Kveneðlið í mér (eða kannski móðureðlið) langar að taka allt landsliðið í faðminn og hugga. Hugga hugga hugga. Því þetta var erfitt maður í gær. Úff.
degi of seint..
25 01 2007

En betra er seint en aldrei.
Elsku besta Fiorelini! Til hamingju með daginn í gær!
Sjö ár maður, sjæse hvað tíminn líður hratt!!
Þið sem viljið vita hvað við eibí beibí höldum uppá – lesið hér
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa, myndir
kraftaverk í beinni útsendingu
23 01 2007Leikurinn í gær var hreint út sagt magnaður. Ég hafði borið von í brjóstinu allan daginn að við myndum leggja Frakkana og farið með bænir- en ekki í mínum villtustu draumum bjóst ég við þessu!!! Ég var sko ein fjölmargra Íslendinga sem sat og gargaði á sjónvarpið og hentist uppúr sætinu.. og trúði ekki mínum eigin augum. Sama hvað gerist héðan af, hafa þeir svo sannarlega unnið fyrir titlinum “Strákarnir okkar”! Ég trúi því statt og stöðugt að tapið gegn Úkraínu hafi verið það besta sem gat komið fyrir liðið – án þess hefði liðið ekki sýnt þann gríðarlega styrk að rísa upp úr volæðinu og SÝNA að við getum unnið stóru þjóðirnar!!!
Til hamingju íslenska landsliðið.
Ég er búin að fara með þakkarbænirnar. Og nú heldur vinnutörnin mín sko áfram
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
meyr
20 01 2007Mikið var frábært að fá bækur í jólapakkana í ár. Er hálfnuð með jólabókagóssið – búin með Sendiherrann og nú er ég að byrja á Bróður mínum Ljónshjarta, sem ég hef ekki lesið í möööörg ár. Hóf lesturinn í gærkvöldi, en þurfti að hætta eftir svona sirka 11 blaðsíður þar sem ég sá ekki augunum úr fyrir tárum!! hehehe.. þessi bók fer bara alveg með mig! Ótrúlega sorgleg byrjun á bók.. það er svona gottvont að lesa hana. Ljúfsárt kannski betra orð heheehe.. Æh já. Ég verð svona líka þegar ég les Elsku Míó minn sem er ein af mínum uppáhalds. Meyr. Ég er kannski bara svona meyr týpa.
Til dæmis er ég það meyr að ég fæ tár í augun yfir þjóðsöngnum á handboltaleikjum. Þannig að nú fer í hönd gósentíð fyrir tárakirtlana. Ég skældi aftur yfir íþróttaannálnum yfir stemmaranum í Laugardalshöll á 17.júní, líkt og ég gerði þegar ég horfði á leikinn í sjónvarpinu á sínum tíma.. Og átti pínu erfitt með mig í Höllinni gegn Tékkunum.
Meyr.
En já þetta er svona gottvont að vera meyr á þessum stundum. Og ég vona að ég fái að vera meyr sem oftast næstu vikurnar. Því það þýðir að íslenska liðinu gengur vel.
“..eitt eilífðar smáblóm..”
Áfram Ísland!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
HM-ballið er byrjað..
19 01 2007..sem þýðir brjáluð vinnutörn
og væntanlega skemmtileg vinnutörn.
Gott að frétta. Ég er farin að vakna fyrr á morgnana og sprikla dálítið. Slenið hefur stórskánað og letibikkjan Lovísa er á undanhaldi. Í bili allavega.
Bril helgi. Þrefalt reunion, 6.C og sumarfuglar Icelandair.. svo fréttaskriftureunion á laugardagskvöldinu og setið lengi við á Ölstofunni að spjalla við fólk. Algjör algjör snilld. Þar að auki var eldskírn í beinni. Gaman að því
Ég er svoooo fallin í gildru sjónvarpshönkanna. Elsku Jack Bauer minn er snúinn aftur, stutt í Scofield og nú er ég búin að uppgötva Doctor McDreamy. Herregud! Hann er góð viðbót!! En til þess eru jú þessir myndarlegu menn í sjónvarpinu – svo maður horfi. Alveg að virka á mig allavega!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
11 01 2007
Úff hvað mér blöskrar þetta barnaland.is dæmi og kjaftakellingarnar þar. Nú er vitað mál að kellingar í hóp slúðra.. en vaaaaá, kellingum sem leiðist í hóp og UNDIR NAFNLEYND, þá er fjandinn laus!!!! og að slúðra á BARNALANDI, af öllum stöðum!! mér finnst það svona einhvern veginn olía á eldinn og maður myndi halda að umræður af þessum toga væru óviðeigandi á síðu sem kemur börnum við.. Ég gerðist nú ekki svo “fræg” að lesa um Magna, enda hef ég ekki áhuga á því, en las umræður um fluffustarfið.. og það var nú alveg einn stór brandari sko.. með ólíkindum hvað fólk getur verið tilbúið alltaf til að draga allt niður í svaðið!! Skammist ykkar barnalandskellingar!
en jæja frá hneyskli yfir í hlátur. Sá þetta myndband á VH1 í gær í 90’s þætti. Sjitt hvað þetta eldist illa hahahahhaha..
