Amsterdamned

24 10 2005

Mikið hrikalega var gaman í Amsterdam. Þetta var bara eitt stórt ævintýri. Nýir undarlegir herbergisfélagar á hverri nóttu, snilldarhostel (a.k.a. the make-out hostel!!!) og hostelbar, snilldarfólk sem maður kynntist. Skrítni kallinn sem var fyrstu nóttina var færður um herbergi, en hætti ekkert að vera skrítinn – hann bað okkur um leyfi áður en hann var fluttur um herbergi hvort hann mætti ekki kúka og reykja á meðan í okkar klósett – á laugardagskvöldið stóð ég hann að verki að vera að teikna mig!!! frekar fríki að vita af að hann hafi verið að fylgjast með mér úr fjarlægð án þess að ég vissi og teikna :/ hehehe.. Svo er greinilegt að bakkpakkarar Evrópu eru spólgraðir því við Tanya fengum fleiri ósiðleg tilboð en eðlilegt mætti kallast og nefndum því hótelið the make-out hostel hehehe m.a.s. svona cheesy spurningar eins og Voulez-vous coucher avec moi ce soir? Já nei takk, pant ekki vera manneskja númer 23 í þínu herbergi!! Fullt af rugludöllum og hasshausum á hostelinu sem eru ýkt skemmtilegir í smá magni í smá stund :) sé í anda þessa ferð með Idu ehheheheheh bara GLÆTAN að hún hefði lifað þetta af heheh.. Góður matur og góður bjór (ég er hér með farin í megrun því hvergi er Lite bjórinn buuhuuu). Rauða hverfið er bara magnað – þótt maður hafi alveg vitað hvernig þetta væri allt saman er samt eitthvað svo magnað að sjá það með eigin augum. Gaman svo að kynnast fullt af fólki og skrítið að fara út að borða og á söfn með liði sem maður þekkir ekki neitt, það er bara svo skemmtilegt fólk á hostelum! :)
Amsterdam er alveg ótrúlega falleg og þar er brjálað djamm – svo ég mæli bara eindregið með helgarferð þangað við tækifæri! ógissla ógissla gaman vei vei vei
nokkrar myndir hér


Actions

Information

One response

29 03 2008
önnur útlendingaheimsókn! « Hölt leiðir blinda..

[...] fara saman í helgarferð!! Frekar sjeikí! En þetta gekk vonum framar og ferðin var frábær!! Hægt er að lesa um ferðina hér og myndir eru [...]

Skrá ummæli