já ég verð að standa mig á meðan fyrrverandi eiginkonan er að skoða pýramída. Það helsta í fréttum er að ég er búin að klippa af mér allt hárið. Þetta er liður í prógramminu “operation: MILF” sem ég og þönderinn erum í, þannig að off it all went. ég hef ekki verið með svona stutt hár í 3 ár og meeeeen hvað þetta er þægilegt!! Annars er ég búin að vera fullu síðustu daga að baka fyrir kallinn minn sem á ammæli á morgun!! TIL HAMINGJU BJARKINN MINN!!! xxxxxx og í aþþí að hann er orðinn svo gamall þá höfum við eldri fólka kökuboð á morgun…sem þýðir bakstur fyrir mig. En ég er þar af leiðandi orðin proper domestic goddess! farin að segja hluti eins og “sletta í eina köku” sem bara vanar húsmæður mega segja. Og líka aþþí að ég er búin að vera svona óendanlega mikil húsmóðir þá fæ ég verðlaun. Einn ískaldann Beck´s….grrr….skál!
FARIN!
31 03 2006Keypti mér nýjan síma í dag. Hef aldrei eytt svona miklu í síma, held að þessi hafi kostað meira en allir hinir sem ég hef átt til samans! Liggur við allavega. Þó töluvert ódýrari en heima. Ég er semsagt stoltur eigandi Sony Ericsson k750i, í fyrsta sinn sem ég á ekki Nokia (er næstum með samviskubit, er nefnilega team player frá helvíti) og ég er búin að vera að missa mig í að fikta í honum í dag. Hugsaði mér gott til glóðarinnar að geta sent óóógissla skemmtileg mms frá Egyptalandi.. en neeeeiii, eftir nokkur símtöl við þjónustuver Og Vodafone og stillinga-tilþrif kom í ljós að það er EKKI HÆGT að senda mms frá Egyptalandi!!!!! Enginn reikisamningur!! Ég er sko EKKI sátt! Óendanlega svekkjandi þegar ég var búin að sjá alla skemmtilegu möguleikana fyrir mér “Lovísa-á-úlfalda”, “Lovísa-og-Sphinx”, “Lovísa-snorklar-í-Rauðahafinu” en neeeeiiiii…
Á þó hressan hringitón. Mun æpa ÉG ER HERMAUR í hvert sinn sem einhver hringir.
En já. Ég er semsagt farin á vit ævintýranna og í 25-35 stiga hita. Veit EKKERT hvernig á að pakka fyrir svona ferð en er ekkert að stressa mig of mikið. Vonandi kem ég smá sólbrún og með upplitað hár tilbaka og heldur betur reynslunni ríkari. Hver veit nema ég nái að blogga nokkur orð frá einhverju netkaffihúsi eða eitthvað, en annars verður GurrPurr bara að spýta í lófana og vera duglegri með pistlana
Hafið það gott þið hin xxxxxxxx
ykkar alltaf
Lovísa
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Leti-Lovísa
30 03 2006Tónlistaruppeldið er hafið. Fékk geisladisk með “aðeins” 194 uppáhaldslögum Danny
Hann virðist hafa fínan tónlistarsmekk svo ég er sátt. Það mun þó taka dáldinn tíma að komast í gegnum þetta. All in good time, my child. Upphaflega voru lögin 212 en hann ákvað að skera niður þar sem hann hefði líklegast got too carried away. Góði niðurskurðurinn
Einstaklega letilegir dagar síðan fríið byrjaði. Er ekki byrjuð að pakka en þó búin að taka ýmislegt saman og redda hinu og þessu.
