Síðasti séns..

31 05 2007

Kaffihús, skemmtistaðir og aðrir samkomustaðir keppast um að auglýsa “síðasta reykkvöldið” í kvöld og það lítur út fyrir að það eigi að reykja í gríð og erg, bara af því að á morgun verður það bannað. Það er því nokkuð ljóst að ég held mig frá kaffihúsum í kvöld :)

Og það kaldhæðnislega er að 31.maí er reyklaus dagur.





29 05 2007

ahhh það var yndislegt að komast aðeins út úr bænum og tsjilla. Við Kristín og Guðrún skelltum okkur í sumarbústað í Húsafelli í nokkra daga og það var meiriháttar. Veðrið var kannski ekki til að hrópa húrra fyrir, enda kom haglél á klukkutíma fresti og jörð var hvít um tíma, ekki beint normalt svona í lok maí!! Svo voru þetta engar megrunarbúðir.. *ræsk*.. en það er seinni tíma vandamál.

Eða svona næstum því seinni tíma vandamál. Ég þorði semsagt loksins í gær að máta uniformið mitt. Maður fær alltaf það sama og árinu áður. Ég er nú sek um að hafa bætt aðeins á mig síðan síðasta sumar og sá fram á að komast alls ekkert í blessaðan búninginn. En hjúkk, sem betur fer komst ég vandræðalaust í herlegheitin, fylli ögn meira út í það en í fyrra, en það stendur þá bara til bóta ;) Fékk fyrstu skrána um helgina, var ógissla spennt að sjá hvert ég myndi fara í mánuðinum.. er nú ekkert í skýjunum yfir skránni, fékk frekar leiðinleg flug, en frílega séð er þetta góð skrá. Fékk þrjú helgarfrí. Sem er meiriháttar.

Síðan ég bloggaði síðast útskrifaðist Viktor bróðir á fiðlu. Hélt burtfarartónleika með pompi og pragt í Salnum í Kópavogi og ég bara stóð á öndinni.. ég bara vissi ekki að bróðir minn væri svona góður á fiðlu :) enda langt síðan ég hef heyrt hann spila svona “alvöru” dæmi. Veislan var líka skemmtileg, enda sækjast sér um líkir og vinir hans eru allir að deyja úr hæfileikum. Viktor og có tóku lagið sem þeir sungu í Söngkeppni framhaldsskólanna (hefði svoooo átt verðlaunasæti skilið) og svo spilaði hljómsveitin Hjaltalín rafmagnað inní stofu. Það er semsagt eitt af nokkrum böndum sem brósi er í. Stærsti magnari sem ég hef séð var dreginn yfir gólfið heima og inn í stofu og nokkur lög tekin. Ekki amalegt!

Sama dag varð örverpið í fjölskyldunni átján ára. Til hamingju Hörður minn :)

Gott djamm um hvítasunnuna. Síðasta reykingahelgi á Íslandi. (Vá hvað ég get ekki beðið!!!) Fólk á Ölstofunni virtist vera að nýta síðustu helgina og reykti enn meira en venjulega. Ég sat í risa mekki allan tímann. Kannski aþþí að ég sat rétt hjá glugga og vindáttinn feykti öllum reyk í áttina að mér. Ég vaknaði allavega með dúndrandi hausverk og ekki af því að ég hefði fengið mér of mikið neðan í því. 1.júní getur ekki komið soon enough! :)

Höskuldur gerði þau reginmistök að skora á mig í lúftgítarsóló á Ölstofunni. Mistökin fólust kannski ekki í áskorunninni per se, heldur í lagavalinu. Hann valdi Final Countdown, grunlaus um sérfræðikunnáttu mína í þessu sólói, eftir 4 ára einkaleyfi á það í öllum MR-partýjum. Hann tapaði, að sjálfsögðu.

Sumarið er komið – ég er búin að berjast við þrjá geitunga inní stofu hjá mér á tveimur dögum. Get helst ekki haft gluggann opinn. Urg. Í þessum töluðu orðum er einn fastur í glasi út í glugga. Ég er að íhuga hvort ég eigi að leyfa honum að kafna í glasinu eða henda honum út… múahahahhahahaa….





hasarinn búinn

13 05 2007

Þetta var nú meiri dagurinn í gær. Brjálað að gera. Mjög skemmtilegt. Efstaleitið iðaði af lífi allan daginn. Gaman að vinna í sjónvarpi á svona dögum. Kosningasjónvarpið gekk að óskum. Ég skreiddist upp í rúm klukkan tíu í morgun. Örþreytt en ánægð. Gaman að prófa sig í dálítið nýju hlutverki. Það verður svo gaman að sjá eftirmálana að kosningunum.