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
draugagangur
10 01 2007Ég er nánast farin að sjá eftir því að hafa keypt mér kort í Laugum. Í Laugum er nefnilega reimt. Það er svo reimt að ég þarf að fela mig þegar ég er sveitt og rauð í framan eftir púl, já eða nýmætt með stírurnar í augunum og hárið út í loftið.
Í Laugum ganga nefnilega fortíðardraugar aftur.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
annáll
4 01 2007Það er margt sem gerist á einu ári. 2006 var gott ár. Ég lauk náminu í Leeds með trega – hefði alveg viljað klára námið þarna úti, frábær skóli og meiriháttar borg. Leeds var bara hrein snilld og kenndi mér margt nýtt um sjálfa mig. Komst til dæmis að því að ég hef gríðarlega þolinmæði með því að búa með dönsku stúlkunni sem er ekki alveg eins og fólk er flest, þótt hún sé ósköp indæl greyið…
Ég ferðaðist á marga nýja staði (og aðra “gamla”) og ber þar hæst Egyptaland, einfaldlega því það var svo öðruvísi
París, Edinborg, Dublin, London, Amsterdam (þótt það hafi verið haustið 2005, en inní Leedspakkanum samt!!), York, Manchester, Köben.. allt stórskemmtilegar borgir. Svo auðvitað ameríkuferðirnar með vinnunni, ber þar hæst San Francisco – frábær borg og missir að henni sem áfangastaðar Icelandair.
Tilfinningalega skrítið ár. Brjáluð blissful hamingja yfir því að vera úti í Leeds og svo var ég lengi að jafna mig á því að vera komin heim
Held að afmælisdagurinn minn hafi verið the breakthrough í að jafna sig! Mér fannst eitthvað spes að koma heim í “alvöru lífsins” þar sem nokkur börn voru fædd og mér fannst eins og það væri pressa á að horfast í augu við lífaldur minn hehehhe en svona getur maður verið bilaður
Eftir á að hyggja held ég að sambandsslitin við D hafi haft mikið um þetta að segja, þótt ég hafi ekki gert mér grein fyrir því. Þetta var svolítill milestone – fyrsta sambandið lengi þar sem ég var alveg afslöppuð og lét mér líða vel og naut þess að vera skotin í einhverjum. Engin fóbía eða panikk. Að minnsta kosti ekki til að byrja með! En heimförin sáði smám saman panikkfræjum í okkur, setti mikla pressu á sambandið og kannski var spurningin um hvað hefði gerst hefði ég ekki verið að fara heim hvílandi á manni. En ég er mjög sátt við að hafa ekki enn einu sinni sett líf mitt á hold!
Það hefði ekki skilað mér mikilli lífshamingju.. hann var hvort sem er ekki kannski framtíðar-material eftir allt saman, hehehehe
hefði þurft mikla vinnu allavega
Ákvað líka á árinu að vera pínu “flippuð” og prófa hluti sem ég hefði ekki beint búist við að gera. Svo lengi sem það er ekki eitthvað stórhættulegt þá er það bara gott mál
hef uppskorið ýmislegt skemmtilegt með því, helst kannski þó góðar sögur!
Ný vinna – ný tækifæri! Ef manni býðst gott tækifæri, þá er um að gera að henda sér í djúpu laugina! Kútalaus og vona það besta! Ekki satt?
ég er allavega ánægð með að hafa gert það!
Ég hef alveg ótrúlega góða tilfinningu fyrir nýju ári. Sé fram á meiriháttar skemmtilegt ár. Þó ekki væri nema bara fyrir afmælispartýið sem ég mun halda á nýju ári. Þið sem eruð ekki búin að taka daginn frá í brúðkaup (ykkar eigin eða annarra!!), þá megið þið taka 070707 frá! Jáh það eru ekki allir sem fá svona dagsetningu og ég ætla að halda þvílíkt uppá það! Stefnan er sett á að toppa Bubba
Glitnir og Vodafone vilja örugglega líka styrkja mitt afmæli.. Enda mín tala mun heilagri en hans!!
Megi árið færa ykkur ekki aðeins alla ykkar villtustu drauma og þrár – heldur líka það sem þið vissuð ekki að þið þráðuð
x
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
GLEÐILEGT ÁR!!
1 01 2007

- með kveðju frá karókídrollunum -
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : myndir, ýmislegt
Nýleg ummæli