !!! :-)

24 11 2008
lovísa

þetta er nákvæmlega planið hvern einasta morgun. Að drattast framúr og í ræktina. En syfjan kemur bara í veg fyrir þetta, þetta er fáránleg syfja og ég bara geeeet ekki vaknað.. þetta kemur allt saman :) ég venst smám saman myrkrinu hehehe

Skrá ummæli