Hæstánægð með úrslit Eurovision. Austurblokkin bla bla bla.. “Austur-Evrópa” sendi bara miklu betri lög í heildina en “Vestur-Evrópa”. Sjokkerandi að Kýpur fór ekki áfram úr undanúrslitunum – en flest hin vesturevrópsku lögin voru ömurleg. Íslenska lagið er ekki gott – flutningurinn var hinsvegar stórfínn og hópurinn getur borið höfuðið hátt. Gerðu vont lag mun betra :) Ég giskaði á þrjú lönd rétt af fimm í efstu fimm sætunum. Serbíu, Tyrkland og Úkraínu. Fyrrnefndu lögin tvö voru uppáhaldslögin mín í keppninni. Var orðin sannfærð um að Úkraína myndi vinna, atriðið algjörlega brilliant og lagið vandist fáránlega vel og mig langar að hoppa um á dansgólfinu á áttunda glasi í hvert sinn sem ég heyri það hehehe… en ég er þó fegin að besta lagið vann að þessu sinni. Enginn sirkus og engar berar kellingar. Bara frábært lag og frábær flutningur. Sannar að gott lag getur unnið, sama frá hvaða landi það er.





kosningajúrófever

9 05 2007

Örfáir dagar í kosningar. Spennan magnast.

Óþolandi samt þessi örvænting sem hleypur í alla flokkana svona síðustu dagana. Öll moggablogg eru undirlögð af alls konar yfirlýsingum og ásökunum á andstæðingana með tölum og tilvitnunum í eitthvað sem fólk sagði sem enginn man eftir eða skilur yfirleitt. Dálítið svona orð gegn orði. Og hver einn og einasti framapotari og ungliði landsins vill leggja eitthvað til málanna. Í von um upphafningu innan flokksins. Pínlegt. Nettur aumingjahrollur.

Og hvernig er svo hægt að fá svona svakalega mismunandi niðurstöður um sömu mál??? Um hversu mörg prósent þetta eða hitt hefur hækkað, lækkað, minnkað eða aukist? Maður sannfærist ekkert um stærðfræðikunnáttu frambjóðenda, þeir fá allir svo mismunandi niðurstöður um hvað loforðin muni kosta og virðast ekki alveg kunna að plúsa og mínusa á réttum stöðum. Auðvitað fær fólk út þau svör sem hentar þeim best. Bara rétt eins og áhorfskannanir sjónvarpsstöðva. Maður ætti bara að reikna þetta út sjálfur og taka afstöðu. Það er bara vesen að nálgast allar tölur.

Svo þooooli ég ekki copy paste svör um hin og þessi mál. Til dæmis nááááákvæmlega sama svarið hjá xB um biðlista aldraðra og BUGL, svo ég nefni handahófskennt dæmi. Það er eiginlega bara fyndið. Það er auðvitað óþarfi að upphugsa ný svör þegar þau geta verið samnýtt. Vinsælasta copy paste svarið er “við finnum mikinn meðbyr í þjóðfélaginu…” blaaaaa. Alveg sama hvort fylgið mælist 50% eða 3%. Pirringur stjórnarandstöðu útí stjórnina. Frammíköll og skjálfti í rödd. Farið undan í flæmingi. Enginn vill viðurkenna að andstæðingurinn hafi unnið góð verk. Eða hafi góðar tillögur.

Maður hættir að hlusta á þetta lið og tekur ekki nokkurn mann trúanlegan. Stjórnmálamenn eru ekki mjög trúverðugir svona síðustu dagana. Pjúk!

Ég finn líka hvernig Eurovision angistin nær betri og betri tökum á mér. Löngu farin að sniglast inn á esctoday.com til að fylgjast með. Svo er mér að verða ljós sá möguleiki að ég geti ekkert horft á aðalkeppnina, vegna vinnu við kosningasjónvarpið. Sagan frá því í fyrra endurtekur sig. Þegar ég hélt að mér væri alveg sama, ég væri í landi sem væri sama um Eurovision og þar af leiðandi mér líka. Þar skjátlaðist mér. Tók leigubíl á síðustu stundu heim til að horfa. Mér er semsagt ekkert alveg sama. Ég held í vonina að ég geti horft með öðru auganu á laugardagskvöldið. Synd að missa af partýum! Æh, ekki mikið stemning svosum í vinahópnum – vill detta niður svona þegar börnin eru farin að dælast í heiminn :)

