Jæja nú höfum við Jóa formlega gengið frá gististöðum í Buenos Aires og Rio de Janeiro jibbííííí.. aðeins á eftir áætlun samt, en við gerðum fjölmargar tilraunir til að ganga frá þessu fyrr og ekkert gekk – einhvern veginn enduðum við alltaf með fullt af fólki á djamminu eða eitthvað svoleiðis.. svo í dag var hist um miðjan dag og ekkert verið að spjalla neitt mikið um annað en ferðina!
En allavega.. check this out, við ætlum að gista á The Four B&B Hotel í Buenos Aires. Þetta tiltekna hótel varð fyrir valinu því það er ógó smart (amk á myndunum!) og það er staðsett í San Telmo hverfinu. Við vorum spenntar fyrir því, þar sem það á að vera eitthvað svona bóhem listamannahverfi með hellulögðum götum, ægilega litríkt með tangó dönsum á götunum og milongas (þar sem fólk kemur saman og dansar tangó, svona social dansar) og bestu svona alvöru steikarstöðum (þá erum við að tala um djúsí steik og rauðvín fyrir um það bil 800 ísk!!). Við vildum líka gista á almennilegum stað eftir 2 vikna drulluferð í Perú og Amazon frumskóginum
Það var eiginlega öllu flóknara að velja stað til að gista á í Ríó. Upphaflega ætluðum við að fara á eitthvað ódýrt hostel og vera með einhverjum öðrum ferðalöngum en svo í dag sveifluðumst við til og frá með það.. Hvorug okkar er nefnilega eitthvað óð í strönd, fínt að fara þangað í einn dag eða svo, en óþarfi að vera þar í 4 heila daga. Frekar að vera stutt frá mörgu öðru og finna hostel með sundlaug
Og svo hötum við túristapakkaða staði.. sem Copacabana og Ipanema svæðið er… Svo Rio Hostel varð fyrir valinu. Stutt í frábært næturlíf og Jesústyttuna og Sykurfjallið (heitir það það á íslensku??), en líka í meira svona lókal hverfi með sjarmerandi götum og veitingastöðum. Og auðvitað alveg annað ungt fólk á svæðinu, nóg af sætum gististöðum í sömu götu og allt. Ekki skemmir fyrir að þetta hostel var Lonely Planet’s Choice 2005 og 2006.
Ég er ógó sátt við þetta allt saman, gott að vera búin að ganga frá þessu og þurfa bara að mæta á svæðið
íííííík hvað ég hlakka til!!!!
Hefur einhver lesandi síðunnar komið til þessara borga? og getur jafnvel sagt okkur hvort þessi hverfi séu ekki góðir kostir?
Nýleg ummæli