jáh ég sé sko ekki eftir því að hafa stoppað í Köben. Það var alveg sjúklega gaman!!
Ég kom á staðinn hálfdösuð og alveg í ruglinu, því ég hafði verið í stressi fyrir flugið. Þegar ég var mætt út a lestarstöðina í Leeds til að komast á flugvöllinn í Manchester, uppgötvaði ég að ég hafði gleymt fartölvunni heima. Tíu mínútum áður en lestin átti að fara. Ég hentist heim til að sækja tölvuna og náði næstu lest. Sem betur fer höfðum við Desiree ákveðið að taka lestina snemma. Taskan mín var viðbjóðslega þung og ég var upp á náð og miskunn check-in starfsmanna komin – endalausar þakkir til gæjans sem tékkaði mig inn frá Köben sem hallaði sér yfir borðið og hvíslaði “taskan þín er ALLTOF þung, og þú ættir eiginlega að borga fullt af pening.. en… hér er boarding passinn þinn.. góða ferð”. Mig langaði að knúsa hann. Gaf honum geislandi bros og óskaði honum gleðilegra jóla. Allavega, síðar kom í ljós að ég hafði líka gleymt náttfötum og sléttujárninu mínu. Mamma á sem betur fer sléttujárn og ég keypti náttföt í H&M.
Það var svo bara djammað útí eitt í Köben, Dóri bættist í hópinn og við djömmuðum til sirka sjö um morguninn, slysuðumst inná bar sem við vissum ekkert að væri opinn svona lengi. Snilld. Ég vakti semsagt í 27 tíma og svaf svo í fjóra. Fór í Tivoli ansi heilsulaus með Dóra í eitthvað sem átti að vera rómantískur göngutúr en við vorum bara í einhverri kremju í mannmergðinni allan tímann. Samt æði. Hitti auðvitað Jónsa og Ólu ásamt Regínu þar
Maður hittir ALLTAF einhverja sem maður þekkir. Við Dóri rákumst líka á Sigmund Davíð og spúsu á Strædet. Köben er minni en litla Reykjavík stundum.
Blue Cheese borgari á Chili, glögg og æbleskiver, julebryg, Bagel Co.Strædet og Strikið, Bredgade og Frederiksberg…..
æh þetta var bara æði. nokkrar myndir hér.
Ég er semsagt komin heim
vei vei vei vei vei vei!!
Nýleg ummæli