Eftir að hafa heyrt nýju útgáfuna af Fullkomið líf með Friðriki Ómari og Regínu, er ég mun sannfærðari um þeirra möguleika að leggja Mercedes Club að velli á laugardaginn. Þvílík breyting!!! Nú hefur þetta færst úr 1997 búningi í alvöru 2008 Europopp dauðans
sem er bara gott mál. Nýja útgáfan er á myspace síðu Friðriks Ómars, ætti að opnast sjálfkrafa, annars heitir það This Is My Life. Því má svo einnig hala niður FRÍTT á heimasíðu lagahöfundarins. Vonandi verða svo fjólubláu náttfötin hans Friðriks Ómars víðs fjarri á laugardaginn, og þá held ég að þetta verði lagið sem á mestu möguleikana á að komast upp úr forkeppninni í Serbíu.
Þetta stendur og fellur með flutningi á laugardag. Ég held að slæmur lifandi flutningur bitni á Mercedes Club, auk þess sem fólk hlær ekki að sama brandaranum í þriðja sinn. Þau hefðu rústað þessu hefði keppnisfyrirkomulag verið með “venjulegum hætti”, ég er sannfærð um það, en þessi langlokuteygjulopaaðferð er ekki þeim í hag. Friðrik Ómar og Regína eru reynsluboltar sem hjálpar þeim, en sviðsframkoman verður gríðarlega mikilvæg og vonandi skila þau flottu atriði.
Ég er nefnilega farin að sakna alvöru Eurovision partýja sárlega – þegar Ísland er með í alvöru keppninni! Hitt er bara ekki eins skemmtilegt, langt í frá! Vil núna fá íslenska lagið inn í aðalkeppnina, prófa að senda ekki bara eitthvað djók í þetta sinn!
(tel Eika eiginlega ekki með þar sem lagið var djók, það var svo lélegt heheh)
Og herregud, ég er með uppsafnaðan Júróskammt, þar sem ég missti eiginlega af keppninni í fyrra því ég var að vinna í kosningasjónvarpinu!!
Að mínu mati verður topp 3 eftirfarandi:
Eurobandið – This is my life
Mercedes Club – Ho ho ho we say hey hey hey
Ragnheiður Gröndal – Don’t wake me up
Önnur lög eru flestöll pínlega vond. En það er bara mín skoðun
Nýleg ummæli