Við Ida skelltum okkur á live tónlist á The Wardrobe í gær, mjög gaman og ég mun fara þangað aftur, alveg pottþétt! Elska svona stemningu. Þar gaf maður sig á tal við mig og spurði svo auðvitað hvaðan ég væri, ég sagðist vera íslensk og honum fannst það auðvitað ægilega spennandi (merkilegt hvað Englendingar missa sig yfir þessu) og svo spurði hann eftir smá stund: “Ertu flugfreyja?” ég bara “WHAT hvernig vissirðu??” og þá svaraði hann “Hefurðu einhvern tímann séð Sopranos?” hahahahahahah.. Gat nú verið
Ef ég mætti velja superpowers, þá myndi ég vilja getað stoppað tímann. Reyndar kom Gurrý með enn betri hugmynd fyrir mig; að geta breytt þjóðerni fólks. Já takk! Myndi gera allt auðveldara. En hver segir svosum að lífið eigi að vera auðvelt?
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Damn you flensa!!!
28 03 2006ég verð vanalega aaaaldrei lasin, eða amk voða sjaldan en svo akkúrat núna um helgina þegar ég ætla að fara á fyrsta semi djammið þá nottla vakna ég með hita og e-n vibba! bloody”#$%%&%”# brjáluð. Þannig að ég og Katla vorum í 2ja manna partýji í Drápuhlíðinni á laugardagskvöldi yet again…Arnar var sum sé með innflutningspartý þannig að kallinn fékk frí frá því að hjúkra kjellingunni. En ég var ekki glöð með þessa flensu…djöfull langaði mig í nokkra bjóra. En það verður bara að bíða betri tíma.
Undanfarnar vikur hefur hagstofan verið að reyna að ná sambandi við mig en þau aldrei náð í mig eða ég í þau til baka þar sem þetta er jú eitt númer fyrir milljón manna stofnun og enginn veit hver var að vilja ná í Gurrý von drápuhlíð. ( don´t they know who I am!?!?!?) aaaallavegana, þá náðum við loksins saman, ég og hagstofan, og þá kemur í ljós að nafn frumburans er OF LANGT fyrir hagstofuna!!!! what??? þá tekur tölfukerfið bara e-m ákv. mörgum stöfum og Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir er víst umfram það. Konan bauð mér mjög fallega að breyta nafninu bara í Bjarkadóttir því að það væri jú styttra!!! what??? ok kannski ekki það fáránlegasta þar sem bjarki er jú kallaður bjarki, en hún veit þaggi neitt þannig að stupid tillaga. En við sættumst á að hún myndi bara vera Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir. Sem er líka stupid því að hún er eila alltaf kölluð katla. damn you hagstofa!
Svo gerðist annað spes í gær. Ég var búin að pannta skrilljón myndir af bonusprint.com fyrir langalöngu, og var búin að fá hluta þeirra um daginn e-n tíman, ég nennti ekki að tékka á því hvar restin var. Var of bissí að láta drekka út mér mjólk. Svo í gærkvöldi þá fékk ég stóran pakka frá póstinum, og þá voru það aftur myndir frá bonusprint. Í þetta skiptið voru allar myndirnar komnar, þannig að nú á ég flestar í tvíriti, en svo voru e-r ókunnugar myndir þanna líka, fullt af dýramyndum og e-ð sem ég kannaðist ekkert við. svo var ein mynd af manneskjum þarna og þá er það litli bróðir hennar lovísu!!! frekar skrýtið svona þar sem ég man ekki eftir að hafa verið að skoða ljón með honum nýlega. ég hringdi í hann og jújú hann var að pannta myndir, en hvorugt okkar var e-ð að gera það í gegnum lou þannig að þetta er hið furðulegasta mál. Ekki nema að þeir geri bara ráð fyrir því að allir á íslandi þekkjist og skelli öllum íslenskum pönntunum bara saman.
Annars er allt gott að frétta héðan, Katla er fullkomin og það er bara ekkert meira við það að bæta:)
hey! þetta persónuleikadót sem lou var að setja inn er svo sneddí að ég ætla að herma:p hérna er það http://kevan.org/johari?name=Gurry
djöfull er ég búin að vera dúleg að blogga. verð að leggja mig.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Svara takk :)
28 03 2006Stal þessu af Svönu tíhí.. en spennó! http://kevan.org/johari?name=LovisaArna eða vill maður vita hvernig aðrir myndu lýsa manni? Spurning..
