Eru ekki allir örugglega búnir að lesa Draumalandið eftir Andra Snæ?
Frábær bók – í senn sprenghlægileg og hrikalega sorgleg. Maður hreint veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta.
Ég var nú ekki á landinu þegar bókin kom út og veit ekki mikið um hversu miklu fjaðrafoki hún olli. En mér skilst að stjórnvöld þessa lands keppist við að þegja hana í hel. Það finnst mér heldur ekki skrítið.
Hvernig væri að ganga á þetta lið og FÁ SVÖR?? Er þetta virkilega rétt sem kemur fram í bókinni???? Og af hverju eru þá allir SOFANDI????
Nú læt ég verða af því að ganga í náttúruverndarsamtök, svei mér þá.
Góðir blogglesendur – LESIÐ ÞESSA BÓK!!
Nýleg ummæli