Margir sem geta unnið keppnina í ár! Mörg fyrirmyndar atriði. Sviðsframkoma ræður úrslitum. Pottþéttir áfram úr forkeppninni eru Hvíta-Rússland, Kýpur, Tyrkland, Serbía og Sviss. Það er mín spá. Eiríkur á alveg séns í forkeppninni, en því miður held ég að við sitjum eftir enn einu sinni. Við eigum því miður engin pottþétt stig neins staðar eins og öll austantjaldslöndin. En kannski verður fólk fegið að sjá einfalt atriði og einlægt, alveg komið með nóg af flugeldunum og dillandi rössum. Hver veit.

Formlega hætt í sportinu. Útiloka þó alls ekki endurkomu í sjónvarp. Langt frá því. Í bili hentar mér bara betur að fara í flugið í sumar og drífa þessa BA-gráðu svo af.





vínsmakk

2 05 2007

G.Pétur skoraði á mig í vínbloggkeðju um daginn og ég tók áskoruninni fagnandi. Ekki á hverjum degi sem maður fær að smakka gott vín gegn smá bloggi :) Mér finnst þetta sniðugt hjá þeim hjá Víni og mat að koma sér á framfæri á þennan hátt. Enda er það yfirleitt árangursríkast að auglýsa frá manni til manns.

Allavega, mér var falið að smakka ástralskt vín, The Footbolt, sem mér finnst mjög sérkennilegt nafn og eiginlega nokkuð fráhrindandi. Sérstaklega þegar undirtitillinn er Maclaren eitthvað.. þá er eins og maður sé mættur með íþróttarauðvín :)

Ég fékk hina Bermúdabyttuna með mér að smakka, enda erum við orðnar sérþjálfaðar í að sitja yfir lögg af góðu víni og spjalla. Stína bætti um betur í þetta sinn og hafði franska súkkulaðiköku á borðum. Þá hlustuðum við á tónlist frá hinum víðfræga franska stað, Buddha Bar.. ótrúlega hipp og kúl staður í París með góðum mat og góðri tónlist.. en það er önnur saga! :) Semsagt, við vorum vel gíraðar þegar við helltum víninu í nýju fínu glösin hennar Stínu. Þá tróðum við nefjunum oní glösin á ægilega pró hátt. Ilmurinn var þungur, og satt best að segja leist mér ekki beint á blikuna þar sem mjög þung vín gera mig brjálæðislega syfjaða og er komin með ógeð eftir hálft glas. Við leyfðum víninu að standa ögn lengur og létum það rúlla betur um glasið.. og svo lyktuðum við aftur. Gjörbreytt lykt!! Mjög skrítið! Strax léttari. Kannski var nefið viðbúnara. Svo smökkuðum við á herlegheitunum. Ég var bara stórhrifin. Ég er hrifin af bragðmiklum vínum og Shiraz vínum og þetta fyllti vel út í öll skilningarvitin, en var þó ekki of þungt á bragðið. Stína fína var sömuleiðis hrifin. Við sem ætluðum fyrst að fá okkur bara smá smakk, enduðum á því að klára flöskuna. Þótt það þurfi ekki endilega að segja til um gæði vínsins hehehe.. en við stundum reglulega upp “mmm hvað þetta er gott vín!” og okkur fannst við rosalega fínar. Maður finnur alveg greinilegan gæðamun á þessu víni frá þessum “venjulegu” flöskum sem ég kaupi yfirleitt og eru svona 5-600 kr ódýrari.

Lokaniðurstaðan var einfaldlega:
The Footbolt + frönsk súkkulaðikaka + góður félagsskapur = better than sex :)

Eina sem vantaði var að við værum actually staddar á Buddha Bar og heima á hóteli biðu sætu kærastarnir okkar :)

Ég mæli hiklaust með þessu víni ef þið viljið kaupa gott gjafavín eða bara hafa góða stund heima, og ekki drekka neitt sull. Hins vegar er þetta ekki beint vín til að fá sér glas og skella sér svo út á lífið.. þetta er þyngra en það. Ég mun mjög líklega kaupa þessa flösku við tækifæri.

Ég skora hér með á Gumma Jóh, überbloggara og Breiðhylting og Sjálfstæðismann, eins og sést glögglega á færslunum þegar nálgast kosningar, til að taka við keðjunni.

Takk fyrir mig!