af misgóðum hugmyndum…

31 10 2006

Ég ákvað um daginn að farað borða hollt. Fara að borða meira grænmeti og ladída, og bjó mér til voða fínann grænmetis-nart bakka í morgun til að hafa með á bókhlöðuna. Hafði þetta meira að segja ekki í poka til að það myndi ekki alltaf heyrast skrjáf þegar ég fengi mér. tillitssemin að drepa mann. En ég komst ekki í gegnum meira en einn bita af nestinu. Hver biti af gulrótiinni svoleiðis bergmálaði í hlöðunni og ég fékk stingandi dráps augnaráð frá fólkinu með eyrnartappana á næstu borðum. þannig að ég kyngdi bara hálftuggðri gulrótinni og er hætt. þá á bara að borða nammi á hlöðunni. já eða soðið grænmeti.





Sjaldan blogga sumir….

29 10 2006

ég er nú eila mest hissa á því að ég hafi munað log-innið mitt á bloggerinn…eníveis, miiikið er búið að drífa á mína daga frá því síðast, sem var held ég e-n tíman í byrjun þessa árs…what can I say, bloggþörfin hefur ekki beint verið að hrjá mig…en já, seinast var ég sumsé heimavinnandi ný-móðir og núna finnst mér ég vera alveg eins mikil nýmóðir, ekki nema að mér finnst ég vera með ungling þegar ég skoða fyrstu Kötlumyndirnar, oooog svo er ég komin í háskóla!….aftur!… ég hét því nú e-n tíman í ungdæmi mínu að fara aldrei í háskóla íslands því að hann var ein sú mest óspennandi stofnun sem ég vissi um. það var þá. núna er ég 1.árs nemi í sálfræði extrordinair, og nottla 50% heimavinnandi móðir í hlíðunum,og finnst háskólinn bara ekki svo slæmur..hann reyndar óx asskoti mikið í áliti hjá mér þegar ég loggaði mig inná ugluna á ammælisdaginn og hún spilaði fyrir mig (að beiðni rektors geri ég ráð fyrir)ammilislagið á píanó! þetta getur hún ugla. síðan þá erum ég og háskólinn vinir, honum þykir greinilega vænt um mig fyrst að hann man eftir ammælisdeginum mínum og þá verður mér amk að þykja pínu lítið vænt um hann á móti. Það fyrsta sem mér datt í hug reyndar þegar ég tók eftir þessu á uglunni var að Bjarki hefði hakkað sig inná vef háskólns og gertetta fyrir mig:) awwww…brjóta lögin fyrir hana Gurrý sína:)…svona tröllatrú hef ég á tölvunördinum honum kallinum mínum. en nei, eins cyber-rómatískt og það hefði verið þá var það ekki hann…

ég komst að því first hand á föstudaginn að maður losnar aldrei frá rúv. once it has you in its claws…nei, það var sum sé rúv húllumhæ á föstudaginn og ég fór af sjálfsögðu sem makinn hennar lou. ahhh…good old times… Og þá rifjaðist upp fyrir mér hvað húllumhæin þarna eru vibba skemmtileg og hvað fólkið er æði. þannig að eftir að hafa drukkið rauðvín í boði stofnunnarinnr og etið snittur þá þurfti ekki að snúa neitt ofboðslega mikið upp á handlegginn ámér til að fá mig til að vera stand by skrifta… annars held ég að málið sé bara að drulla sér í fréttamannaprófið og gera e-ð almennilegt þarna…

well, nightie night!

p.s.
til hamingju með ammælið Árni Lovísupabbi:)





afmælisbarn dagsins

29 10 2006




fröken upptekin

24 10 2006


Mikið að gera þessa dagana. Vinna, ritgerðar- og fyrirlestrasmíð, fimmtugsafmæli föður míns framundan..

Rosalega var Divudagurinn 2006 frábær!!! Við viljum þakka Guðjóni snillingi og Sollu sminku kærlega fyrir að leggja sitt af mörkum.. Við hlökkum til að sjá afraksturinn :)

Og takk þið sem hafið verið svona sæt við mig og komið til mín alls konar skilaboðum vegna frumraunar minnar á skjánum :) gaman að vita að þið voruð að horfa :) :) knús til ykkar allra!





afmælisbarn vikunnar

19 10 2006



er að sjálfsögðu fellow karókídrolla með meiru, ofurmóðirin og syngjandi sálfræðineminn, fegurðardrottningin og Londonpían..

GURRPURRRRRRR!!!!





night of shame

16 10 2006

Note to self: Ekki að drekka 8 skot af Tequila og Ópali á einu kvöldi. Hvað þá með stuttu millibili.

