Ég held að ég hafi örugglega dáið í e-u freak lyftu slysi í fyrra lífi. Mig dreymir amk aðeins of reglulega e-ð svoleiðis. Ég er mjög gjarnan í ca 100 hæða húsi í hrapandi lyftu…ekki lítill magafiðringur það…kannski eretta e-ð undirliggjandi Trauma frá því að ég var plötuð í freefall tæki í london fyrir 5 árum ca… bölvaður sé sá sem það gjörði.
…Svo er Írland á skítalistanum mínum akkúrat núna. það stal kallinum mínum.
29 11 2005
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Sumir hlutir eiga að vera bannaðir!
27 11 2005Eins og t.d. að láta óléttar konur fá flensu! þetta er mesti vibbi sem ég hef upplifað! í fyrsta lagi varetta versta flensa sem ég hef fengið síðan ég var e-ð oggupons, og svo af óléttunni þá var ég svipt öllum þeim lúxus sem vanalega fylgir því að vera lasin, þ.e. fá að liggja uppí sófa allan daginn með spólur, kók og nammi. Þessum lúxus var ég sumsé svipt einfaldlega afþví að ég gat ekki legið í sömu stellingu í meira en 10 mín út af því að ég er með grind áttræðrar konu akkúrat núna, en samt gat ég heldur ekki staðið aþþí að eg er með grind og fætur áttræðrar konu líka…meeeen….þannig að ég þurfti sumsé að vera að snúa mér á 10 mín fresti sem er ekki svo auðvelt í núverandi ástandi…djöfull var erfitt að vera ég:p …..en svo fór ég líka að fá svona fyrirvaraverki og ég fór e-ð að lesa mér til um þá og þá fann ég bara ” til hamingju! þetta er merki um að barnið þitt sé á leiðinni á næstu 2 vikum!” til hamingju!?!?!!?!!? ekki að ræða það! þetta barn kemur ekki i heiminn á árinu 2005, þannig að nú erða bara tappinnn í gatið….en sumsé, þetta er búin að vera yndisleg helgi;) ladída…
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
gott vont
26 11 2005Oh ég er svo ensk. Sit hér við tölvuna með te og mince pies. Fyrir fáfróða, þá eru mince pies svona hefðbundnar enskar jólakökur, með einhverju sultujukki inní. Ég smakkaði mína fyrstu um daginn í seminar (þar sem einn kennarinn hellir alltaf upp á te og býður stundum upp á smákökur) og líkaði vel. Reyndar geri ég ráð fyrir að ég hafi borðað þetta sem barn hér í Englandi, svo fyrstu mince pie sem ég man eftir allavega!
Mince pies myndu flokkast undir góða hluti hér í Englandi. Góður hlutur sem ætti að vera á vonda listanum fyrir að vera góður! Hmmm.. pæling.. kannski ég ætti að búa til lista yfir góða og vonda hluti.. margir hlutir sem geta verið báðum megin!
Gott við England:
- hér fæst ekki uppáhalds Doritos tegundin mín. Þar af leiðandi kaupi ég hana ekki.
- maður fer snemma á djammið og þar af leiðandi snemma heim og fær svefn!
- vodka red bull og moscow mule.
- ekki svo kalt. Allavega ekki enn.
- ódýr flug og ódýrar ferðir um allan heim.
- enskudeildin mín. Klassamenntun sem maður fær þar!
- fjölbreytt djammlíf.
- stúdentaafslættir alls staðar!
- cheddar ostur.
- ódýr matur.
- cheese coleslaw. OMG hvað það er gott!!
- ófeimnir karlmenn.
- The X Factor með Simon Cowell og Sharon Osbourne. Snilld.
Vont við England:
- vatnið úr krönunum. Er þó hætt að kúgast þegar ég bursta.
- snakkúrval ýmiskonar.
- Cheddar ostur. Of góður og skelfilega fitandi, eða svona 40%.
- hvítt brauð! Það er með ólíkindum hvað það er erfitt að finna gróft brauð! og þá meina ég GRÓFT, ekki eitthvað svona samsölusamlokubrauðsgróft! Það er svona as gróft as it gets hér.
- no added suger vörur nánast ófáanlegar. þeir eru enn í low fat tískunni og svo no added salt! hef þó fundið EINA tegund af jógúrti með no added sugar.
- rakinn. Hárið á mér er í ruglinu.
