Æi mér leiðist þessi herferð Skjás 1 um að RÚV eigi að fara af auglýsingamarkaði. Mér fyndist í lagi að tala um þetta á málefnalegri og almennri hátt, enda er nákvæmlega EKKERT samasemmerki milli þess að RÚV fari af markaðnum og að Skjár 1 spjari sig. Það er barasta ekkert víst að þeir sem auglýsa á RÚV vilji auglýsa á Skjá 1, markhóparnir eru engan veginn þeir sömu. Mörg fyrirtæki myndu frekar sleppa því að auglýsa en að missa algjörlega marks hjá aldurshópnum 12-49 ára.
Það er vissulega mikið til í því að ríkissjónvarp eigi ekki að sýna auglýsingar og allt í lagi að ræða það, en það er engin töfralausn í þessu tilviki.
ég er alveg sammála…þessi herferð fer alveg í taugarnar á mér…líka, ef RÚV fer af auglýsingamarkaði þá þurfa framlög til þess að aukast væntanlega, og ég ekki svo viss um að Skjár einn yrði sáttur við það. En ef það er málið að RÚv er að undirbjóða og eitthvað svoleiðis þá þarf nottla að skoða það….
Þar sem að það er drullað yfir mig í tveim megin þráðum á þessu bloggi gat ég ekki orða bundist. Var lengi að velta fyrir mér hvort að hægt væri að afgreiða þetta tvennt í einni færslu en ákvað að hafa þær tvær.
Sem betur fer ráðum við hvað fer í taugarnar á okkur. Vissulega er það skiljanlegt að einhverjir tilheyri þeim hópi sem annað hvort hefur ekki kynnt sér málið eða finnst eðlilega að málum staðið. Veit ekki hvorum þið tilheyrið.
Þegar lagt var af stað með herferðina var búið í 6 mánuði að óska eftir svörum um hvort takmarkanir um aðkomu RúV að auglýsingamarkaði og efniskaupamarkaði. Engin svör bárust.
Til að gera langa sögu stutta liggur nú fyrir ályktun Samkeppniseftirlitsins. Samkeppnishömlur stafa af stöðu og háttsemi Ríkisútvarpsins á markaði fyrir sölu auglýsinga í ljósvakamiðlum eins og þar stendur orðrétt. Álitið er hér: <a href=http://samkeppni.is/samkeppni/is/frettir/?cat_id=36905&ew_0_a_id=315423
Niðurstaðan í stuttu máli virðist vera að almannafé hafi verið notað til að undirbjóða samkeppnisaðila. Það er einfaldlega ekki réttlætanlegt. Það má gera því skóna að á meðan að árangurstengdir sölumenn fallbjóða auglýsingasekúndur í sjónvarpi með 80% afslætti slátrar það samkeppninni.
Það má eins benda á hvort ýmislegt í efniskaupum Rúv sem er á skjön við hlutverk þess auk þess að skekkja svo um munar samkeppnisstöðu.
Það reiknar enginn með að við hvarf Rúv af auglýsingamarkaði færist sjálfkrafa tekjur (700 milljónir á ársgrundvelli) yfir á aðrar stöðvar. Þetta mun dreifast víðar en auglýsendur munu klárlega ná til neytenda, jafnvel á hagkvæmari hátt. Það er rétt að hvergi er sama uppsafnað áhorf í öllum aldurshópum og á Rúv en til glöggvunar er hægt að benda á að 80% þjóðarinnar horfir á Skjá Einn þótt að yfirlýstur markhópur sé 12-49 ára.
Markaðsspekingar, sem ég er klárlega ekki, eru fyrstir til að benda á að það eru fleiri hlutir sem skipta máli. T.d skiptir litlu fyrir þann sem flytur inn dömubindi að auglýsa fyrir yngri en 12 ára eða eldir en 49 ára. Jafnframt eru fáir karlmenn 12-49 ára sem hafa not fyrir eða áhuga á slíkri vöru nema við sárafáar og afar óheppilegar aðstæður. Sem sagt markhópamiðaðar birtingar auglýsinga eru mikilvægar. þar nýtur Skjárinn okkar algjörrar sérstöðu.
55 þúsund manns (mun fleiri en hafa krafist þess að gengið verði til Alþingiskosninga) hafa lýst yfir stuðningi við kröfur Skjás Eins. Nú er bara að sjá hvort að ráðamenn hafa kjark til að taka einu réttu ákvörðunina.
Varðandi minnkandi tekjur Rúv má benda á að með 10% sparnaði í rekstri, aðhaldi í efnisinnkaupum, umfangsminni auglýsingadeild og minni risnu er auðvelt að vega upp á móti tekjunum sem tapast. Þetta er ekki annað Icesave atriði.
Nú er bara að vona að þessi halta geti í það minnsta lesið þetta fyrir þá blindu.
Góða skemmtun
Það er naumast hvað menn eru hörundssárir
get ekki séð að það sé verið að drulla yfir þig Daddi, finnst þetta nafn bara ekki hæfa hátíðlegu jólahlaðborði en það er auðvitað bara mín skoðun. Ég veit persónulega ekki hver þú ert eða hvers konar tónlist þú spilar svo það getur auðvitað verið rangt.
Hvað herferðina varðar, þá já virðist þetta höfða til margra. Enda margar undirskriftir komnar. Þetta var einfaldlega mín örstutta pæling, að það er ekkert beint samband á milli rúv á auglýsingamarkaði og afkomu skjás 1. BEINT samband. Ég segi hvergi að ég sé á móti því að rúv fari af auglýsingamarkaði…
óvell
hehhee
Ég er með þeirri höltu og þeirri blindu í þessu.