Hjónasvipur? neeeee æ dónt þínk só heheheh..
5 sumarbolir keyptir í gær. Egyptaland er ansi góð afsökun. Þarf kannski eins og einar stuttbuxur í viðbót. Geng í það þegar veðrið skánar aðeins. Ég er alveg stjörf inní herbergi, þori ekki að hlusta á tónlist af ótta við að missa þá af ef pósturinn bankar á hurðina heheheh á von á sundfötunum sem ég pantaði og VERÐ að fá fyrir Egyptaland, en þau koma örugglega ekki fyrr en á morgun svosum. Talaði sérstaklega við Matt um að plís opna hurðina ef það er bankað, in case að ég væri í sturtu eða eitthvað, það er nefnilega svo furðulegt að hann opnar hana ALDREI nema hann sé viss um að það sé til hans!! svo bara þegar kærastan kemur og pizzur sem þau panta. Mjöööög skrítið. Ste vinnur allan daginn og ef einhver þarf að koma og tékka gasmælinn og soliss, þá verður að púsla því í kringum mig og Idu þótt Matt sé heima allan daginn, því hann bara opnar ekki hurðina!! Já það er margt undarlegt í þessum heimi.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
ellefti september..
27 03 2006Ég var að ljúka við að horfa á Loose Change, heimildarmynd um 9/11 þar sem settar eru fram spurningar um hvað “raunverulega gerðist” þennan dag.. Vægast sagt frekar sjokkerandi og ég vona innilega að þetta sé bara enn ein samsæriskenningin.. Annað er bara of hræðileg tilhugsun. Oj bara. Ansi sannfærandi samsæriskenning þó. Mæli með þessari mynd.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
spennó spennó
26 03 2006ég fæ bara flassbakk til þjálfunarinnar
hlakka til að hitta alla í sumar sem voru með mér í hóp, yndislegt fólk
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
PÁSKAFRÍ!!
23 03 2006Já gott fólk, ég er komin í mánaðarlangt páskafrí. Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst þetta system hálffurðulegt, þar sem eftir þetta langa frí fer ég aftur í skólann í tvær vikur og þá er ég endanlega búin!!
Ég ætla að sjálfsögðu ekki að sitja auðum höndum. Eins og flestir ættu að vera búnir að heyra, þá liggur leið mín til Egyptalands. Eftir átta daga verð ég um borð í Lufthansa vél til Kaíró. Ég þyrfti svona að fara að hugsa hvað ég ætla að taka með mér og hugsa sem minnst um panikk svona sléttujárnslaus í tvær vikur út í miðri eyðimörk
Þeir sem vilja sjá hvert leið mín liggur geta farið á þessa slóð og skoðað ferðina sem heitir Felucca Journey.
Þegar ég kem heim þarf ég að skrifa tvær ritgerðir sem á að skila í byrjun maí, það ætti ekki að vera svo voðalegt.
Fór í fyrsta sinn inn í The Corn Exchange hér í Leeds með Danny um daginn. Hvað var ég að SPÁ að hafa ekki uppgötvað þetta fyrr?? Fullt af sætum, skemmtilegum og litríkum búðum! Ég myndi pottþétt mæla með því að fara þangað inn við ferðalanga hér í Leeds. Ég tapaði mér alveg í “beads”-búð, fullt af perlum og steinum og eyrnalokkafestingum ýmiskonar, svo nú get ég farið að föndra eigin eyrnalokka
Ég hlakka mikið til. Sé þó fyrir mér að þetta verði mikil æfing fyrir fínhreyfingar, en það er víst ekki mín sterkasta hlið heheheh
Það er eins og fólk sé að fatta að það sé stutt eftir, félagslífsprógrammið er alveg að sliga mann
Þessi önn hefur líka verið öðruvísi en sú fyrri, þar sem minni tími hefur farið í að eignast nýja vini, nú er maður bara að “hang out” með þeim sem maður kynntist fyrir jól. Og Neil líka fluttur til Leeds, svo ég hef getað hitt hann oftar. Pökkuð helgi framundan; matur og pool með Idu og unglækninum í kvöld, drinks með Ste og félögum annað kvöld, York með Danny á laugardag, tvö afmælispartý á laugardagskvöld (eitt hjá vinkonu minni og eitt hjá vini hans).. úff..
