Þrátt fyrir að ég hafi ekki bloggað þá hefur þó ýmislegt á dagana drifið. Held að góða veðrið hafi haldið mig frá tölvunni (og próflestri ef út í það er farið heheh)
- ostafondue með stelpunum
- nýju retro hjólaskautarnir prófaðir
- hádegismatur fyrir utan 38 Harold Walk
- matur hjá “tengdó”
- taugatitringur yfir FA Cup Final
- matarboð hjá “íslensku”kennaranum í gærkvöldi, ég langyngst á meðal enskra prófessora og gömlum kennara úr HÍ ![]()
- verið í hlutverki sálfræðings og þerrað tár sambýliskonunnar
- hef ansi góða tilfinningu fyrir að koma heim þrátt fyrir að vilja samt ekki yfirgefa Leeds (weird)
já og svo hætt með kærastanum. Held að pressan að ég væri að fara hafi gert út af við þetta allt saman. En þetta er fyrir langbestu fyrir okkur bæði.



Nýleg ummæli