fyrrverandi eiginmaðurinn..

23 02 2007

..er svo sannarlega ómissandi í mínu lífi. Ef það væri ekki fyrir elsku GurrPurr, þá væri ég enn gardínulaus :)

En núna, tveimur og hálfu ári eftir að ég flutti inn, eru loksins komnar gardínur í stofuna. Hún mundaði borinn og skrúfurnar af mikilli snilld og skellti þessu upp á nó tæm. Ég botnaði varla í leiðbeiningunum og mitt hlutskipti var að skemmta Kötlu litlu á meðan mamman stritaði.

Núna geta perrarnir ekki lengur gægst á gluggann án þess að ég viti. Jibbí!





helsinki 2007

18 02 2007

Einhver þarf að kenna Sveini Rúnari höfundi lagsins að semja C-kafla.
Og ég held að það væri góður kostur að syngja lagið á íslensku, þar sem ég skildi ekki orð af ensku útgáfunni :)





krækjur sem gleðja

16 02 2007

Hér má sjá verstu portrettmyndir Íslandssögunnar :) algjörlega bráðfyndið. Sumir mega alls ekki við því að boosta plastlúkkið!!

Ef fólk vill hlæja dátt þannig að liggi við þvagláti, mæli ég með fréttum Stöðvar 2 frá því í fyrradag. Fyrst þetta og svo þetta í réttri röð.

Ef fólk vill fræðast um piparsveina, þá fá Gummi, Dóri og Hlynur skemmtilegar umsagnir á veraldarvefnum, bæði hjá Brynju og á Barnalandi. Jáh, þegar kellingarnar þar eru komnar í spilið getur hvað sem er gerst! Það besta er að Dóri hefur fengið einhver sms :) brilliant.

og að lokum, það er nokkuð ljóst að eibie baby á einn lítinn son í the us of a, það bara fer ekki á milli mála! ;) Þetta er alveg frábært.

Gleðilegan föstudag! Farið ykkur nú ekki að voða um helgina.





14 02 2007

þetta lag er spilað fyrir ríkisstjórnina og Breiðavíkurmálið!!
Hvað er málið með að geta ekki bara beðist afsökunar???????





ljóska.is

5 02 2007

Stína stuð var svo góð að draga mig uppúr sófanum heima og næra mig.. og svo keyra mig til að sækja bílinn minn upp í RÚV. Við kvöddumst og ég ætlaði að keyra heim í rólegheitum.

En nei.

Lásinn á bílnum var algjörlega pikkfrosinn. Ég er nýbúin að læra að ná þá í poka fullan af heitu vatni og halda upp að – og það svínvirkaði..
Svo settist ég inn í bílinn og hélt af stað. Ákvað að stoppa svo og skafa betur af rúðunni..

Þá var ég föst INNÍ bílnum.

Það var sama hvað ég gerði, ég henti mér á hurðina en ekkert gerðist, og ekki gat ég opnað hinum megin því þar var lásinn pikkfrosinn. Ég sá bara fyrir mér að ég myndi frjósa í hel yfir nóttina, pissa í flösku eða eitthvað.. Íhugaði að fara til lögreglunnar og láta hana opna.. en ákvað svo fyrst að fara á Nesti og athuga hvort lásinn myndi ekki afþíðast á leiðinni. Mínar verstu martraðir urðu að veruleika þegar ég komst enn ekki út úr bílnum þegar þangað var komið. Íhugaði að bibba á eitthvað fólk og biðja það að opna, en ákvað svo að fara til Kristínar og láta hana opna.

Kristín kom niður og benti mér á the obvious.

Ekki eitt augnablik hafði mér dottið í hug að skrúfa niður rúðuna og opna þannig. Neibb, Lovísa hefði örugglega frekar pissað í flöskuna og frosið í hel.

Allt kvöldið var ég svo að skella uppúr við tilhugsunina um svipinn á fólki á Nesti hefði ég actually bibbað og beðið þau að opna!!!!! hahahahhahaha…

Já. Ljóshærð fram í fingurgóma.





viðeigandi

1 02 2007

þetta lag á bara svo vel við mig eitthvað þessa dagana :) og allir dilla sér með!!