jólavorhreingerning

26 01 2006

Hvaða tryllitæki er þetta, gætu sumir spurt sig! Enn aðrir gætu spurt hvaða ógeðslega teppi þetta væri!!! Jú, ég hef svör við báðum spurningum.

Þetta er ryksuga heimilisins. Fáránlegri ryksugu hef ég aldrei séð í lífi mínu. Hún lítur kannski sakleysislega út á myndinni, en ónei, ekki er allt sem sýnist! Hún er brjálæðislega þung og eins og sést þá er “skrokkurinn” á henni frekar hár – og hann sveigist ekki til. Stúturinn sem stendur uppúr henni er það sem maður á að nota til að ryksuga inní horn og niður stiga og svoleiðis. Maður getur dregið hann út en þarf svo að halla öllu tækinu til þess að komast almennilega að! Ekki er hægt að beygja allan stútinn, það sem ekki getur beygst er eins og einn og hálfur handleggur eða svo – sem gerir manni engan veginn auðvelt fyrir. Svo maður er einhvern veginn að lyfta stútnum og beygja hann í mjög óþægilegri stöðu, þar sem það þarf að lyfta ansi hátt til þess að geta notað hann! Til þess svo að ryksuga venjulegt flatt gólf, þarf svo að draga hana að sér og setja “nefið” á henni niður. Um leið og þú leggur hana frá þér og nefið skýst aftur upp, spýtir sugan útúr sér vænum skammti af ryki og ógeði. Hentugt!!

Þessar ryksugur eru voðalega vinsælar hér og strákarnir skilja ekkert í okkur Idu sem fussum og sveium yfir þessu. En góðu fréttirnar eru þær að eftir MIKIÐ puð (og tilvonandi kryppu á bakinu ásamt fleirum bakmeiðslum) eru stigarnir orðnir hreinir! Halelúja!

Og já, teppið.. – … er teppið á herberginu mínu. (og það er skárra á mynd en það er í raun og veru). Oj.

Allavega, ég er farin til Parísar. Ég er nefnilega poppstjarna að fara að syngja á tónleikum.


Actions

Information

Skrá ummæli