uppvask

30 08 2008

Djöfull er leiðinlegt að vaska upp eitthvað af eftirtöldu:

- hvítlaukspressur

- salatskálar

- stóra ostabakka sem passa ekki í vaskinn og maður sullar út um allt

- rauðvínsglös

 

Hvað finnst ykkur leiðinlegast að vaska upp?

 

Mig langar í uppþvottavél. Dæs.


Actions

Information

11 responses

30 08 2008
Hulda Proppé

Vá, hvítlaukspressan fær mitt atkvæði..og strax í öðru sæti er sigti. Þetta á ekki að mega…sem er einmitt ástæðan fyrir uppþvottavélinni, uppáhalds heimilisvininum :)

31 08 2008
Jóa

tek undir með ostabakkana og hækka um karöflur

1 09 2008
baun

pottar, pönnur og ofnskúffur.

og mig langar líka í uppþvottavél.

2 09 2008
Doddi

Rauðvínsglösin tróna klárlega á toppnum. Hvítlaukspressan fylgir fast á hæla vínglasa.

Raunar er bara leiðinlegt að vaska upp glös yfir höfuð. Maður fær vini í heimsókn og þeir taka ekkert tillit til þess að ég þarf sennilega að vaska upp glösin sem þeir segjast þurfa til að drekka einhverja drykki úr.

Ég leysi þetta með að eiga plastglös. Dreg bara fram glerglösin ef að einhverjir gesta eru kvenkyns, enda vill maður ekki vera þekktur sem einhver plastglasalúði hjá kvenþjóðinni.

2 09 2008
lovísa

Doddi, þegar ég kem til þín að drekka einvhern drykk úr glasi, þá skal ég svo sannarlega biðja um plastglas – við erum þjáningarsystkini

4 09 2008
Ívar

Ofnskúffur eru lang lang lang leiðinlegastar. Undantekningalaust fer allt á flot og maður verður allur rennandi blautur….
það er lúmskt gaman að vaska upp hvítlaukspressu.

5 09 2008
lovísa

lúmskt gaman???!!??? Ívar þú ert nú meiri uppvaskspervertinn hehhe en ok já ofnskúffur eiga klárlega heima á þessum lista – flokkast soldið með stóru ostabökkunum hehehe..

5 09 2008
Gurrý

ég er sammála huldu með sigtin! ekkert leiðinlegra en að reyna að skola sápu og skít af yfirborði sem heldur ekki vatni ti lað láta skola af sér. alveg vonlaust keis….

6 09 2008
Arnbjörg

Mitt atkvæði fer til hvítlaukspressu og sigtis. Ég læt kallinn sjá um ofnskúffur og potta.. klárlega!!! :) En ég á samt uppþvottavél.. það þýðir bara ekki að setja hvítlaukspressu í hana án þess að þvo hvítlaukinn fyrst úr.. óþolandi!

7 09 2008
Silja

úúúff að vaska upp er náttúrulega bara leiðinlegt, hvað sem það er ! Þannig að allt uppvask er leiðinlegt í mínum augum !!
Ein jákvæð…hehehe

8 09 2008
Jóhanna

hahaha plastglasalúði… hætti einmitt einu sinni með einum því hann lét mig alltaf borða allt af pappadisk… mér fannst ég bara ekki nógu metin

Skrá ummæli