Ég skil ekki alveg hvað er að gerast í þessum samningaviðræðum ljósmæðra og ríkisins. Mér finnast kröfur ljósmæðra í samningaviðræðum sáraeinfaldar og sanngjarnar. Það hljómar eins og 25% hækkun sé mikil, en þetta er villandi – þær hafa bara dregist það mikið afturúr að 25% hækkun þarf til að koma þeim á réttan stað miðað við menntun!
Mamma mín starfaði í mörg ár sem hjúkrunarfræðingur áður en hún ákvað að bæta við sig 2 árum í háskólanámi til að verða ljósmóðir. Þegar hún hóf svo störf sem ljósmóðir LÆKKAÐI HÚN Í LAUNUM frá því að hún var hjúkka!!! Þetta er bara algjör skandall.
Ljósmæður hafa ALVÖRU háskólamenntun. Námið tekur 6 ár! Það hlýtur að segja til um mikilvægi starfsins og hversu mikil fræði þetta eru. Þetta er ekki eitthvað sjálflært grínnám sem ekki ber að meta. Ég sé alveg á starfi móður minnar að þetta eru alvöru fræði og hún leggur sig alla fram við að vera með nýjasta nýtt á hreinu, enda er þróunin hröð.
Ljósmæður geta haft gríðarleg áhrif á heilsu mæðra og barna á meðgöngu, veita fræðslu og stuðning, til dæmis fyrir verðandi mæður sem vilja hætta að reykja. Svo auðvitað taka þær á móti börnunum og passa upp á lengi á eftir hvort barnið þroskist ekki eðlilega og svo framvegis.
Ég einfaldlega skil ekki hvert vandamálið er, mér finnst fullkomlega eðlilegt að ljósmæður fái laun í samræmi við sitt 6 ára nám. 25% hækkun: Þær biðja einfaldlega um að hækka til jafns við hjúkkur og svo verði þessi 2 auka námsár metin til viðbótar!! Hvað er ekki sjálfsagt við það???
Og svo alveg frábært múv hjá fjármálaráðherra að kæra ljósmæður svo. *klappklappklapp* Streitast bara á móti þessum sjálfsögðu kröfum. Hnuss.
Áfram ljósmæður, ekki gefast upp!
Nýleg ummæli