Mér finnst þessi umræða um að “vertar megi leyfa reykingar” algjörlega fáránleg. Vertarnir eru semsagt núna að hvetja fólk til að láta á þetta reyna og kveikja sér í sígarettu, þar sem ábyrgðin er gestanna en ekki eigenda barsins. Taka bara sénsinn á að “ramba ekki akkúrat á fulltrúa heilbrigðisyfirvalda sem kemur kannski einu sinni á ári á staðinn”, eins og segir orðrétt í viðtali við Baldvin Samúelsson, eiganda Barsins, í Fréttablaðinu í dag.
Mér hefur fundist ríkja almenn sátt um reykingabannið og ekki hef ég tekið eftir neinni fólksfækkun á Ölstofunni vegna þess. Þeir sem þurfa fara bara út án nokkurra vandræða og allir eru sáttir. Ég hef svona almennt heyrt fólk tala um hversu jákvæð breyting þetta hefur verið, bara allt annað að koma heim án þess að anga af ógeði. Gildir þá einu hvort um reykingafólk er að ræða eður ei. Reykingafólkið er vant því að fara hvort sem er út að reykja í vinnunni og svo framvegis. Og þeir sem eru fúlir yfir þessu, bara í guðanna bænum hættið þessum divu-stælum og takið bara almennt tillit til annarra. Reykingabannið er bara fullkomlega eðlileg þróun, enda er þetta bévítans eitur, sem á ekki að troða upp á okkur hin.
Þannig að mér finnst bara glatað að einhverjir fúlir bareigendur séu að hvetja fólk til að hunsa bannið. Ég meina, hvernig væri að prófa aðrar aðferðir??? Lækkiði bara verðið á bjórnum ef þið viljið meiri aðsókn!! Hafið eitthvað spennandi í boði fyrir fólk svo það ákveði að fara út úr húsi og gera eitthvað skemmtilegt!! Bjóðið upp á aðlaðandi umhverfi og hættið þessu bulli með að reykingar muni make or break hvort staðurinn komi út réttu megin við núllið. Og hafiði smá þolinmæði, það er ekki liðið ár frá því að bannið var sett á – látið nú hugann reika og finnið upp á nýjum aðferðum við að lokka fólk að en einhvern reykjarmökk, svo bara kemur þetta smám saman með tímanum!
Nett pirruð. Enda getur þetta lið alveg eins sagt: “Komiði. Fáið ykkur smók og eitrið fyrir sjálfum ykkur og öðrum svo við getum grætt meiri pening”.
Nýleg ummæli