
ahhhh ég meina, hversu mikill unaður er að fara í gegnum Prison Break seríuna, þótt ekki væri nema bara til þess að hafa þennan ótrúlega fallega mann fyrir augunum?? almáttugur, hvernig er hægt að vera svona vel skapaður?? Hann skýst beint í annað sætið á celeb listanum mínum, beint á eftir Jake mínum Gyllenhaal.. eða jafnvel deila þeir efsta sætinu.. hmmm…?
annars er ég í skýjunum yfir ágúst skránni minni.. bað um bæði San Francisco og Boston og fékk hvorutveggja
Þokkalega ætla ég í Alcatraz!!!! JIBBÍÍÍÍÍ!! og svo fékk ég frí réttu helgina, bara með því að senda þeim hugskeyti
boðin í 2 partý þá helgi og svo menningarnótt
Í Boston ætlum við Arnbjörg að skottast um, tékka á Siggu sem verður nýkomin þangað í master nr.2.. og svo ætla ég að hitta Ericu og Emily sem búa þar
:) smá Leeds reunion..
Nýleg ummæli