Það er greinilega einhver tíska í ár að vera með svona “jólaskemmtun” með jólahlaðborði. Á Broadway er til dæmis Madonnusýningin með Jóhönnu Guðrúnu í fararbroddi og Friðrik Ómar er á Grand með hljómsveit. Á Hilton Nordica er Sigga Beinteins veislustjóri ásamt Dadda Diskó.
Ok. First of all, DADDI DISKÓ???? Ég sé ekki beint fyrir mér hátíðlega kvöldstund þar sem einhver sem kallar sig Dadda Diskó kemur við sögu (með fullri virðingu fyrir viðkomandi). Ég skil svosum ekki hvað er verið að þvinga þessari skemmtun upp á mann. Hvað varð um að njóta matarins í ró og næði? Jafnvel að ná smá spjalli við þann sem maður fer með?
Er fólk að bóka sig grimmt á þetta? Ég bara spyr. Þetta er kannski ekki fyrir minn smekk, spurning með aðra.
Þeir staðir þar sem maður getur kyngt jólasteikinni í rólegheitum, án þess að mega eiga von á því að heyra This Is My Life gargað í eyrað á manni, eru að minnsta kosti vinsælir. Ég sá frétt á mbl.is um Turninn í Kópavogi, en þar er allt að fyllast. Mér finnst samt síðasta setningin í fréttinni svo fyndin:
„Þetta verður í svona útlenskum fíling fyrir okkur Íslendinga sem komumst ekki utan í verslunarferðirnar fyrir jólin.“
Æjæ. Aumingja þeir sem komast ekki í verslunarferð til útlanda um jólin útaf kreppunni. Æjæjæjæjæj.
Hahaha hló sko upphátt við að lesa þetta
-Daddi Diskó…!!
…sko aðal maðurinn til að hlusta á þegar maður treður í sig jólasteikinni :Þ
Afhverju ekki bara Pétur Pokus, svona fyrst við erum byrjuð á þessu á annað borð, eða Skara Skrípó ef út í það er farið…
Öfunda þig samt mikið af villibráðar-perlunni, var ekki æðiss?
oh jú það var ÆÐI.. geeeeðveikur matur, var með átsvita allt kvöldið heheheh
mmmm….ááááááátsviiiiitiiiii….
…Ég fór á Vox í fyrra, sem heitir nú Hilton Nordica. Þar var rosa góður maður, hrikalega hrokafullur og leiðinlegur þjónn en engin Sigga Beinteins! Ef ég mætti ráða myndi ég frekar vilja láta leiðinlega, hrokafulla þjóninn hrækja í matinn minn en þurfa að sitja undir unaðstónum frá Dadda Diskó og Siggu Beinteins…
Hahaha góð ég líka…!!
Ég hef undanfarin 4 ár farið í Perluna, sem er ÆÐI
-en mér finnst samt villibráðarhlaðborðið *betra* heldur en jóla, og það verður náttúrulega hætt þegar við Finnur hlunkumst loksins á klakann :/
Ovell, ég á svo sem góðar minningar um átsvita líka :Þ
Jæja,
Það er allur dagurinn sem fer í að leiðrétta rangfærslur á þessari bloggsíðu. Þætti gaman að vita hvaða óvinkonur mínar þetta eru. Líklega einhverjar sem tóku til sín það sem ég skrifaði í Orðlaus á sínum tíma um hvað það er sem ég þoli ekki við konur.
Strax er vert að leiðrétta eitt. Ég kalla mig Dadda Disco en er oft kallaður Daddi diskó. Það er hins vegar Bjarni Ólafur, rauð-þunnhærði gaurinn úr Vestmannaeyjum, kynnirinn á Þjóðhátíð.
Ég verð að viðurkenna að ég varð rosalega sár þegar að ég las þessa færslu. Sárari en yfir neikvæðri færslu varðandi herferðina okkar atvinnulausa fólksins á Skjánum. En þrátt fyrir að vera með tvö erlend lán hef ég breytt bak og þoli þetta alveg.
Það er vissulega rétt að Jóhanna Guðrún er ekki mjög trúverðug sem Madonna enda alltof stór í hlutverkið. Frú Cissione er ekki nema 152 cm á hæð og fer minnkandi eins og aðrar konur á sextugsaldri. Eins er ég sammála um að það orki tvímælis að fólk vilji gleðjast með manninum sem tapaði Júróvision fyrir okkar hönd. Hann er vonandi ekki með Ólaf F sem kynni. Það gleymdist alveg að minnast á jólahlaðborðið á Hótel Sögu með Erni Árna, Jónasi Þóri og honum þarna tenor úr Skagafirði.
