jæks!!
27 04 2006Var að telja skópörin mín hér í pínkulitla herberginu mínu á Harold Walk. Fékk áfall. ÉG ER MEÐ TUTTUGU PÖR AF SKÓM!!
ok mér til varnar er það MEÐ inniskóm.. og svo hef ég keypt 12 pör af þessum 20 síðan ég kom til Englands í september.
Ef það er mér til varnar. Svei mér þá, ég veit ekki!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
fångat av en stormvind – i hovedet
27 04 2006Já mig langar svona að þakka Gurr spes fyrir knúsið
einnig hinum yndislegu vinkonum mínum sem hafa nennt að hlusta á hina rispuðu plötu Lovísu undanfarna daga! Ég er nefnilega búin að vera með einhvern hvirfilvind í hausnum, skipt um skoðun margsinnis á dag og skipst á að vera í blússandi hamingju og í svartnætti. Ok kannski fullsterkt til orða tekið heheheh en jú nó vott æ mín. En nú held ég að ég sé komin að réttri niðurstöðu og sem ég er mjög sátt við. Líður mun betur og hnúturinn í maganum er farinn.
Vorið er svo sannarlega komið. Hér er yndislega milt og gott veður með slatta af sólskini, og Leedsverskar stúlkur ekki lengi að svipta sig klæðum. Má jafnvel deila um að þær hafi nokkru sinni verið kappklæddar, sérstaklega ekki um helgar um miðjar nætur. Verst að svona vorfíling fylgir kaupæði. Ég er að reyna að halda aftur af sjálfri mér en sætu sumartopparnir dáleiða mig alveg..
Framundan eru ritgerðir.. á að skila tveimur þann 8.maí. Verð samt að klára þær að mestu fyrir 6.maí, því þá förum við Danny til Edinborgar
:) þar munum við hitta Naglann og her significant other! Það ætti að vera stuð!! Á sunnudaginn fer ég svo að sjá Kaiser Chiefs spila á Millenium Square!
:) Þetta er lokastopp í Employment túrnum og þeir búnir að lofa ógurlegu stuði í heimabænum. Svo í næstu viku mun ég sjá The Zutons. Þekki þau ekki mikið en mun reyna að hlusta eitthvað áður en ég fer. Í kvöld hitti ég svo Mayu, sem var með mér í Egyptalandi!!!
hún er á ferðinni hér up north og ákvað að heimsækja mig
Ógissla fyndið, á mánudaginn fer Danny til York til að leika í kvikmynd
haahahahahah.. vinur hans er semsagt að gera kvikmynd, söguþráðurinn er mjög fyndinn og snýst beisikklí um tribute 80’s hljómsveitarkeppni, sem mér finnst auðvitað snilld
Sumir eru ógurlega stressaðir yfir þessu þar sem hann er ekki vanur að hafa sig í frammi heheheh.. en mér skilst að hann eigi ekki að segja neitt, bara vera þögli bassaleikarinn í einhverju bandi
Hver veit nema þetta verði hin næsta Full Monty og ég geti sagst hafa deitað kvikmyndaSTJÖRNU??
Ég er með auma fingurgóma. Er nefnilega svaka dugleg að æfa mig á gítarinn. Get núna spilað Stál og hníf eins og ekkert sé. Kunni Hjálpaðu mér upp fyrir, svo ég er orðin útilegufær. Að minnsta kosti í þá týpu útilegu þegar allir eru orðnir PISSfullir!
svo er ég þvílíkt að smakka traditional enskan mat þessa dagana. Smakkaði minn fyrsta Yorkshire pudding á páskadag, undarlegur.. en ekki svo vondur.. í gær heimtaði Neil að ég myndi panta mér Toad in a Hole, sem er sausages, mash, gravy í risa Yorkshire pudding. Mér leist nú ekki á blikuna en þar sem Neil borgaði brúsann ákvað ég að vera hugrökk
Þetta var ekki svo slæmt! Þetta voru herlegheitin:

svo drakk ég bjór með. Neil var algjör píka, fékk sér risotto og shandy!