- cheese coleslaw!! ![]()
- ófeimnir karlmenn sem biðja mann um númerið. Gerir fólki sem á erfitt að segja nei eins og mér mjög erfitt fyrir!
- bankakerfið og hraðbankamenningin. Ógeðslega pirrandi.
- köld hús.
- enginn lite bjór
Sakna Víking Lite MIKIÐ!
jæja þetta var smá upptalning. Örugglega fullt sem ég gæti sett í viðbót. Er ég að gleyma einhverju mikilvægu, þið sem hafið dvalist hér?
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
hung up
25 11 2005með Madonnu í botni dilla ég mér inní helgina – hlakka til að fara án sambýliskonunnar á djammið!! Jessssss Hi-Fi here I come – loksins!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
gaaaa
23 11 2005OMG. nú skammast ég mín. það má greinilega ekki hafa mig í rúmi með öðru fólki. Eftirfarandi stendur um mig á síðunni hans Gulla:
“- vakna upp við það á miðri nóttu að fellow-sumar-fluffa læddi hendinni niður magann á mér, læsti sér í bringuhárin og dró sér upp að mér. Svona til þess að sofa betur eða eitthvað.”
:/
ég sem hélt að ég hefði verið alveg þvílíkt kyrr þarna í samlokunni milli þeirra tveggja.
æiiiiiiiiii *roðn*
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
party
19 11 2005Vá. Geggjað partý í gær. Fullt hús af fólki, bollan kikkaði vel inn og fólk dansaði sig upp að hnjám. Hér var rokkað til klukkan sex í morgun. Fimm gistu í stofunni.
Svona eiga partý að vera.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
föstudagurinn fagri og kaldi
18 11 2005það er nú meira hvað það er mikið vesen að opna bankareikning hér. Maður bíður vikum saman eftir að fá kortið sent heim, maður þarf að skrifa undir, senda tilbaka, fá sent PIN númer og svo activate-a kortið. Það er eftir að maður hefur farið fram og tilbaka með alls konar staðfestingar og plögg um að maður sé sá sem maður segist vera, sé námsmaður eins og ég segist vera og sé útlendingur. Ég fékk loksins kortið mitt sent um daginn og sendi PIN númerið tilbaka í sködduðu umslagi, þar sem ég hafði í upphafi sett svarseðilinn öfugt í. Þetta hefur þeim þótt grunsamlegt og sendu mér því nýtt kort. Þegar ég fór að skoða kortið sá ég að það stendur skýrum stöfum “MR Lovisa Arnadottir”. Man þó skýrt eftir því að bankastarfsmaðurinn spurði mig hvort ég væri Miss eða Mrs, og mér fannst það nánast hljóma eins og “áttu kærasta?” og svarið mitt “it’s Miss” hljóma eins og “bjóddu mér á deit” eheheheh djók.. En alveg væri nú týpískt að þetta myndi vera vesen, svo ég var að hringja í þá. Jújú ég held það verði að senda mér þriðja kortið. Og hvað er málið með ávísanaheftið?? ég held ég hafi aldrei fyllt út ávísun á eigin reikning. Ávísanir eru enn mikið í tísku hér! Ég get ekki sagt að ég sé ægispennt yfir því að fylla út mína fyrstu ávísun – ef frá eru taldar ávísanirnar í ávísanaheftinu sem ég keypti mér í Manchester, Sex Cheques
Partý í kvöld. Við drengirnir fórum og versluðum fyrir það í gær. Keyptum semi-glæra fötu undir bolluna, þar sem engin fannst skálin. Ósmekklegt – samt er ósmekklegri sagan af partýinu sem þeir fóru í þar sem notuð var svört ruslatunna undir bolluna. Yum. Eftir miklar músíkpælingar er komin góð niðurstaða – við settum 100 lög á minniskort og bjuggum til playlista úr þeim. Ég valdi 50, Ste valdi 50. Þetta verður svo sett á random. Allir sáttir. Vona að Ida verði sátt því ég valdi ekki BARA píkutónlist, heldur bara góða partýtónlist.. Ste var m.a.s. mjög sáttur við lögin sem ég valdi. Jæja, er með iTunes playlistann við höndina ef allt verður brjálað. Vitum að við verðum að minnsta kosti 17 manns í partýinu, sem betur fer ekki alveg mannlaust. Ida stjórnar hér hreingerningum með harðri hendi – verst að það er ekki hægt að ryksuga stigann með þessari fáránlegu ryksugu sem er í húsinu (ekki djók) og hann er óóóógeðslegur. Það var svona helsti sjokkfaktorinn þegar ég flutti inn. Jæja, bara hella fólk nógu fullt svo það taki ekki eftir þessu heeheh…. Og ég þarf svo sannarlega að taka til í herberginu mínu. Vegna skápaplássleysis hef ég ekki alveg leyst vandamálið um hvar ég á að geyma fötin sem komu í kassanum og þau liggja í vel sorteruðum bunkum um allt gólf. Herbergið mitt er eins og eftir sprengjuárás – og í þetta sinn er það ekki klisja.
