allir vegir liggja til leeds

31 03 2008

university-of-leeds.jpg

heheh..

Ég var að kaupa mér bók á netinu.. þurfti hana fyrir ritgerðina mína.. keypti hana semsagt notaða (ódýrari), fyrrverandi bókasafnsbók. Var að fá hana í hendurnar.. og viti menn.. bókin er úr bókasafni University of Leeds :) Af öllum bókasöfnum í Englandi og af öllum sem panta notaðar bækur þá rataði þessi tiltekna bók í mínar hendur! En gaman! :) (Skólinn er jú á myndinni hér að ofan.. ekki ljótur skóli)..

Um daginn hitti ég líka gamlan vinnufélaga úti í búð. Við ræddum sniðugt mastersnám, sem ekki er kennt hér á landi.. og vinnufélaginn sagði “Ég veit að þetta er kennt við háskólann í Leeds”!! og ég bara “já einmitt!!!! var að skoða það um daginn!!”

Á árshátíðinni á laugardag hitti ég vinnufélaga Gústa, en hann var frá litlum bæ rétt fyrir utan Leeds, Whitby. Semsagt, frá Yorkshire. Talaði með almennilegum Yorkshire hreim og ég fékk bara algjört flassbakk. Hann virtist nú greina smá Yorkshire keim af mínum hreim því hann sagði að honum liði eins og hann væri kominn heim.

It’s a sign!

Eða hvað? :) Er ég bara komin með Englandsfiðringinn sem gerir reglulega vart við sig? Eða alvarlega farin að hugsa hvort ég taki mastersnám heima eða úti (og þá kemur Norður-England sterkt inn)… Æi ætli maður verði ekki bara að fara að drulla sér í heimsókn up north, hef ekki komið síðan um jólin 2006, ekki nógu gott!

Gústi vill fara til Nýja-Sjálands… Það er jú ögn lengra í burtu..





önnur útlendingaheimsókn!

29 03 2008

tanyalovisa.jpg

Jibbííí var að fá ógó góðar fréttir!! Enn einn útlendingurinn kemur að heimsækja mig til Íslands – að þessu sinni ætlar Tanya hin kanadíska að mæta á Klakann :) :) Ég kynntist Tönyu á skrifstofunni fyrir erlenda stúdenta í skólanum í Leeds, við lentum óvart saman í hóp þar sem eitthvað ægilegt skráningarferli var útskýrt fyrir okkur heheheh.. svo bara skiptumst við á númerum og ég bauð henni svo í partý. Í partýinu ákváðum við svo að fara saman til Amsterdam og fórum í vikunni á eftir og bókuðum ferð :) Magnað, að hitta einhvern eiginlega einu sinni og fara saman í helgarferð!! Frekar sjeikí! En þetta gekk vonum framar og ferðin var frábær!! Hægt er að lesa um ferðina hér og hér og myndir eru hér.

Hún verður hér fyrstu helgina í september og ég er strax farin að hlakka til ! jibbíííí!





vorið nálgast..

29 03 2008

…eins og óð fluga. Eða ég vona það að minnsta kosti! Því valkvíðasjúklingurinn ég keypti sér hjól á dögunum!!!! Það var ekki auðvelt ónei. En þetta hafðist og ég er ógó ánægð og hlakka geðveikt til að vera aðalpæjan í bænum, að skottast um á sæta hjólinu mínu með blóm þrædd í körfuna :) alveg búin að fara í hjólatúra þótt það vanti herslumun upp á vorið, og þetta lofar svo sannarlega góðu.

 Svo var ég að fatta að það eru um 3 vikur eftir af skólanum! Þrjár vikur eftir af grunnháskólanáminu! Ja hérna. Fékk B.A.-uppkastið mitt tilbaka í gær með kommentum og nú verður bara allt sett í gang aftur og klárað í hvelli! Leiðbeinandinn tók sérstaklega fram að hann hrósi bara í lokin og ég ætti ekki að panikka yfir kommentunum heheheh.. hjúkk ;) Fínt að hann sé bara harður svo maður læri þetta almennilega og það skilar sér vonandi í betri ritgerð og hærri einkunn!!