þetta leit ekk imjög kvenlega út fyrir mig. Þori að veðja að afgreiðslukonan hafi haldið að þetta væri pöntunin hans!!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa, myndir
25 04 2006
“sá ég spóa suðrí flóa gefur Gurrý útí móa, bíbíbíbí”
…..var lagið sem að ég var með á heilanum þegar ég var að koma út göngutúr með kötlu áðan. Einfaldlega vegna þess að þetta var akkúrat það sem ég gerði. fyrir utan að ég held að ég hafi ekki séð spóa. Ég held að Katlan sé að taka vaxtarkipp því að hún drekkur og drekkur og ef hún fær ekki að drekka strax þá breytist hún (eins og svo oft áður) í demon-babyið úr incredibles. Akkúrat þetta gerði hún niðrí nauthólsvík, fjarri heimili eða öðrum vanarlegum gjafarstöðum. Móðirinn mun hafa misreiknað e-ð göngufjarlægðir og drykkjartíma með tilliti tilumræddds vaxtarkipps ( rookie mistake án efa) Þannig að eftir að hafa reynt að róa hana og ganga í eilífð þá var bara eitt í stöðunni: Fara með litla eldfjallið útí móa, vippa fernunum út og gefa henni það sem hún vildi. Eftir það var hún eins og lamb af sjálfsögðu.
knús dagsins, vikunnar og jafnvel bara mánaðarins fær Lovísan mín:) xxx
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
helgin í máli og myndum.. aðallega myndum..
23 04 2006svona í tilefni af því hvað ég er hæstánægð með nýja myndavélarsímann skelli ég inn einni myndafærslu. uppáhaldsmyndin mín tvímælalaust sú af skiltinu á klósettinu á Fibre, gay bar
sé alveg í anda þessi random searches.. “nei nei ég er víst bara að kúka..”
..góð helgi.. og vorið er svo sannarlega komið til Leeds.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa, myndir
23 04 2006
Mission failed.
Yndið hann Bjarki dánlódaði áðan e-i voða sneddí tónlist fyrir Kötlu til að róa hana fyrir svefninn og solliss. Þetta heitir “Baby Einstein Orchestra” og er beisikklí úber einfaldaðar, soft syntha, insturmental útgáfur af klassískri tónlist ( eeeuuuw). Eníhú. Þetta virkaði ekki betur en svo að núna er ég á leiðinni með Kötlu útí vagn og Bjarki, sem bugaðist eftir 2 lög, hrýtur uppí sófa í boði Einstein Orchestra
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Hahahahaha…
20 04 2006Við bjarki vorum að gera smá vídjó í nýja súper kúl vídjó forritinu okkar, ýýýýkt kúl…let me present: Hlátur Frumburðarins!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
video frá Egyptalandi
20 04 2006Held ég hafi fundið lausn á videovandamálinu
setti þau inn á MySpace og vonandi virka þau þar! Þið sem eruð með account ættuð allavega að geta séð þau. Hér er linkurinn á síðuna mína. Tsjekk itt.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
komin heim
19 04 2006
Þetta var nú meira ævintýrið. Alveg æðisleg ferð! Að mörgu leyti var ferðin töluvert öðruvísi en ég hafði búist við, ég hafði haldið að Egyptaland væri þróaðra.. eða sko, að sjá aðstæður sem fólk býr við og hvernig allt er að hruni komið í Kaíró sem er 22 milljóna borg. Samt sem áður fannst mér ekki eitthvað beinlínis óþægilegt að sjá hvernig fólkið lifði, þar sem allir virtust hamingjusamir og börnin voru engan veginn vannærð í útliti, voru bara ánægð á ösnunum sínum og litlu bátunum á Níl. En þetta var svo sannarlega eins og að fara með tímavél þúsund ár aftur í tímann. Nema þegar mennirnir í kuflunum á ösnunum töluðu í farsíma.
Mér fannst ég vera eitthvað svo lítil innan um pýramídana. Standa þarna innan um eitthvað sem var byggt fyrir 4500 árum!! Sphinxinn er pínulítill
En geggjað flottur auðvitað. Mesti “awe-factor”inn fyrir mig var samt að sjá Tútenkamonhlutann í safninu í Kaíró. Ég hefði getað staðið fyrir framan grímuna allan daginn. Að sjá allt gullið sem fannst í gröfinni hans og hvað það var lagt FÁRÁNLEGA mikið í hana var algjörlega MAGNAÐ. Og bara svo hrífandi saga hvernig gröfin fannst!!! Eina gröfin sem hefur fundist í heilu lagi ósnert því hún var svo vel falin, grafarræningjum tókst aldrei að finna hana. En 1922 fannst hún.. á síðasta degi leitarinnar, þar sem peningurinn til leitarinnar var búinn
Og hvernig hann stakk höfðinu inn um pínulítið gat á hurðinni með kertaljós og beið eftir því að augun vendust myrkrinu.. og svo bara sá hann allt gullið!!! Meiriháttar
Leiðsögumennirnir okkar voru góðir alla ferðina. Mér finnst svo fyndið, það verður að læra inn á sölumennina og leiðsögumennirnir vöruðu okkur við heheheheh til dæmis má aldrei taka við gjöfum.. því á endanum verðurðu að borga fyrir hana ef þú þáðir hana heheheh.. og stundum bjóða þeir upp á “ókeypis” úlfaldaferðir.. jájá ókeypis að fara upp á, en þú þarft að borga ef þú vilt komast af baki!
