Þá eru Ólympíuleikarnir árið 2008 búnir. Snörp vinnutörn og frábært að geta seinna sagst hafa verið á vaktinni þegar Ísland fékk silfurverðlaunin í handbolta!!
Maður er örþreyttur en ánægður.
Að venju finnst mér gaman að spá í hvar ég verð þegar næstu Ólympíuleikar verða haldnir.. eða í London árið 2012. Fjögur ár hljómar alltaf svo langur tími, en er það engan veginn. Flýgur hreinlega hjá. Ég bloggaði um þessar pælingar mínar fyrir fjórum árum. Hér er færslan. Ekki var ég beint sannspá, en það er líka bara allt í lagi. Þetta voru fjögur FRÁBÆR ár á milli Aþenu og Peking og ég myndi aldrei skipta þeim út fyrir eitthvað annað! Vonandi bara verða árin milli Peking og Lundúna jafn skemmtileg.
Ok, árið 2012 verð ég orðin 33 ára. Jæks!! Kannski með masterspróf og kannski með barn. Kannski á Íslandi og kannski mega rich bitch.
En alveg pottþétt reynslunni ríkari.
ef þú verður mega rich bitch þá býðuru mér til Nepal og kaupir handa mér belgískt súkkulaði þegar þú skreppur út að borða á einkaþotunni til Brussel. Ef þú verður húsmóðir með börn þá skal ég sjá um að lyfta þér upp eina helgi í mánuði
Eftir fjögur ár getur barnið mitt passað barnið þitt!
Ég spái því að þú verðir komin með 2 börn og gift sæta þínum.
úff á margt getur sko gerst á 4 árum, amk náði ég að troða inn kalli, 2 börnum, trúlofun og mega career change á þeim tíma…þannig að á þessum hraða verð ég líklegast komin með kall, viðhald, 4 börn, og farin í lögfræði þegar næstu ólympíuleikar verða…
ég held að ég verði bara eins
iss jóa mín, það er enginn alveg eins eftir 4 ár. þú verður reynslunni ríkari for sure, og hvur veit nema þú verðir eins og Gurrý, takir ofurhraðapakkann heheheh
hehehe neeee eibs mín, það þarf mikið til að þín spá rætist hahahahah