fångat av en stormvind – i hovedet

27 04 2006

Já mig langar svona að þakka Gurr spes fyrir knúsið :) einnig hinum yndislegu vinkonum mínum sem hafa nennt að hlusta á hina rispuðu plötu Lovísu undanfarna daga! Ég er nefnilega búin að vera með einhvern hvirfilvind í hausnum, skipt um skoðun margsinnis á dag og skipst á að vera í blússandi hamingju og í svartnætti. Ok kannski fullsterkt til orða tekið heheheh en jú nó vott æ mín. En nú held ég að ég sé komin að réttri niðurstöðu og sem ég er mjög sátt við. Líður mun betur og hnúturinn í maganum er farinn.

Vorið er svo sannarlega komið. Hér er yndislega milt og gott veður með slatta af sólskini, og Leedsverskar stúlkur ekki lengi að svipta sig klæðum. Má jafnvel deila um að þær hafi nokkru sinni verið kappklæddar, sérstaklega ekki um helgar um miðjar nætur. Verst að svona vorfíling fylgir kaupæði. Ég er að reyna að halda aftur af sjálfri mér en sætu sumartopparnir dáleiða mig alveg..

Framundan eru ritgerðir.. á að skila tveimur þann 8.maí. Verð samt að klára þær að mestu fyrir 6.maí, því þá förum við Danny til Edinborgar :) :) þar munum við hitta Naglann og her significant other! Það ætti að vera stuð!! Á sunnudaginn fer ég svo að sjá Kaiser Chiefs spila á Millenium Square! :) :) Þetta er lokastopp í Employment túrnum og þeir búnir að lofa ógurlegu stuði í heimabænum. Svo í næstu viku mun ég sjá The Zutons. Þekki þau ekki mikið en mun reyna að hlusta eitthvað áður en ég fer. Í kvöld hitti ég svo Mayu, sem var með mér í Egyptalandi!!! :) hún er á ferðinni hér up north og ákvað að heimsækja mig :)

Ógissla fyndið, á mánudaginn fer Danny til York til að leika í kvikmynd :) haahahahahah.. vinur hans er semsagt að gera kvikmynd, söguþráðurinn er mjög fyndinn og snýst beisikklí um tribute 80’s hljómsveitarkeppni, sem mér finnst auðvitað snilld :) Sumir eru ógurlega stressaðir yfir þessu þar sem hann er ekki vanur að hafa sig í frammi heheheh.. en mér skilst að hann eigi ekki að segja neitt, bara vera þögli bassaleikarinn í einhverju bandi :) Hver veit nema þetta verði hin næsta Full Monty og ég geti sagst hafa deitað kvikmyndaSTJÖRNU?? :)

Ég er með auma fingurgóma. Er nefnilega svaka dugleg að æfa mig á gítarinn. Get núna spilað Stál og hníf eins og ekkert sé. Kunni Hjálpaðu mér upp fyrir, svo ég er orðin útilegufær. Að minnsta kosti í þá týpu útilegu þegar allir eru orðnir PISSfullir!

svo er ég þvílíkt að smakka traditional enskan mat þessa dagana. Smakkaði minn fyrsta Yorkshire pudding á páskadag, undarlegur.. en ekki svo vondur.. í gær heimtaði Neil að ég myndi panta mér Toad in a Hole, sem er sausages, mash, gravy í risa Yorkshire pudding. Mér leist nú ekki á blikuna en þar sem Neil borgaði brúsann ákvað ég að vera hugrökk :) Þetta var ekki svo slæmt! Þetta voru herlegheitin:


svo drakk ég bjór með. Neil var algjör píka, fékk sér risotto og shandy! :) þetta leit ekk imjög kvenlega út fyrir mig. Þori að veðja að afgreiðslukonan hafi haldið að þetta væri pöntunin hans!!


Actions

Information

Skrá ummæli