Já þá er maður byrjaður aftur að fljúga. Búið að ganga svaka vel og ég fékk snilldarskrá fyrir júní-mánuð. Í gær kom ég úr alveg meiriháttar ferð til New York, áhöfnin var frábær og borgin er svo sannarlega að koma sterkari inn hjá mér með hverri ferðinni
Þessi ferð var alveg skólabókardæmi um hvað vinnan getur verið ógeðslega skemmtileg og mér leið eins og algerri forréttindamanneskju!! Það var sko eitthvað nýtt prófað, við fórum öll saman á hráfæðisstað, to be honest leist mér ekki á það í upphafi en ég fer bara með þangað sem allir aðrir fara, um að gera að halda hópinn.. hráfæði er semsagt ferskur lífrænn matur og AÐEINS úr jurtaríkinu.. ég sá fyrir mér svona rifnar-gulrætur-og-kálhaus fílinginn en nei nei nei þetta var bara algjör snilld. Hér er slóðin ef fólk er forvitið. Ég fékk mér semsagt “chili lime tortilla wraps” og þá eru tortillurnar búnar til úr sólþurrkuðum tómötum og sýrði rjóminn úr hnetum!! svo var sko ís í eftirrétt, líka búinn til úr hnetum og þetta var bara rosalega gott!! Ánægð með að hafa prófað eitthvað nýtt. Tapaði mér svo algjörlega í MAC pro búðinni í Soho, ein freyjan er semsagt sminka hjá Mac og það var ekki annað hægt en að nýta sér sérþekkingu hennar!!!
Vetrarlöngu Mac banni mínu hefur verið aflétt. Ég á fullt af nýju flottu dóti vei vei vei…
já og vitiði hvað, vélin mín frá New York kom á stæði í Keflavík kl.06.06 þann 06.06.’06. Spúkí?
Heimkomuþunglyndið er að lagast. Kannski aþþí að ég er komin með nýtt plan
Þarf maður ekki alltaf að hafa svoleiðis til að taka gleði sína á ný?
Letilíf þessa dagana – við Gurrý horfðum á upprunalegu The Omen í gær (á réttum degi), lunch með Tótu frænku í dag og í kvöld ætlum við Stína stuð á kojara
Svo er HM að byrja. Sjitt hvað ég hlakka til. Nett abbó útí fyrrverandi kæróinn, sem heldur af stað til Þýskalands á morgun. Oh hvað mig langar að fara!!!!! Hér er skemmtilegt trivia quiz um HM fyrir þá sem hafa áhuga, þess má geta að ég skoraði 7 stig sem er joint highest so far
:) go Lovisa go!! Verð að sækja kassana mína til Eimskipa sem fyrst, því þar er Englandsbúningurinn minn!!! ég hlakka óendanlega til að sjá England-Svíþjóð, en Svíagrýlan hefur hangið yfir Englendingum í 37 ár, þá unnu þeir síðast.. en ég trúi því staðfastlega að þetta komi núna!!! COME ON ENGLAND!! ég ætla að vera á einhverjum bar að horfa á þann leik.. hverjir eru með?
Nýleg ummæli