Það verður sko ekkert áfengi sett inn fyrir mínar varir fyrr en eftir Lady&Bird tónleikana í París næstu helgi. Lifrin getur ekki meir í bili. Þetta hefur verið alveg rosaleg vika og í dag er ég alveg búin á því.
Ég er alveg að uppgötva Headingley hverfið hér í Leeds. Vissi alveg að það væri rosalegt partýhverfi þar sem eru barir í röðum.. en vissi að það er stúdentahverfi svo fordómafulla Lovísa ákvað inní sér að þar væru bara átjánáragrislingar í gelgjulátum. Þar skjátlaðist mér algjörlega. Þar eru ekki gamlir pervertar og ekki of ungt lið, heldur alveg mátuleg blanda. Allavega um helgar, því þá er “dýrara” að djamma og stúdentarnir kjósa frekar að djamma í miðri viku. Ofsalega myndirlegir menn í hverju horni og bara almennt stuð
Vildi óska að vinkonur mínar væru hér, þær myndu LOVE IT að fara þangað.. tók massa söknunarkast á föstudaginn, þegar ég var að djamma með tveimur stelpum sem voru meira uppteknar af því að stara á fallegu mennina í kring í stað þess bara að skemmta sér. Mig langaði svo að dansa frá mér allt vit. Hefði verið gott að hafa vinkonurnar á þeirri stundu.
Í gær var ég í houseparty, þar sem einn íbúanna er plötusnúður. Svona týpískt enskur DJ með nettan beni-fíling. Hann hélt DJ-keppni, sem snerist beinlínis um að velja sér lag úr vínyl safninu og mixa það saman við lagið á undan. Þarf að stilla hraða og svona og láta þetta passa. Ég vann. Fékk súkkulaði í verðlaun. Get ekki neitað því að mig langar rugl mikið í svona plötuspilarakit
heheheheh.. alveg leyndir DJ draumar í gangi hahaahahah.. nottla ekki erfitt að mixa eitt lag.. vafðist þó fyrir sumum heheheh..
Húsfundur haldinn um daginn. Ég spurði Idu point blank hvort við mættum búast við oftar í framtíðinni að vakna klukkan hálfsjö á morgnana við brjáluð læti í eldhúsinu. Hún svaraði með illilegu glotti “maybe… if it’s dirty…” og ég sagði “það er FÁRÁNLEGT og þú veist það!” og þá fór hún í algjöra kleinu, sagðist ekki hafa gert það viljandi og ég spurði af hverju hún hefði þá svarað maybe if it’s dirty!! Enn meiri kleina. Fékk svo sms daginn eftir þar sem hún var voðalega sorrý. Svo allt er fallið í ljúfa löð á ný. Hún er greinilega ekki vön að einhver gagnrýni aðferðir hennar, heimildarmaður minn í Köben segir að hún vaði bara yfir fólk þar og enginn mótmæli, svo henni varð örugglega mjög brugðið. Og ég verð að muna að þrátt fyrir allt, er ég sú eina sem hún á að hér. Má ekki vera of vond við hana. Ætla þó ekki að láta hana vaða yfir mig, ónei. Hún verður aðeins að læra smá samskiptahæfileika, og ef hún getur ekki tekið smávægilegri gagnrýni þá fer illa fyrir henni í lífinu. Svo var soldið fyndið að sjá hvernig fundurinn snerist einhvern veginn í höndunum á henni. Hún hafði ætlað að fá sínu fram og varð mjög óhress með að við hin þrjú værum sammála um einhverja hugmynd sem ekki var hennar, hún hafði líka heimtað að fá að sjá reikninga til þess að “sanna” að hún væri að borga óeðlilega mikið, en svo kom í ljós að Matt er að borga mest svo hún þarf að punga út ögn meira… hehehe…
Eitt sem Íslendingar, sem ekki hafa búið í öðru landi, fatta ekki að þakka fyrir á hverjum degi. Það er heita vatnið í jörðinni sem gerir okkur kleift að hafa hlý hús. Þetta er algjört djók hér í Englandi þegar maður er vanur svona lúxus. Húsið mitt er náttúrulega alveg glatað, illa einangrað og bara einfalt gler í gluggum.. og það er bókstaflega vindur í herberginu mínu stundum. Rúmið mitt er við útvegg og ég verð að sofa með risastóra pullu upp við vegginn svo ég deyi ekki úr kulda. Svo er ég með sæng og teppi yfir mér. Vatnsflöskur haldast kaldar í herberginu mínu yfir nótt. Ég er bara nýfarin að venjast þessu, átti almennt erfitt með svefn fyrst.
Keypti eins hatt og ég týndi
sem betur fer var hann enn til!!
Dreymdi undarlega. Að ég hefði fundið buxur nýkomnar úr þvotti þar sem vasarnir voru troðfullir af klinki. Og að ég væri að verða of sein á mikilvægt stefnumót. Vaknaði bara stressuð! Ráðning í klinkið, anyone?
Nýleg ummæli