
þessi mynd er nottla bara snilld
tekin í afmælisboðinu mínu, þar sem innsti hringur gæddi sér á G.S.O.P.-kjúlla og skellti sér svo á djammið. Ég fékk GÍTAR frá þeim í gjöf, sem verður að teljast ógurleg snilld, ég varð alveg steinhissa. Magnað hvað vinkonum mínum hefur verið að takast að koma mér á óvart svona undanfarið
Hinar nýbökuðu mæður stóðu sig með prýði og þetta var alveg gúdd óld deis. Í fyrsta sinn síðan ég kom heim var ég innilega innilega glöð með the return á klakann! Takk fyrir mig elskurnar mínar. Myndir hér og hér.
HM búið. Trúi þessu varla. Alltaf pínu “end of an era” fílingur. Hvar verð ég stödd í lífinu eftir 4 ár? Spurning sem brennur á vörum mér eftir hvert einasta HM. Ég verð 31 árs!!!! Svona um það leyti sem úrslitaleikurinn í Suður-Afríku verður háður. Má varla til þess hugsa án þess að fram spretti kaldur sviti.
Verð bara að segja að mér finnst alveg nett fyndið að heyra um hvað Englendingar taka tapi alltaf persónulega. Alveg að afbóka Portúgalsferðirnar eins og þeir eigi lífið að leysa. Fótboltinn er bara hugur þeirra og hjarta. Sá í Daily Mail í dag að einn blaðamaðurinn orðaði þetta svona: “it’s my sad duty to report that many nations..” eru eitthvað að segja að Englendingar séu ekkert eins góðir og þeir þykist vera. Þetta taka þeir afar alvarlega. Og skella alfarið skuldinni á Svíagrýluna sína hann Sven. Jæja strákar, sá nýi ENSKI hefur nú tækifæri að sýna hvað hann getur og koma með alvöru lið til Austurríkis/Sviss 2008. Spurning um að skella sér til Vínar?
Nýleg ummæli