EM

31 10 2008

JESS JESS JESS JESS!

Það var sko megastemmari á vellinum og fólk sem ekki mætti missti af miklu. Ég fór EIN á völlinn og dansaði og klappaði með bláókunnugu fólki og það var mjög gaman :)

Til hamingju Ísland! :)





Verðbréfadrengurinn

22 10 2008

Ég veit varla hvort ég á að hlæja eða gráta yfir þessu myndbandi.

Hér er Halldóra, 15 ára sigurvegari ljóðasamkeppni Borgarbókasafnsins, í febrúar á þessu ári. Ekki skrítið að þetta sé að ganga sem eldur í sinu um netheima þessa dagana..

Magnaður andskoti.





suður-ameríkusorg

9 10 2008

Jæja. Nú hefur kreppan náð í rassinn á manni.

Við Jóa erum hættar við Suður-Ameríkuferðina okkar :( :(:(

Við eigum ekki til orð eða tilfinningar til að lýsa því hvað við erum leiðar yfir þessu og það hafa sko alveg fallið nokkur tár. En þegar allt er á botninn hvolft er þetta það eina skynsamlega í stöðunni þegar óvissan er svona rosaleg.

Verst er að hafa ekki haft neinn tíma til að hugsa um þetta og leyfa þessu að “koma í ljós”. Við fengum ótrúlega lítinn tíma til að taka ákvörðun ef við vildum fá EITTHVAÐ endurgreitt. Og þá var ekkert annað í stöðunni.

Við erum alveg miður okkar og ekkert í miklu stuði að ræða hvað hinn og þessi hefði gert í okkar sporum. Ekki er hægt að líta til baka héðan af og velta sér uppúr því hvað hefði getað gerst o.s.frv.

En.. til að fara í Pollýönnuleikinn, fyrst gengið er svona svakalegt þá fáum við meira endurgreitt en annars. Og álfan fer svosum ekki neitt. Það er alltaf hægt að fara síðar. Þar að auki HATA ég panflautur! (ein farin að tína allt til…)

Og þvílíka lúxusvandamálið! “búúúhúúú ég kemst ekki til Perú, Argentínu og Brasilíu…” á meðan fólk er að missa húsin sín.

Það þýðir þó ekki að við megum ekki vera smá leiðar :(