afmælisbarn

13 04 2008

Í gær átti Ívar litli bróðir afmæli.

Ég veit svosum ekki hvort það er við hæfi að kalla hann litlabróður, þar sem maðurinn er tæpir tveir metrar á hæð og varð 26 ára í gær. Samt kannski lítill í anda, þar sem hann fékk að ráða matseðlinum hjá mömmu&pabba í gær og bað um skúffuköku í eftirrétt. Sat svo hæstánægður (ásamt öðrum bræðrum) með kökuna sína og mjólkurglasið. Alveg eins og fimm ára.

Hvað getur maður sagt? Boys will be boys :)

Til hamingju brósi :)

Og bara af því að við erum svo sæt – hér er mynd af okkur á góðri stundu :)





róum okkur alveg

3 04 2008

Anda inn – anda út…

Ég tek klárlega svona lýsingu einn góðan veðurdag.. Og dey úr of háum blóðþrýstingi..





berar að ofan

1 04 2008

hahhahaha… skellti upp úr við þetta augljósa aprílgabb – je right að ég hlaupi til og skelli mér berbrjósta í sund til að mótmæla hlutvervingu kvenna 1.apríl ! Karlmenn, ekki hlaupa til og bruna í Vesturbæjarlaugina og vonast til að sjá brjóst í stórum stíl, þar sem ég stórefast um að nokkur kona falli fyrir þessu!

Að minnsta kosti er þetta heimskulegasta tímasetning sem um getur á svona mótmælum ef þetta er ekki aprílgabb híhíhí..

Verð þó að segja að Elko veitir Femínistafélaginu harða samkeppni í fyndnasta aprílgabbinu í ár. Allir að drífa sig í Elkó í dag og versla þessa stórkostlegu megrunarvél á spottprís, aðeins 899.995!! HAHAHHAAH..

Alltaf gaman að skoða aprílgöbbin.. Svo er spurning hvernig þetta dreifist, ég er þegar búin að sjá að minnsta kosti tvær fréttir á mbl.is sem eru aprílgöbb – má vera alveg endalaust? Kemur hver deild með aprílgabb? Eða hvað? Eru allar fréttir dagsins kannski bara uppspuni? Matvælaverðið hækkaði örugglega ekkert og lán heimilana hafa ekki hækkað úr öllu valdi..

Og hamingjuóskir til Bjarka hennar Gurrýjar sem á afmæli í dag – hann vildi örugglega óska þess að sú staðreynd að hann er kominn á fertugsaldur væri aprílgabb.