En já fólk er að bóka grimmt á Hilton. Aðallega fólk sem hefur komið þarna ár eftir ár enda flestir sammála um að hvergi sé jafn mikið lagt upp úr glæsileika í vali og framsetningu rétta. Hilton er náttúrulega á allt öðrum plani með mjög metnaðarfullt faglært starfsfólk.
Varðandi skemmtun að þá er engu troðið upp á fólk. Dagskráin er mjög hátíðleg á meðan á borðhaldi stendur. Sigga tekur af sinni alkunnu snilld jólalög við undirleik Kjartans Valdimarssonar píanóleikara en svo verður slegið á létta strengi án þess þó að um stanslausa dagskrá sé að ræða.
Annars var strax upplegg með að gera svolítið grín að Siggu og sýna hana í svolítið öðru ljósi og það mun alveg takast. Ég er búinn að týna til fullt af ógeðslega fyndnum myndböndum með henni (kræst hárið og herðabúðarnir) og held að ég hafi dottið niður á nokkra sniðuga hluti sem fleiri en við Sigga getum hlegið af.
Auðvitað er hugmyndin að lyfta svolíitð upp stemmaranum en ekki drepa alla úr leiðindum með riddsjard klædermann best of kristmass disknum á rípít.
Þegar að hópurinn hefur gert hlaðborðinu skil er síðan púkagír í forrýminu þar sem fólk getur tjúttað ásamt þeim fjölmörgu sem ekki eru í stóra salnum heldur í a la carte á VoX auk þeirra sem í síauknum mæli nýta sér hótelbarinn á Hilton. Ég er sannfærður um að fólk mun upplifa þarna algjörlega júník stemningu og geri fastlega ráð fyrir því að þeir sem voru skikkaðir í klædermann special, kaldan kalkúna, staðið krembrúlleij og heitt ákavíti leggi leið sína úr miðbænum upp á Hilton og taki snúning með gamla.
Í von um þið drullið ekki svona mikið yfir mig á næsta ári langar mig að endingu að bjóða þeirri höltu og þeirri blindu ásamt mökum í jólahlaðborð jólahlaðborðana þann 20. des (eini dagurinn sem er laust). Engar áhyggjur það er fínt aðgengi fyrir fatlaða á Hilton.
Vinsamlegast staðfestið í 6910000.
Kv. Daddi Disco (með essi, céi og engri kommu á o-inu)
Sæll Daddi.
Mér þykir voða leiðinlegt ef þú hefur tekið þessu persónulega, því það var ekki ætlunin. Eins og þú sérð stendur þarna “með fullri virðingu fyrir viðkomandi” og það var alveg meint 100%. Þetta er almenn kaldhæðnislegur-húmors-færsla sem er vissulega ekki fyrir alla, almennar pælingar um hvað þetta virðist vera í tísku, sem mér finnst ekki spennandi. Og já, þetta jólahlaðborð á Sögu hefur farið framhjá mér og hefði sannarlega átt heima í þessari færslu.
Ég segi heldur aldrei að Jóhanna Guðrún sé ótrúverðug í hlutverki Madonnu. Það veit ég barasta ekkert um þar sem ég hef ekki séð sýninguna.
Ég held að þú sért að lesa aðeins of mikið á milli línanna í þessari færslu og láta ímyndunaraflið hlaupa með þig í gönur. Og þessi bloggsíða setur bara farm ákveðnar skoðanir, þetta eru engar fullyrðingar um að hér sé sannleikur á ferð og hver og einn verður bara að dæma fyrir sig. Fyrst þú tekur þessu svona nærri þér (og aftur, mér þykir það leitt, ég get engan veginn séð að ég sé að ráðast á þig persónulega, ég gæti það ekki einu sinin því ég veit ekki á hvern ég er að “ráðast”!) þá skaltu ekkert vera að pirra þig frekar á þessu og hætta lestri hið snarasta.
Ég óska ykkur til hamingju með að allt gengur svona vel á Nordica og það sé fullt út úr dyrum. Er þá ekki tilgangnum náð og allir sáttir? Ég bara spyr.
þar sem ég er líka skráð fyrir þessari síðu þá bara þakka ég fyrir mig daddi, tek daginn frá og hringi bráðlega og staðfesti komu mína og kallsins:)
hlakka til að sjá þig elskan!
ég hlakka til að koma
[...] glöggir lesendur síðunnar hafa kannski tekið eftir, þá var þeirri höltu og þeirri blindu boðið að koma á jólahlaðborð Hilton hótel Nordica um liðna helgi. Í fyrstu hélt ég að boðið væri [...]