Ískalt. Ég er komin í kápu, sjalið og lopavettlinga. Hef þó séð ófáar stúlkurnar berleggja í pilsum. Alveg með ólíkindum.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
“rassinn á mér”
16 11 2005ó það var svo hrikalega gaman í Manchester. Myndirnar tala sínu máli, auk þess sem Héðinn “leiðinlegi” á nokkur góð komment á sinni síðu. Það var gott að fá að kúra hjá karlmönnum með bringuhár að nýju – þótt þeir spili ekki með sama liði og ég! Og ég sneri aftur til Leeds algjörlega sýrð í hugsun, það var BARA talað um kynlíf í Manchester, öllu deilt og höstlráðum og aðferðum útdeilt, búningar skoðaðir (og keyptir) og hver einasti karlmaður á svæðinu mældur út. Svo ég hugsa enn skítugt, hef ekki jafnað mig – án gríns.
Það var líka gaman á djamminu á föstudaginn með amerísku stelpunum, þótt Ida hafi verið með fýlusvip nánast allan tímann. Maður nennir nottla ekki að púkka upp á þannig lið sem er búið að ákveða að allt verði leiðinlegt löngu áður en reynir á það, og ég skemmti mér konunglega. Svo þetta var ansi góð helgi.
Góða helgin var svo kórónuð á mánudaginn þegar ég kom heim og getiði hvað beið mín í eldhúsinu?!? FATAKASSINN MINN!! Fyrirbænir ykkar skiluðu árangri – takk!!!!! En þetta eykur ekki alveg traust mitt á póstþjónustunni, fyrst þetta var ennþá “inní kerfinu” hjá þeim að hafa ekki fundið kassann!! Kræst. En who cares, ég er yfir mig ánægð. Sé þó fram á að þurfa að taka helminginn af þessu tilbaka um jólin þar sem það er ekkert skápapláss í herberginu mínu.
Spennandi tímar framundan, ég mun gera eitthvað alveg nýtt, einnig mun ég halda partý, sem verður MJÖG fróðlegt þar sem við Ida virðumst hafa gjörólíkar skoðanir á því hvað sé gott partý.. Ég er mest hrædd um að tónlistin muni ekki falla í góðan jarðveg.. ég er búin að gera sérplaylista með 555 lögum, en mikið af því er auðvitað svona píkudjammtónlist, þótt það sé margt annað þar líka. Ste ætlar eitthvað að hjálpa mér í þessu svo vonandi reddast þetta. Þetta er allavega spennó. Líka hvort einhverjir mæti! En það er önnur saga.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
14 11 2005
váaa….var að sjá hvað það er langt síðan ég ef bloggað…alveg fullt búið að gerast, en ég held að með stærri bumbu hafi prívasí þröskuldur minn ( ef svo má kalla) hækkað töluvert og eftir er ansi fátt sem mér finnst alnetinu koma við…en þetta er eflaust bara e-ð feis…bráðum fæ ég örugglega e-n óléttu hormóna óverdós og fer að deila öllu á síðunni…ásamt því að gráta yfir bíómyndum og e-ðþ…
…Ég er reyndar ennþá að bíða eftir fullt af óléttueinkennum sem mar hefur heyrt um, ég hef ekki farið á almennilegt hormónatripp (ekki það að það er kannski betra að spyrja kallinn að því…) og svo hef ég ekki fengið neitt craving! sem mér finnst eila bara svindl…
…annars var síðasta vika alveg með þeim furðulegustu…en það leiddi amk eitt gott af sér: ívsi bró og hans stórfjölskylda kemur í besög um helgina!!:):)
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Nýleg ummæli