Aswan var spes. Gaman að sjá markaðina, en það er bara svo mikil synd hvað maður bara gefst upp eftir smá stund og nennir ekki að skoða, því áreitið er svo gríðarlegt!! En í Aswan sigldum við yfir til lítillar eyju og heimsóttum þorp, Nubian þorp, en það er semsagt þjóðflokkur sem heldur til að mestu í Egyptalandi. Þar fengum við heimagerðan mat hjá fjölskyldu og heimsóttum barnaskólann. Æði að sigla tilbaka. Þá lágum við á þaki bátsins og horfðum á stjörnurnar.
Abu Simbel var stórkostlegt. Engin smá stærð á þessu!! Og stórmerkilegt að heyra hvernig hofin voru flutt frá sínum upprunalega stað.. þegar stóra stíflan var gerð, þá varð það ljóst að Abu Simbel hofin myndu hverfa undir stærsta artifical stöðuvatn heimsins, Lake Nasser, sem myndi myndast við stífluna. Svo það var ákveðið að skera öll hofin í búta og færa þau til!!!! Væntanlega höfðu þeir engu að tapa, þar sem hofin voru hvort sem er dauðadæmd þar sem þau voru.. En þetta heppnaðist vel og þessum merku minjum hafði verið bjargað, í samvinnu við lönd um allan heim sem fjármögnuðu verkið. Það er svona það sorglegasta við allt saman, það er svo áberandi hvað Egyptar hafa sjálfir gert lítið til að finna og varðveita minjarnar sínar. Þetta er allt eitthvað lið frá öðrum löndum. En þetta kostar jú brjálæðislegar upphæðir, svo Egyptaland getur ekki haldið þessu við án aðstoðar.
Siglingin á the feluccas var ÆÆÆÆÆÐI!!!! Þrír dagar af einhverju letilífi og busli í Níl! Ekki á hverjum degi sem maður gerir það! The crew voru algjörir snillingar, bæði hressir og skemmtilegir og útbjuggu góðar máltíðir á bátnum.. þeir voru líka þvílíkt góðir við mig þegar ég var veik, gerðu handa mér eitthvað aníste, sem róaði magann þvílíkt.. Strandpartý og kaldur bjór, þorp og hof heimsótt.. já þetta var bara algjör snilld! Fyndið hvernig maður vaknaði svo um miðjar nætur við lætin frá moskunum í kring! Sofa Egyptar ekkert??? Klukkan þrjú á nóttunni hrökk maður upp með andfælum við að einhver var að GARGA í hljóðkerfið.. “AAALLLAAAHHHHHHH” með tilheyrandi slaufulaglínum. Mörg þorp blönduðust svo saman í gargi, svo það var bara vonlaust að sofa
Verst að ég get ekki sett inn video, því ég á mjög gott video af þessu, köllin til bæna heyrast MJÖG vel
Konungadalurinn auðvitað magnaður. Fórum þangað á ösnum, sem var athyglisvert, en því miður get ég ekki sagt að mér hafi fundist það æði
var nefnilega skíthrædd heheheh algjör aumingi!! Það er bara ekkert til að halda sér í og asninn minn lét ekki að stjórn!! Stoppaði sko ekkert þegar ég kippti í bandið og sagði “ússjj ússjj”!! Svo ég, ásamt 2 öðrum í hópnum, fórum ekki á ösnunum tilbaka
Þeir fara víst enn hraðar þegar þeir vita að þeir eru á heimleið og ég hefði bara ekki notið þess
samt gaman að hafa prófað! Einnig því við fórum á asnana á pálmasunnudag
:) Gengum upp á The Magic Mountain, hélt ég myndi bara detta niður dauð á staðnum, enda var kæfandi hiti og ég hafði lítið sem ekkert borðað í 3 daga vegna slappleika í maga. Luxor var mjög næs, enda ein hreinasta borg Egyptalands. En við skildum fljótlega af hverju hún er kölluð “the hassle capital of the world” því það var bara nánast ómögulegt að labba úti á götu, það voru bara sölumenn allt í kring og einhverjir menn sem vildu fylgja okkur um allt og bónorðin flugu hægri vinstri. Frekar óþolandi til lengdar.