 Ársó í kvöld. Hjá kæró. Hann hætti reyndar á vinnustaðnum í gær en þá bara er stefnt á að go out with style – við verðum bara fulla parið að gera skandala heheheh.. En hamingjuóskir til hans, hann er núna sjálfstætt starfandi á eigin teiknistofu!! Atta boy!





Svona eiga páskar að vera…

26 03 2008

páskarnir eru búnir að vera gersamlega fullkomnir! Þeir reyndar hófust ekkert í of mikilli gleði þar sem að lokasýning á La Traviata var á miðvikudeginum fyrir Skírdag og þar var veeeeel tekið á því. Einhvernvegin hvarflaði það ekki að mér það kvöld að það væri ekki sniðugt að blanda saman russian cocain skotum, ópal skotum, freyðivíni, rauðvíni og bjór á frekar tóman maga…verandi ekki búin að detta í það nema einu sinni síðasta árið. Nei, mér fannst þetta alveg upplagt. Reyndar skemmti ég mér mjög vel þangað til ég vaknaði daginn eftir, því þá fékk ég í fyrsta skipti að upplifa almennilega þynku….eitthvað sem að ég veit að gleður marga að heyra, marga sem fannst ekki sniðugt hér í den að vera eitur hress a leiðinni út að skokka morguninn eftir massa djamm. Svo til að gera þynkuna ennþá ánægjulegri þá var ég ekki búin að gefa síðan snemma kvöldið áður. Áái!! dolly parton hvað!!?

En ég lifði þessa fyrstu þynku af…með naumindum, og hafði það líka af að mæta í skírn hjá henni Ragnheiði Helgu Víkingsdóttur og syngja meira að segja! huh, geri aðrir betur! Ég efast hinsvegar stórlega um að ég hafi verið ómissandi hlekkur í sópraninum þennan daginn. En ég mætti og það er aðalmálið!

Núna erum við familían hinsvegar komin í bústað á flúðum og ætlum að liggja í leti hér í viku! Ógessla næs!! sérstaklega þar sem að bústaðurinn er töluvert stærri en íbúðin okkar, er með uppþvottavél, heitan pott og bjór í ískápnum! Það var líka súkkulaði hér en eg er búin að éta það allt. Svo verður reyndar allt vitlaust á föstudaginn þegar stórfamilían mömmu megin kemur og fyllir þennan og næstu 2 bústaði. Þá verður sko etið drukkið og spilað. En akkúra núna er sjaldgæf stund, ég er EIN að dóla mér! allir eru sofandi og ég veit varla hvað ég á að gera….nei, lýg því, nýt þessa út í ystu og er að byrja á bók nr.2.

Lengi lifi páskarnir!





yndispáskar

24 03 2008

Ahhh hvað maður er búinn að hafa það gott. Frábær blanda af kúri og djammi, vinum og fjölskyldu. Og ekki búin að opna skólabók sko!

Innilegar hamingjuóskir til litlu Ragnheiðar Helgu Víkingsdóttur, sem fékk þetta fallega nafn á skírdag. Og audda til foreldranna :)

Myndir segja jú meira en þúsund orð. Sem betur fer. Enginn myndi nenna að lesa þessa færslu ef hún væri þúsund orð.





B.A. páskafrí..

