bæ bæ leiðindafarþegar

27 09 2006

Vil byrja á því að óska Huldu og Gassa innilega til hamingju með hjónabandið :) Aldrei leiðinlegt að sjá vinkonur sínar gullfallegar í brúðarkjól! Takk fyrir mig elskurnar xx

Jæja þá er ég hætt hjá Icelandair, amk í bili. Þetta var orðið ágætt – komin með nóg af ókurteisum og frekum farþegum.. og þeim sem ekki kunna stakt orð í ensku, bulla eitthvað við mig á japönsku og finnsku, til dæmis. Einn farþeginn bað mig til dæmis um “kúk” í dag.. væntanlega verið að biðja um KÓK heheh.. mér fannst það broslegt. Enda finnast mér ófarir annarra stundum fyndnar ;) Annar benti á miðann sinn og babblaði eitthvað á japönsku, var greinilega að spyrja mig að einhverju.. en ég gat ekki fyrir mitt litla líf lagt saman tvo og tvo um hvað í fjandanum hann var að spyrja!! Og frjáls frá sprenghlægilegum hreimum: “Voter, vizát eis” hehehehe.. var soldið þreytt í dag og þráðurinn í mér var frekar stuttur, átti erfitt með að láta farþegana ekki fara í taugarnar á mér – einfaldlega vegna þess að enskumælandi farþegar voru fáir í dag og það fólk gerir sér oft ekki grein fyrir að það er hreinlega ókurteisi að toga í kjólinn manns og æpa “koffí, KOFFÍÍÍÍ” án þess að segja “please”, enda kunna þeir það ekki :)

Nú hlakka ég mikið til að takast á við nýja og krefjandi vinnu. Gott að stinga sér til sunds í djúpu lauginni – er fílefld og til í allt! Jájá throw anything at me og ég mun takast á við það :) Enda fór ég á minn fyrsta blaðamannafund um daginn, tók viðtöl, klippti þau svo til, skrifaði frétt og las hana svo í útvarpið. Fannst ég hafa afrekað eitthvað skemmtilegt :) Svona þarf lítið til heheheh..

Fæ örugglega flugfiðringinn aftur samt seinna. Vinnan hefur svo sannarlega sína kosti, eins og ég hef svo oft bloggað um :)

en í bili, bless bless hattur og að vakna og mála sig klukkan 05.00 á morgnana :) en mest af öllu, BLESS NÆLONSOKKABUXUR KLUKKUTÍMUM SAMAN Í VINNUNNI!! :)





nei NÚ er allt að gerast!!

20 09 2006

Frá því að ég bloggaði síðast hef ég:

- skrifað 3 fréttir í 6-fréttatíma útvarpsins, 2 um golf og eina um skoska boltann
- misst röddina
- smsað fyrir milljónir króna (örugglega)
- eignast leynilegan aðdáanda
- hulunni verið svipt af leynilega aðdáandanum
- verið boðið á ALVÖRU deit
- séð Volver, sem er æði eins og við var að búast
- séð eina bestu leiksýningu sem ég hef séð lengi, Penetreitor
- staðið upp og klappað af mér húðina í leikhúsi
- farið aftur til New York
- misst röddina, aftur!
- verið boðið á annað deit af öðrum manni!
- hitt Gisele og þrjár aðrar súperfyrirsætur í New York
- mætt einu sinni í skólann eða svo
- hefur fóbíska Lovísa heldur betur gert vart við sig
- hefur fóbísku Lovísu verið sagt stríð á hendur
- farið í síðustu ameríkuferðina í bili
- hlustað endalaust á Chasing Cars
- hóstað og hóstað og hóstað
- afþakkað deit hjá þriðja manninum

suma daga er maður bara heitur. aðra minna heitur.





16 09 2006

við KLG að missa okkur úr hlátri yfir þessu í gær, Gunnar í Krossinum að rappa:

http://www.this.is/alliat/mp3/gunnarskaffi.mp3





allt að gerast

14 09 2006

nú er bara allt í gangi! veit ekki hvar ég á að byrja að blogga!

-Hulda gæsuð
-NYC með örverpinu, Herði bróður
-bíll keyptur
-ráðin í nýtt starf

nenni ekki að segja neitt, bara myndir í þetta sinn!






og já nýja starfið er semsagt svona Abercrombie starf – ég verð í bikini einum klæða í anddyri Abercrombie&Fitch á 5th Avenue í New York að láta dást að mér.

iiii djók.





2 09 2006

verð bara að þakka fyrir frábær viðbrögð við singletons vs. smug married pistlinum! gaman að fá svona!!

já og ég er flutt inn á S37. JIBBÍ!! Óð í IKEA og keypti mér húsgögn eins og hafði alltaf staðið til síðan ég keypti. Vildi audda ekkert leigja hana út með fínum húsgögnum ;) Það er allt annað að sjá slottið, alvöru pæjuíbúð núna!

En sá galli er á gjöf Njarðar að ég þarf að bíða í að minnsta kosti viku eftir nettengingu. Svo ekki verður mikið bloggað á meðan.