Eftir Luxor var haldið til Rauðahafsins, eða til Hurghada. Þá var skoðunarferðahlutanum lokið og við tók afslöppun. Það var frábært! Sigldum á snekkju út að kóralrifunum og snorkluðum þar. Aðstæður voru ekki sem bestar enda frekar hvasst þennan dag svo það var mikill öldugangur. Mér gekk ekki vel í fyrstu tilraun að snorkla, gríman var ekki nógu föst á mér og vegna öldugangsins fannst mér eins og ég væri bara að drukkna, fékk smá innilokunarkennd þá að dýfa hausnum oní og treysta á öndunarpípuna, fannst eins og öldurnar myndu bara koma oní. En þetta lagaðist allt saman og ég var orðin eins og algjör pró í endann heheheh.. og þetta var ÆÐI. Ekkert smá gaman að sjá fiskana og kafarana og kóralrifið auðvitað. Myndavélin sem ég keypti var samt eitthvað algjört drasl greinilega því myndirnar eru ekki góðar
Eftir Rauðahafið var farið aftur til Kaíró þar sem ég hafði næstum þrjá heila daga. Leist ekkert á það fyrst, þar sem ég var alveg uppgefin og komin með nóg af sól, en Cairo grows on you á undarlegan hátt
Var orðin bara þaulvön umferðinni og gekk yfir stóru hringtorgin eins og innfædd, með brunandi bíla allt í kring..
Hópurinn sem ég var með var MEIRIHÁTTAR! Það skiptir öllu máli! Frá fyrstu nótt var ég í herbergi með ástralskri stelpu, Corinne, og við urðum algjörar samlokur. Saman 24 tíma sólarhringsins í 2 vikur! Hún býr í London og stefnan er sett á að hittast aftur sem fyrst. Gaman að hafa íslensku stelpurnar, það var nú meiri tilviljunin, og stefnan er sett á réttaball í haust
:) Þar að auki hékk ég mest með Mayu frá London og svo Tristan og Leigh, allt algjörir snillingar. Alveg var fyndið að komast að því hvað Tristan gerir.. hehe.. en hann er semsagt persónulegur butler drottningarinnar!! ekkert smá fyndið að sjá heimilisfangið hans “Buckingham Palace” heheheheh.. Hann má fá heimsóknir, svo hver veit nema maður skelli sér í tesopa í höllinni
Auðvitað var spes lið með líka, eða réttara sagt Kínverjarnir, sem héldu sig mest út af fyrir sig.. og þar var allra gráðugasta manneskja sem ég hef séð um ævina heeheh í hverjum matartíma á the felucca var eins og hún hefði aldrei fengið að borða! Hún sat við diskana, rétti aldrei neitt áfram og aðrir þurftu að segja henni að aðrir ættu eftir að fá.. og ég taldi diskana oní hana eitt kvöldið.. á meðan ég borðaði tvo litla, borðaði hún SJÖ!!!
þetta var alveg ótrúlegt að sjá.
Eins og sjá má tók ég FULLT af myndum og hér er slóðin. Uppáhaldsmyndin mín er þessi hér
Ég fílaði mun betur að fara á úlfalda en asna og fór tvisvar í úlfaldareið.
Búin að hafa það mjög gott frá því að ég kom heim. Páskadagur var meiriháttar, fjölskylda Danny er yndisleg og það var gott að vera í alvöru fjölskylduumhverfi, ég hef ekki verið í þannig síðan um áramótin.
Já semsagt, þetta var allt algjört ævintýri og af því að þetta var svo allt öðruvísi finnst mér eins og ég hafi verið miklu lengur í burtu! Vonandi drápust þið ekki úr leiðindum við að lesa þetta!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
14 04 2006

Þessi unga snót hún Sigfríður, aka Eibí beibí, á ammæli í dag! TIL LUKKU MEÐ DAGINN!!! kusskusskusss! Og í tilefni af því ætla ég að gera tilraun tvö til að komast í fyrsta partýjið. Ég hélt reyndar að það væru e-r álög á mér í gærkvöld þegar mér varð e-ð geðveikt flökurtog var e-ð svona flensuleg. Ég hefði reyndar bara farið samt. en allt er í gúddí og ég er búin að setja hvítvín, bjór og fullt af mama’s own mjólk í kæli og kominn með driver og pössun. All good to go. Ég reyndar komast að því að ég á ENGIN djammföt!! og það er !”#$#”%$”# föstudagurinn langi þannig að ég get ekki reddað því…urrrg. Það er nebbla rúmt ár síðan að ég hef e-ð pæjað mig almennilega upp, ó-tvílifra það er ( híhíhí elska þetta orð tvílifra…híhí – Þakkir til þorbjargar fyrir það) Þannig að núna verð ég að djamma geðveikt last season…meeeen. Amk passa ég aftur í gallabuxurnar mínar þannig að ég þarf ekki að djamma í óléttubuxum, það hefði verið svoldill moodbreaker. En jevlar hvað ég hlakka til, ég er eins og Gurrý 5 ára á jólunum!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý








Nýleg ummæli