19 03 2008

Ahhhh. Var að skila inn fyrsta uppkasti að B.A.- ritgerðinni minni. Það verður ágætt að taka nokkurra daga hlé á pælingunum því ég er orðin gjörsamlega heilaþvegin og er að missa mig í þessu :)
Það hefur kannski komið mest á óvart, hvað mér finnst þetta alveg brjálæðislega skemmtilegt. Ég var svo búin að ákveða að ritgerðarskrifin væru kvöl og pína! Það sýnir kannski hvað ég hef mikinn áhuga á viðfangsefninu… og leiðbeinandinn hjálpar líka svo til með því að vera áhugasamur og veita mikinn innblástur. Hann lagði áherslu á að ég myndi skrifa skemmtilega fræðigrein, svo það er nákvæmlega það sem ég er að gera. Að skrifa grein sem ÉG myndi lesa og hafa gaman að!
Núna skyndilega er ég í fyrsta sinn farin að sjá mastersnám í hillingum, því þar er maður í svona verkefnum á fullu. Ég er alveg að finna mig í þessu! :) Jibbí!! Mastersritgerðin sjálf hafði hingað til eiginlega fælt mig frá og ég gat ekki hugsað mér að fara strax í námið að minnsta kosti. Núna er þetta að breytast! Hmmm… þarf að skoða þetta vel..
Nú er bara að vona að ég fái ekki uppkastið í hausinn með kommentunum: “Oj. Ömurlegt. Byrjaðu upp á nýtt!”…. jæks….
Best að fara að gera smá páskatiltekt. Hér er allt í rúst, bækur út um ALLT..

P.S. Ógó stolt af Viktori brósa og hljómsveitinni Hjaltalín, sem fékk tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum í gær !





fyrir fólk sem hatar börnin sín

17 03 2008

Hér eru nafnahugmyndir!! Þarna er hægt að kjósa um versta nafnið. Mér finnst Ima Whore vera góður kandídat í sigurvegara. Á svona stundum er gott að hugsa til þess að mannanafnanefnd vakir yfir okkur og verndar börnin fyrir sækó foreldrum. Þó eru mörg íslensk nöfn og samsetningar frekar klígjuleg og maður hefur heyrt alveg ótrúleg dæmi. En það jafnast ekkert á við þetta.





af lélegri þjónustu og vinnusiðferði..

17 03 2008

Fann þessa stórskemmtilegu færslu um lélega þjónustu fyrir einskæra tilviljun. Hana skrifar Óli Björn Kárason, en hann þekki ég akkúrat ekki neitt. Ég verð bara að segja að þetta um pokana er svoooo rétt hehehehe..

Æh langaði bara að deila þessu með  ykkur :) hér er færslan 

(vek sérstakl athygli á því að forstjóri Iceland Express biðst afsökunar í kommentakerfinu og Óli Björn bloggar svo sér færslu um það, bravó til þeirra að taka þetta til sín)

Búðir hér ÞURFA ekki á því að halda að viðskiptavinurinn haldi tryggt við þær. Við komumst einfaldlega ekkert í burt til að versla annars staðar. Og þegar samráðsmálið stóð sem hæst – það  er ekki eins og maður hafi getað sniðgengið þær búðir. Þá bara getur maður ekkert keypt mat! Ömurleg staða alveg.

Svo hef ég nefnilega oft leitt hugann að þessu með ungt fólk í vinnu. Amma þreytist ekki á að tala um hvað ungt fólk í dag veitir lélega þjónustu, og mér finnst þetta hálfleiðinlegt. En ég held að krakkar í dag séu svo óendanlega dekraðir að vinnusiðferðið er ekkert. Krakkarnir hafa ekki alist upp við að ef þú ræður þig til vinnu, þá berðu ákveðnar skyldur og þú klárir það sem þú skuldbindur þig til að gera. Það er víst farið að færast í aukana að unglingar hætti bara skyndilega að mæta án þess að láta vita, og svo ef þau eru innt eftir skýringum, þá séu þær einfaldlega “æh ég nennti ekki að mæta” eða “æh, ég er hættur” eða eitthvað svoleiðis. Enda fá þau svo bara vasapening hjá foreldrunum upp í hendurnar.

