Hárið á mér stendur út í loftið. Ég svaf pínu yfir mig og rauk út úr húsi. Get ekki sagt að ég hafi sofið vel, mér leið líkamlega illa vegna þynnku og átti erfitt með að sofna, svo hringdi útlendingurinn í mig klukkan hálftvö til að gá hvort ég væri að djamma.. Hvaða útlendingur? já sko, útlendingagóða Lovísa pikkaði upp tvo menn frá Norður-Englandi á laugardagskvöldið þar sem við bonduðum í miklu Norður-Englands spjalli og tjútti á dansgólfinu.. Mér tókst líka að týna símanum mínum í fimmtugasta sinn en alltaf er ég jafnheppin með fólk sem finnur hann og skilar. Gaurinn sem fann hann kom keyrandi með hann heim til mín úr Kópavogi. Og neitaði að taka greiðslu eða neitt fyrir. Voðalega er fólk heiðarlegt. Daginn eftir hringdi annar útlendinganna í mig og vakti mig klukkan hálftvö og vildi endilega fara Gullna hringinn. Ég sagðist sko ekki vera í ástandi til að keyra hehehe.. en fékk þær fréttir að gaurinn hafi verið laminn niðrí bæ á leiðinni heim á hótel.. örugglega bara af því að hann er arabalegur í útliti!! En nei ég djamma heldur ekki á sunnudagskvöldum klukkan hálftvö, virkar ekki svona á Íslandi.. hehe..
í dag er ég semsagt soldið sybbin..voruði búin að tékka á myndbandinu með stefnumálum Gunnars Arnar Örlygssonar? www.gunnarorn.is og “skoða myndband” undir stefnumálunum.
Athyglisvert.
Nýleg ummæli