Lítil Sigurborg Katla komin í heiminn:)
9 01 2006Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý, myndir
ný kynslóð karaokedrottninga..
9 01 2006..því á þrettándann kom litla dúllan þeirra Gurrýjar og Bjarka í heiminn. Og almáttugur hvað hún er brjálæðislega falleg. Vil nota tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með litla kraftaverkið, sem var einnig svo tillitsöm að koma í heiminn áður en ég hélt tilbaka til Leeds, svo ég fékk aðeins að skoða hana.
Ég hef svosum ekki þorað að blogga fyrr, vildi ekki steal Gurry’s thunder og leyfa henni að tilkynna, en ég hugsa að hún hafi um annað að hugsa en að blogga
Ég meina, fólk þarf að vita af þessu til að óska henni til hamingju, svo ég tók bara af skarið heheh.. En ekki séns að ég setji inn myndir og upplýsi um nafnið, hún gerir það
VELKOMIN Í HEIMINN KARAOKEPRINSESSA!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
curry, rauðvín, ostar… og dáldið meira rauðvín..
6 01 2006Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa, myndir
minn hinsti dagur…
4 01 2006Þá er það ákveðið. Ég vinn ei meira fram að goti. Ekki það að ég sé orðin þreytt eða e-ð heldur er sú sem tekur við af mér komin og það er lítið að gera fyrir okkur báðar. En ég er samt í mjög góðri stöðu hérna reyndar, ég má alveg mæta og vera til taks fyrir söbbinn ef ég vil því að skiljanlega vilja þau hafa hana hér til taks ef ég skildi fara í gang. En þar sem starfið er síður en svo tveggja manna og ég ekki mikill tölvudundari þá ákvað ég bara að hættessu. Ég finn mér e-ð að dunda heima. Ég verð reyndar að búa til e-ð brjálað prógram held ég svo að ég morkni ekki bara út leiðindum.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
We made it!!
3 01 2006Það var sko skálað í kampavíni klukkan 00:01 þessi áramót hjá kallinum og mér, við náðum að vera barnlaus út árið 2005!! Litla lús sýndi fjárhag foreldra sinna mikinn skilning með því að hemja sig aðeins. En í staðin lætur hún alveg örugglega bíða eftir sér. Ég er alveg búin að gera ráð fyrir því að ganga slatti framyfir og það kæmi mér ekki á óvart að ég yrði bara sett af stað á endanum, en samt sem áður var það kannski full mikil bjartsýni hjá mér að ætla óþolinmóðustu manneskju í heimi – aka me – að bíða salíbunuróleg eftir þessu. Ég er ekki að meika svona bið. not my cup of tea. Þannig að þá er bara að vinna og labba og synda og e-ð…hafa bara nóg að gera þangað til að henni hentar að koma. Það væri samt svo fallega gert af henni að láta það henta sér sem fyrst þar sem ég held að andlitsdrættir og liðamót séu langt komin með að hverfa vegna bjúgs. fallegt.
En takk fyrir árið 2005 allir saman! Gott ár, og held ég bara það viðburðarríkasta í mínu litla lífi. Þetta var ár pakkans, þar sem við kallinn keyptum íbúð og honum tókst að barna mig:) nokkrum mánuðum fyrr en planað var en það slapp fyrir horn. Svo nottla usa-vegas-ny-niagara ferð sem var snilld og margt margt fleira…
Annars er ætla ég að fara að stressa mig aðeins upp fyrir útsendingu núna…kannski svínvirkar það;) who knows.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
tilbaka eður ei?
2 01 2006Lærdómurinn gengur með eindæmum illa. Er alvarlega að spá í að fara fyrr til Leeds. Þar er kannski meiri vinnufriður. Ég er samt alveg á báðum áttum. Mig langar svo að sjá litlulús nýfædda – svosum engan veginn víst að hún fæðist fyrir bókaðan brottfarardag.. – svo ég er mjög ráðvillt. Spurning um að sparka duglega í rassinn á sjálfri mér og læra á Hlöðunni á morgun – ef það gengur illa, þá dríf ég mig tilbaka. Annars ekki. Úff erfitt að spá í þetta.. ég er nú meiri auminginn. Urg.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
litið um öxl..
1 01 2006
Þá er 2005 liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur tilbaka. Gott ár. Líður þó fyrir samanburðinn við 2004, sem svo sannarlega kemur aldrei tilbaka og verður líklegast aldrei endurupplifað. Árið 2005 var fjölbreytt – ég skipti um starf, eignaðist nýjan kæró og hætti með nýja kæróinum, flutti enn einu sinni til útlanda, miklar breytingar í nánasta vinahópi (sem leiðir meðal annars af sér Barnaárið mikla 2006), nýir vinir og nýir möguleikar.
Ég get ekki annað sagt en að ég hlakki mikið til að sjá hvað 2006 býður upp á. Nú þegar liggja fyrir ný ævintýri í að minnsta kosti 6 mánuði – Parísarferð í janúar, heimsóknir til mín í Leeds, Egyptaland í apríl – og fleiri munu svo sannarlega bætast við. Hlakka líka til að kjassa litlu stúlkurnar þeirra Þóru og Gurrýjar þegar þær koma í heiminn núna rétt bráðum og versla sæt föt á þær í Ameríku næsta sumar. Hlakka líka til að koma svo heim aftur og vera síðasta bókmenntafræðiárið í HÍ í kotinu mínu á S37. Árið 2006 skal líka vera síðasta árið í bili þar sem ég pakka niður öllu og flyt! Alveg komin með ógeð
Ég vona að allir hafi getað litið sáttir um öxl og reynslunni ríkari, með væntingar um ný ævintýri í farteskinu. Takk til þeirra sem komu við sögu í lífi mínu á árinu
wow u all
Lovísa
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa, myndir



Nýleg ummæli