snilldar vinnusaga..

22 06 2007

frekar fyndið atvik í vinnunni í dag.

ég var númer fjögur, sem þýðir að ég er svona “based” aftast í vélinni í upphafi og var eitthvað að stússast í dag.. og farþegar komu mjög skyndilega inn í vélina, ég og nr.tvö vorum alveg í hrókasamræðum og svo alltíeinu voru farþegarnir bara á leið inn svo ég flýtti mér inn í cabinu að hjálpa til.. og það sátu fullt af Japönum aftast. Þeir sváfu nú flestir alla leiðina. Þegar sigið var á seinnihluta ferðarinnar á leið út til Oslóar ætlaði ég að bæta á varaglossið og fattaði þá skyndilega að veskið mitt var horfið. Skildi ekkert í þessu. Leitaði upp í nokkrum hattrökkum og inní skápunum og ekki fannst veskið. Ég hugsaði þá með mér að það hlyti að lúra einhvers staðar á bakvið handfarangur einhvers farþegans.

Í lok flugsins þegar allir voru að fara út, rankaði einn Japaninn við sér aftast.. teygði úr sér og stóð upp.. og benti mér svo skyndilega á að koma til sín. Og benti þá í sætið sitt.

Þar var veskið mitt. Kramið. Dúddinn hafði SETIÐ Á ÞVÍ ALLA LEIÐINA TIL OSLÓAR!!! hahahhahahahahah.. kræst… Fór ekkert illa um hann??? var hann svona þreyttur???? hélt hann að þetta væri sérstök upphækkun í sætin fyrir lágvaxna Japana í boði Icelandair??? :)





iðjuleysi er rót alls ills

15 06 2007

Ég er búin að versla frá mér allt vit undanfarna tvo daga. Hef verið í fríi og þegar maður hefur ekkert að gera, þá dettur manni ekkert betra í hug en að fara í Smáralind eða Kringluna.. og það endar yfirleitt með ósköpum. Einhvern veginn tókst mér að bæta enn einu skóparinu í safnið í dag – en þeir eru ógissla flottir og akkúrat af þeirri gerð sem mig vantar! Í alvöru!! Ég er samt ekkert agaleg.. ég er bara alin upp í nægjusemi og þá fær maður sammara yfir svona hlutum.. :)

Jæja ætla bara að stinga höfðinu ofan í sandinn og ekkert skoða heimabankann :)

Ég get ekki beðið að fara að sjá Ísland – Serbía á þjóðhátíðardaginn. Jóa snillingur ætlar memm og við ætlum að gera allt vitlaust. Maður ætti kannski að grafa upp víkingahjálminn? Áfram Ísland!!





formlega orðin fluffa aftur..

10 06 2007

Fyrsta flug sumarsins var til Orlando. Mér leist nú ekki á blikuna, þar sem Orlandoferðin í fyrra var heldur betur skrautleg. Að þessu sinni gekk allt mun betur!! Kókið kláraðist ekki og þar af leiðiandi missti enginn farþegi stjórn á skapi sínu… ;)

Það var erfitt að vera grár og gugginn Íslendingur nýskriðinn undan vetri í mollunni í Flórída.. Ég bara átti erfitt með að þola rakann og finnast ég standa í hitablásara. Þann stutta spöl sem ég labbaði á milli verslunarmiðstövarinnar og Target var ég skíthrædd um að Godiva súkkulaðið sem ég keypti handa mömmu (ó ég er svo góð dóttir) myndi bráðna. Það komst þó heilt á húfi alla leið til Íslands.

Er með auma upphandleggi. Nokkuð bólgna líka. Skellti mér í bólusetningu við hinum og þessum kvillum og var sprautuð sundur og saman. Það bætist við auma hnéð og öxl, eftir að ég FLAUG á hausinn síðustu helgi á miðju Bankastræti.

Brúðkaupið í Englandi í haust hljómar alltaf betur og betur. Fékk ansi skemmtilegt símtal frá brúðhjónunum á föstudagskvöldið þar sem ég talaði við einhverjar vinkonur hennar og svo fékk ég tár í augun yfir því að vera beðin um að taka virkan þátt í athöfninni.. Kemur í ljós hvað það hinsvegar verður! Bara gaman að vera beðin, því það verða aðeins nánustu vinir sem taka þátt :) Awww. Hið óútskýranlega “special bond” á milli okkar Neil gerir enn vart við sig :)

Er að reyna að halda sólarhringnum mínum öfugum eftir Orlando flugið. Ég er nefnilega að fara í næturflug á mánudag og til hvers að rétta sólarhringinn við þegar maður þarf að snúa honum aftur við stuttu síðar? Sérstaklega þegar það er helgi og maður hefur afsökun fyrir að vaka fram á nætur!

Vá hvað þetta var leiðinleg færsla. Þetta blogg fer að verða alveg tilgangslaust :)





svo glöð í dag..

2 06 2007

..því að ég þarf ekki að setja fötin mín í hreinsun!!
..því að ég er ekki með nef og háls fullt af skít!!
..því að mér er ekki þungt fyrir brjósti!!
..því að hárið á mér lyktar bara just fine!!
..því að ég hafði rangt fyrir mér og fólk var ekki að svindla í gær!!
..því að mig sveið ekki í augun á Ölstofunni í gær!!
..því það var svo gaman að vera svona hissa á hvað þetta gekk vel!!

Til hamingju Ísland með reykingabannið!

Eina sem mögulega skyggði örlítið á alla þessa gleði var skrúðgangan sem ákvað að fara Sólvallagötuna fyrir hádegi í dag. Túbuleikarinn var nánast með hljóðfærið innum gluggann minn og upp í eyrað á mér. En þar sem ég er svo glöð í dag, þá var þetta eiginlega bara broslegt :)