Ég rakst líka á mjög skemmtilegan pistil í Fréttablaðinu fyrir ekki svo löngu síðan. Man ekki eftir hvern pistillinn var, en höfundur sagði að börn hefðu enga tilfinningu lengur fyrir því að það þyrfti að vinna fyrir hlutum. Þau fengju alltaf alla hluti upp í hendurnar án þess að biðja nokkurn tíma um þá. Ég held að það sé mikið til í þessu. Ég man eftir að hafa langað og langað og langað í hitt og þetta, en fékk ekki strax. Gleðin yfir hlutnum var því ósvikin og mikil þegar ég loksins fékk hann. Í dag er barninu bara gefið hjól og leikjatölva án þess að því detti sjálft í hug að biðja um það. Þetta getur ekki verið hollt. Mér fannst þetta allavega alveg stórskemmtilegur pistill og fékk mann til að hugsa um hvernig maður vill að börnin sín vaxi úr grasi. Lífið er ekki þannig að maður fái allt sem maður vill upp í hendurnar og til hvers að ljúga því að börnunum með því að vinna og vinna og vinna til að geta keypt handa þeim fínt dót. Löngu búið að sanna hvort sem er að börnin vilja í raun bara að foreldrarnir gefi sér tíma í samveru.





vorið er skammt undan..

14 03 2008

vúhú! Eftir að hafa verið í joggaranum alla vikuna með með hálsbólgu og kvef og drukkið te í lítravís, þá bara hljóp ægilegt vor í mig í dag. Setti á mig maskara og allt!! Ekki einu sinni viðbjóðslega hryllingsmyndin með hrottalegu nauðgunarsenunum sem ég horfði á í skólanum í morgun kom í veg fyrir góða skapið!! Ætli það hafi ekki verið helst þetta ægifagra veður sem “voraði” mig svona upp? Skellti mér með Kristínu í labbitúr og kaffisopa. Yndislegt. Hef ekki séð hana lengi. Svona fara B.A. ritgerðarskrifin með mann.

Svo keypti ég mér svo vor-legan disk um daginn. Ég er kolfallin fyrir Duffy. Lagið Mercy, sem situr núna á toppi breska smáskífulistans, sönglar í höfðinu á mér allan liðlangan daginn. Þvílíkt stuðlag og þvílík gleði. Langar að syngja í hárbursta þegar ég heyri það. Oh, ætla að skella því á fóninn og setja í botn. Því það er jú svo mikið vor :)

Skelli inn myndbandinu til gamans. Þetta er hún Duffy. Amy Winehouse meets Lulu. Hækkið í botn.

Mæli líka með tveimur öðrum lögum á þessum lista :) Þau í danska stuðbandinu Alphabeat eru þarna með übervorlegt lag, Fascination. Það er svo hresst, að Jóa orðaði það þannig að ef þau væru hressari myndu þau kúka sápukúlum. Naglinn á höfuðið. Hrikalega skemmtilegt lag!! Og óþolandi danski hreimurinn ekki áberandi í þessu lagi, amk ekki miðað við önnur lög hljómsveitarinnar!! hehe.. Svo er skemmtilegt lagið með honum Taio Cruz, Come On Girl. Bara svona píkupopp :) (getur svosum verið að þetta sé löngu komið í spilun hér heima, þar sem þetta er jú ógó amerískt lag, en ég veit lítið um það þar sem ég hlusta aldrei á útvarp hér heima og fylgist bara með tónlistarsölu í UK heheh.. svo ef ég er ógó eftirá, þá bara so be it heheh) Getið smellt á linkana til að hlusta! Duffy sú eina sem fær vídjó á síðuna þar sem hún er í miklu uppáhaldi þessa dagana!

Gleðilegan föstudag!





Ívar Goodyear

13 03 2008

fyrir rúmum 25 árum var lítill strákur í laugarásnum sem vildi bara ganga í gúmmískóm ( hence ívar goodyear) og var atvinnu stríðari með einn kúnna, litlu systur. Núna er hann virðulegur pedagók sem er búinn að vera að kenna dönskum vandræðagemsum að haga sér! Sjáið flottasta stóra bróður minn hér!