Ýkt gaman með Írisi og Láru á fös. Missti hökuna í jörðina við að sjá mannfjöldann í Októberfesttjaldinu. Og Toggi rokkaði þokkalega á Hverfis á lau. Ef hann mun ekki slá í gegn má ég hundur heita!

Annars hallast ég að því að síminn minn sé hleraður. Það bara hlýtur að vera. Allir eru með hleraða síma!





Orð dagsins er:

13 10 2006

TRISKAIDEKAPHOBIA

Ótti við númerið 13. Já eða föstudaginn þrettánda.
Almáttugur. Er fólk ekki alveg í lagi?? :) allt er nú til!!
partýhelgi framundan!! JIBBÍÍÍÍÍ!!




Komdu Valdimar..

10 10 2006

..er frasi dagsins. Við Bermúdabytturnar, eins og eibs vill kalla okkur, hittumst í smá rauðvínsdreitil í gærkvöld. Flaskan vakti mikla lukku.






7 10 2006

Finnst ykkur ekki æði að fá sms frá mæðrum ykkar? :) Það finnst mér. Ýkt gaman að lesa þau. Móðir mín skrifar nefnilega alltaf sms eins og hún sé að tala við mig í símann eða eitthvað. Fékk til dæmis eitt í dag og það endar svona: “Bless í bili elskan mín”. Awww :) Mér finnst alveg æði hvernig hún gefur sér alltaf tíma til að skrifa elskan mín inn í öll sms :)

LOKSINS er Twiggy mín komin upp á stofuvegg. Hún tekur sig út með mikilli prýði. Ég hafði verið að vesenast með að hengja hana upp of lengi, vantaði aðstoð við það og gleymdi alltaf að kaupa nagla, og ég meina, hvernig á ÉG að vita hvort veggurinn sé úr tré, gifsi eða steini, ég meina kræst sko hehehe.. en þetta leystist á endanum, minn yndislegi yngstibró hjálpaði mér að hengja hana upp og við skiptumst á efni á flakkaranum um leið, góð systkinastund.

Vil endilega benda áhugasömum á hljómsveitina Full Speed Power Party. Opnið endilega linkinn. Þetta er ný hljómsveit miðjubróður míns og lagið sem spilast þegar síðan er opnuð er ÞRUSUGOTT!! Ég fæ það algjörlega á heilann!

Svo er það bara áfram Ísland í kvöld. Endilega að halda hreinu. Þó ekki væri nema til þess að ég þurfi ekki að bera fram nöfn Lettanna í tíufréttunum :)





mesti lúserinn

1 10 2006


Sá fyrsta þátt nýrrar seríu af The Biggest Loser á Skjá einum. Eða, “nýrrar seríu”, það er ekki alveg réttnefni, ég er til dæmis löngu búin að sjá þetta í Englandi. Þess má geta fyrir áhugasama að tvær fitubollurnar verða ástfangnar og gifta sig. Awww.

Þessum þætti fylgir ákveðin siðferðisleg spurning. Vissulega er ágætt að þeir sem eru of þungir fái þarna hvatningu til þess að breyta lífi sínu til batnaðar og snúa til heilsusamlegra lífs. Enda er hættulegt heilsunni að vera svona ofboðslega feitur. Keppendur í fyrri seríu náðu ótrúlegum árangri og myndu barasta flokkast undir heilsufrík í dag. En allt er þetta gert fyrir framan sjónvarpsmyndavélar og í því skyni að græða á þessu, þetta er jú eftir allt saman entertainment business. Það er eitthvað verulega rangt við það að sjónvarpsáhorfendur séu að fylgjast með fitubollunum (eins og þetta er iðulega þýtt á Skjá einum) og mikil áhersla sé lögð á það með myndatöku að sýna brjóst karlmanna, skvap, stóra rassa og miklar vambir, örugglega í þeim tilgangi að áhorfandinn hugsi með sér “ojjjjjj bara..”, keppendum er gert að standast gríðarlegar freistingar með því að vera innan um kökur og önnur sætindi og þar fram eftir götunum.

Offita er jú sjúkdómur. Þetta er fíkn. Fíkn í mat, sykur og stóra skammta. Þetta er svipuð fíkn eins og áfengisfíkn. Hvernig yrðu viðbrögðin ef þetta væri ekki um feitt fólk, heldur alkóhólista? Hef svona á tilfinningunni að það þætti heldur ógeðfellt. Freistingarnar væru ekki lengur í formi marengs og súkkulaðis, heldur bjórs og tvöfalds gins og tóniks. Það þætti örugglega ekki sniðugt. Það er bara þannig að offita þykir fyndin. Fólki finnst eitthvað skemmtilegt við að sjá fólk sem getur varla gengið upp stiga vegna slæms ásigkomulags púla og svitna með tvo sjúklega hot einkaþjálfara sér til aðstoðar.

Og er það ekki pínu sikk?