27 11 2006

Hér að ofan er svipmynd frá fimmtudagsbjór fimmtudagsvaktarinnar. Læv tónlist á Q-bar og eftirpartý á S37. Mér finnst Dóri ná að lýsa stemningunni einstaklega vel á blogginu sínu.

Svo var partý hjá eibs kvöldið eftir. Snilld. Mikið hlegið að gítartilþrifum gesta.

Þá var hið árlega jólahlaðborð íþróttadeildar RÚV á laugardag heima hjá forstöðumanninum. Mikið hlegið, mikið etið. Sem er auðvitað frábær blanda. Eðalkoníak smakkað í fyrsta sinn.

Er algjörlega endurnærð andlega eftir þessa skemmtilegu helgi. Nákvæmlega það sem ég þurfti.





dance now c’mon c’mon kick it!

23 11 2006

Vá ég hef sjaldan eða ALDREI upplifað jafnmikið flashback á ævi minni!!!!!

Gott fólk, I present..
TÍMAVÉL TIL ÁRSINS 1993!!!

Fannst ég í alvöru sitja í herberginu hjá Ragnhildi vinkonu að senda kveðjur á FM957. Diskótekin í Kópavogsskóla. Hipp hopp keppnirnar. Litaðar Lee gallabuxur. Íþróttaskór með loftpumpu og skærappelsínugulum reimum. Bræðraborg.

:) þetta var frábært móment :) ekkert smá gaman að upplifa svona. Var alveg búin að gleyma að þetta lag væri til.





22 11 2006

Jahá. Bond brást ekki. Hó-hó-hólí mólí hvað maðurinn er sexy :) Svona á þetta að vera!! Nú skilur maður af hverju hann er svona ómótstæðilegur fyrir konur!

Sjitt hvað það var erfitt að fara ein að sofa í gærkvöldi ;)





Ég er Únglíngamamma!!

20 11 2006

maður er nottla búin að heyra “klisjuna” um að börn vaxi svo hratt alveg skrilljón sinnum, but it´s true!!! Katla er að veraða unglingur ég sverða, en samt kom hún bara út í gær! Hún sum sé ákvað á laugardaginn að þá væri gott að byrja AÐ GANGA!!! jebbs, tók fyrstu 5 skrefin og er búin að vera óstöðvandi síðan. Svo var hún að byrja í aðlögun á leikskólanum í dag! yup, my baby´s growing up!! sniffsniff…Það er alveg víst að þessi aðlögun er meira fyrir mig en hana. En greyjið hinir krakkarnir, vita ekki hvað þau eru komin útí…Katla-formaður er mætt á svæðið. reyndar byrjaði hún heimsyfirráðin á leikskólanum frekar rólega, kýldi t.d. bara einn gaur með dóti. hann átti það alveg skilið samt. Þannig að framundan eru 10 aðlögunar dagar og eftir það verður klippt á naflastrengin endanlega.+

já myndin…katlan er ekki bara formaður, heldur grínari. Hún er búin að fatta nokkra hluti sem láta foreldrana hlæja. í fyrsta lagi er það að hlæja gerfihlátri, hún er búin að skilyrða okkur til að hlæja alltaf að því. Hitt er nkl þetta, að klessa sér upp við rúðuna, fyrst mamma svo katla, svo mamma, svo…já und so weiter. óendanlega fyndið…





16 11 2006

ég á útsmoginn kall. og það þarf greinilega sálfræðinám fyrir mig að komast að því þar sem ég er ekkert allt of skýr. Hann er ofboðslega góður við mig, en útsmoginn engu að síður. þetta kemur ss fram í þeirri gjafmildi hans að vera alltaf að bjóða mér á tónleika. Við erum eins og allir ung-íslendingar, (kýs að kalla mig unga fram í rauðan…) sem eru í námi, með barn og nýja íbúð, alltaf í aðhaldi. En bjarki er búin að finna leið framhjá fjármálastjóranum með því að höfða til dekurdollunnar og konunnar í mér og vera alltaf að “bjóða” mér á tónleika sem hann langar á…e-s konar útgáfa af keep your friends close but….ect…. Eníhú, vegna ákveðinna “lögmála” í mannlegri hegðun þá kann maður nottla ekki við að segja nei við gjöfum og góðmennsku, það er bara í eðli mansins ( þennan part var ég sumsé að læra;)hoho…) ég fattaði þetta reyndar ekki fyrr en hann bauð mér á morrissey, mann sem ég yfirlíst ÞOLI Ekki ( sorry toggi), tónlistin er fín en rassinn herpist bara við að heyra þessa rödd. Þetta veit bjarki, en af pjúra góðmennsku bauð hann mér engu að síður á tónleikana. þá fóru bjöllur loks að klingja….. I had been outsmarted. Ég er reyndar með á prjónunum að nýta mér þetta fína system bara sjálf, við bjarki eigum panntaðan tíma í litun, plokkun og brazilian á nordica á morgun.