Svindl að ég geti ekki sýnt hann alvöru vinum mínum (þar sem þeir eru jú allir á Íslandi *grenj*).. á meðan ég mun smám saman hitta allt gengið hans og bræður.. jæks.. Vinir hans eru jú að missa sig í “Iceland-supermarket”-bröndurunum skilst mér heheheh þora örugglega EKKERT að segja við mig heheheh… fyndið hvað fólk heldur að það sé að finna upp hjólið með svona bröndurum
þetta er orðið næstum því jafnfyndið og “Klovísa”!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
guinness marinering
21 03 2006
Dublin var snilld. TAKK FYRIR MIG ELÍN
:)
Guinness, grænir hattar, írsk þjóðlagatónlist, grúppíast, Temple Bar, spjótið, parísarhjól, Bailey’s kaffi, grænir glimmersmárar, Wagamama, Harold Pinter, ælandi housemate, hjálpaðu-mér-upp, Guinness, næturklúbbur, Celt, skotnir Írar, bjór, Grafton Street, Guinness, íslenskt hár, Penney’s, slúður, panini, sms, Guinness, Guinness, Guinness..
svoooo gaaaman
:) Hér eru myndir!
Fékk milljón sæt sms frá Danny mínum meðan ég var í Dublin sem hlýjuðu mér um hjartarætur. Merkilegt alveg, ég á bara erfitt með að skilja að svona sætur og góður strákur skuli sjá eitthvað við mig! Heppilegt þó fyrir mig
Fyndið, ég myndi ALDREI blogga um hann ef hann væri Íslendingur hehe það “bitnar á honum” að hann skilur ekki íslensku múohohohoooaoaahaaah.. Við áttum kósí mánudagskvöld í gær og ég var næstum búin að kreista hann í klessu. Fröken fóbísk er að láta undan og “the walls are a tumbling down”.. Beta (og aðrir sem eru forvitnir), þetta er fyrir þig!
Behold nýja kærastann! Mér finnst hann auðvitað hönk dauðans. Og proper indie-boy. Maður er ekki með Leedsara fyrir ekki neitt!
Og ég byrja að fljúga aftur 1.júní. Svo heimferð verður einhvern tímann fyrir þann tíma. En ég ætla ekki að bóka alveg strax. Meika það bara ekki.
jæja Paddy o’Lovisa segir over and out í bili..
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa, myndir
18 03 2006
Velkomin í heimin Tinna Marin!:) og til hamingju Þóra og Maggi!!!
meeeen ég er tipsy. ég er búin með einn bjór og ég er tipsy. sad but true. Samt ógessla gaman og afskaplega hagkvæmt. ég er t.d. að fara í fyrsta partýjið næstu helgi, þar sem ég tek þátt í drykkju þe, í næstum ár og ég huxa að 3 bjórar séu alveg meira en nóg. jebbs.
Well, ætla að halda að horfa á will farrel og drekka öl. hey já, bjarki er búinn að gera .mac síðu fyrir okkur þannig að núna get ég verið léleg að blogga á tveimur stöðum! anyhoo…þetta er síðan: http://web.mac.com/bjarki.jonsson/iWeb/Site/Blog/Blog.html
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Nýleg ummæli