Strandblak kvenna er ein vinsælasta íþróttagreinin á Ólympíuleikunum. Að minnsta kosti í áhorfi talið. Þetta vissu menn hér á sportinu fyrir 4 árum síðan, þegar þeir sýndu greinina í öllum “götum” í dagskránni. Bara tilbúið klippt til sýningar! (Mér skilst þó að þetta verði ekki gert á eins markvissan hátt í ár. Sorry boys.)
En nú er ég aldeilis hlessa.
Ég var nefnilega að frétta að það eru strangar reglur um keppnisbúning liðanna. Sko, í kvennaflokki, ekki karlaflokki.
Bikinibuxurnar sem konurnar klæðast mega ekki vera breiðari yfir mjöðm en sem nemur 6 cm.
“Nújá”, gætu sum ykkar hugsað, “ég vissi ekki að þetta hefði svona mikil áhrif á getu þeirra til að spila íþróttina!” En nei. Þetta hefur ekkert með getu að gera. Heldur hefur þetta bein áhrif á áhorfið! Ekki grín.
Því minni buxur, því meira áhorf.
Karlmenn eru í hólkvíðum buxum sem ná nánast niður á hné.
Ósanngjarnt, anyone? Asnalegt, anyone? Móðgandi, anyone?
Eða kannski bara gott og gilt? Þeim er nær að velja sér strandblak sem íþróttagrein? Þær vita út í hvað þær eru að fara?






Nýleg ummæli