Mér datt þetta bara svona í hug af því að hann bauð mér á Sykurmolatónleikana á morgun, sem er hið besta mál því að mig langar jú að fara. en þar sem þetta er boð þá fékk ég nottla ekki að vita verðið, og mother#Ö#$%”%#”Ö$!”"#”#!!! hvað þetta er dýrt!´ég var ss bara að frétta í gær hvaða geðveiku upphæð þeir eru að rukka. nett sjokk svona. ég hlýt að fá freyðivín og jarðaber og vera nudduð af brúnum hombre á meðan.
bráðum flytjum við í tjald á klambratúni til að eiga fyrir boðum kallsins.





OH LEEDS

14 11 2006

JIBBÍÍÍÍÍ GÆTI HOPPAÐ UM AF HAMINGJU!! Ég fer í heimsókn til Leeds 8.-11.desember!! Svo glöð, því þá verða flestar af vinkonum mínum sem ég eignaðist í vetur á staðnum, þær eru akkúrat að útskrifast líka og það verður smá gæsapartý fyrir Renée og svo ætla ég að hitta Matt og Ste og Nicole og fleiri, á uppáhaldsbarinn minn og fara í The Corn Exchange og kaupa mér mynd á vegginn heima og versla mér föt í flottum enskum búðum..

GAAAAA ÉG ER SVO GLÖÐ :) :) :)





slæmur hár dagur

13 11 2006

Hárið á mér stendur út í loftið. Ég svaf pínu yfir mig og rauk út úr húsi. Get ekki sagt að ég hafi sofið vel, mér leið líkamlega illa vegna þynnku og átti erfitt með að sofna, svo hringdi útlendingurinn í mig klukkan hálftvö til að gá hvort ég væri að djamma.. Hvaða útlendingur? já sko, útlendingagóða Lovísa pikkaði upp tvo menn frá Norður-Englandi á laugardagskvöldið þar sem við bonduðum í miklu Norður-Englands spjalli og tjútti á dansgólfinu.. Mér tókst líka að týna símanum mínum í fimmtugasta sinn en alltaf er ég jafnheppin með fólk sem finnur hann og skilar. Gaurinn sem fann hann kom keyrandi með hann heim til mín úr Kópavogi. Og neitaði að taka greiðslu eða neitt fyrir. Voðalega er fólk heiðarlegt. Daginn eftir hringdi annar útlendinganna í mig og vakti mig klukkan hálftvö og vildi endilega fara Gullna hringinn. Ég sagðist sko ekki vera í ástandi til að keyra hehehe.. en fékk þær fréttir að gaurinn hafi verið laminn niðrí bæ á leiðinni heim á hótel.. örugglega bara af því að hann er arabalegur í útliti!! En nei ég djamma heldur ekki á sunnudagskvöldum klukkan hálftvö, virkar ekki svona á Íslandi.. hehe..
í dag er ég semsagt soldið sybbin..voruði búin að tékka á myndbandinu með stefnumálum Gunnars Arnar Örlygssonar? www.gunnarorn.is og “skoða myndband” undir stefnumálunum.
Athyglisvert.





9 11 2006

meeeeeeeeeeeeeen ég nenni ekki að læra. sérstaklega ekki bloody tölfræði”#$%”#$%#$%#” ég held að ég sé búin með læru kvótann fyrir þessa önn. Þannig að ég er komin uppí sófa með bjór og Alias og bókina v. hliðina. samviskan plötuð og allir ánægðir.





af “þessu fólki”

9 11 2006

HALE-FOKKING-LÚJA!

hef eiginlega engu við þetta að bæta!!! smellið á linkinn, Sigmar með skemmtilegan pistil..

Ég er orðin mjög þreytt á “Ísland-best-í-heimi” fílingnum. Auðvitað er þetta gott land. En komm on gott fólk!!

Það hlaut svosum að koma að þessari umræðu um innflytjendur..
Svo það sé á hreinu, þá er ég HLYNNT fjölmenningarlegu þjóðfélagi!!!





9 11 2006

hehehhe þær eru ekkert líkar mér :)