það heyrast jólabjöllur og ladíladídada…

31 10 2005

Ég er komin í þvílíkt jólaskap..skiletta ekki alveg…kannski hafa snjórinn og 2 ferðir í jólalandið Ikea haft e-ð að segja….maske…svo líka er ég líka búin að ákveða að það sé betra að hlakka til jólanna en til komu litlu jr. því að amk koma jólin þann 24. for sure…gott fyrir óþolinmóða…Annars dreymdi mig að ég væri búin að fæða 15 kg stelpu! og að fæðingin hafi verið svo kvalarfull að það þurfti að dópa mig svo mikið að ég mundi ekki eftir neinu…sem er svosum alveg raunhæft meðað við að ætla að ýta út úr sér 15 kg barni…kannski er ég farin að hafa of miklar áhyggjur af þessu. Amk hér með er BANNAÐ að segja mér vondar fæðingarsögur.





Afmælisbarn dagsins..

29 10 2005

…er pabbi minn. Hann er 49 ára í dag! Ja hérna – barasta stórafmæli á næsta ári :) Til hamingju gamli ;)





29 10 2005

jæja – ég er STEINHÆTT að tala um fólkið sem ég bý með á blogginu. Einn fann nebbla þýðandaforrit :) og sagði allt um hvað ég hafði sagt um þá á blogginu! svo síðasta saga var síðasta saga ever :)





dönsk skipulagning

25 10 2005

Það er aldeilis heragi á heimilinu varðandi suma hluti. Ég þurfti svolítið að passa mig í dag að springa ekki úr hlátri yfir ógurlegri skipulagsþörf Idu. Þessar sögusagnir um Dani og skipulag eru sko hárréttar.

Þessa dagana er bíllinn hans Matt bilaður, svo hann vaknar fyrr á morgnana til þess að mæta í vinnuna, verður jú að komast með almenningssamgöngum á leiðarenda. Þetta raskar sturtukerfi Idu allsvakalega. Hún vaknar alltaf klukkan sjö þegar hún á að mæta níu til þess að fara í sturtu. Henni til mikillar skelfingar vaknar Matt líka klukkan sjö núna. Við vorum í eldhúsinu áðan og hún var að yfirheyra Matt um sturtu morgundagsins: “Klukkan hvað ætlarðu nákvæmlega í sturtu?”, “Hvað ertu lengi í sturtu?”, “Hvenær leggurðu af stað í vinnuna?” osfrv. Matt sagði að hann færi í sturtu svona kortér yfir sjö og hún gæti því alveg farið á undan honum en ónei, Ida tekur lengri tíma svo Matt þarf að standa við þetta kortér sitt upp á mínútu. Ég hélt fyrst að Ida væri að grínast með þessar spurningar og flissaði svoldið, steinhætti þegar mér varð ljóst að henni er dauðans alvara. Hún er að hugsa um að setja upp svona miða með sturtutímum á vegginn. Mér finnst að sjálfsögðu alltílagi að ræða þetta, það þarf jú að deila þessu eina baðherbergi, en þetta fór algjörlega út í öfgar :)

Svo spurði hún mig hvort hentaði mér betur að hafa fisk í matinn á föstudag eða laugardag. Hún veit vel að ég hef engan áhuga á að borða fiskinn hér (minnug viðbjóðsins sem við Gurr keyptum í góðri trú í London) en hún vill nú samt elda lax handa okkar, voða indæl. Mér finnst lax ekki góður. Nema kannski reyktur. Og hún pressaði mig um svar strax. Ég planlegg svo sannarlega ekki matartímana marga daga fram í tímann. Mér gæti ekki verið meira sama hvort það verður fiskur í matinn á föstudag eða laugardag. Valdi föstudag til þess að róa hana.

Já kannski maður læri eitthvað – ég er ekki týpan sem þarf að hafa allt skipulagt vikum og mánuðum saman fram í tímann, mér finnst ég hafa annað betra við tímann minn að gera en að stressa mig yfir einhverjum óþarfa eins og hvað verður í matinn eftir viku – en hver veit nema ég komi gjörbreytt kona heim? :) Spurning hvort það sé gott eða slæmt… Ég hallast að því síðarnefnda – enda kom mér ekki á óvart þegar hún sagðist almennt þjást af stressi og kvíða – skrítið!!!!





Amsterdamned

24 10 2005

Mikið hrikalega var gaman í Amsterdam. Þetta var bara eitt stórt ævintýri. Nýir undarlegir herbergisfélagar á hverri nóttu, snilldarhostel (a.k.a. the make-out hostel!!!) og hostelbar, snilldarfólk sem maður kynntist. Skrítni kallinn sem var fyrstu nóttina var færður um herbergi, en hætti ekkert að vera skrítinn – hann bað okkur um leyfi áður en hann var fluttur um herbergi hvort hann mætti ekki kúka og reykja á meðan í okkar klósett – á laugardagskvöldið stóð ég hann að verki að vera að teikna mig!!! frekar fríki að vita af að hann hafi verið að fylgjast með mér úr fjarlægð án þess að ég vissi og teikna :/ hehehe.. Svo er greinilegt að bakkpakkarar Evrópu eru spólgraðir því við Tanya fengum fleiri ósiðleg tilboð en eðlilegt mætti kallast og nefndum því hótelið the make-out hostel hehehe m.a.s. svona cheesy spurningar eins og Voulez-vous coucher avec moi ce soir? Já nei takk, pant ekki vera manneskja númer 23 í þínu herbergi!! Fullt af rugludöllum og hasshausum á hostelinu sem eru ýkt skemmtilegir í smá magni í smá stund :) sé í anda þessa ferð með Idu ehheheheheh bara GLÆTAN að hún hefði lifað þetta af heheh.. Góður matur og góður bjór (ég er hér með farin í megrun því hvergi er Lite bjórinn buuhuuu). Rauða hverfið er bara magnað – þótt maður hafi alveg vitað hvernig þetta væri allt saman er samt eitthvað svo magnað að sjá það með eigin augum. Gaman svo að kynnast fullt af fólki og skrítið að fara út að borða og á söfn með liði sem maður þekkir ekki neitt, það er bara svo skemmtilegt fólk á hostelum! :)
Amsterdam er alveg ótrúlega falleg og þar er brjálað djamm – svo ég mæli bara eindregið með helgarferð þangað við tækifæri! ógissla ógissla gaman vei vei vei
nokkrar myndir hér





24 10 2005

…mér finnst e-ð hálf trist við það að heyra dánartilkynningu þar sem ekki er “ritað”undir “vinir og Vandamenn”, heldur bara “Vandamenn”…pant eiga vini þegar ég dey…





24 10 2005

Þessi síða er kúl, koma soh strákar, styðja mömmu sína!





bloggad fra Amsterdam

21 10 2005

jaeja tha er madur maettur hingad i thessa legendary borg. Og va, alveg sma kultursjokk heheh vid tanya erum bunar ad thvaelast ut um allt (og frekar threyttar, eg svaf til daemis bara tvo og halfan tima i nott eftir matarbodid hja Rory islenskukennara sem var aedi by the way) og fara i rauda hverfid og svona. Thad sem kom mer mest a ovart thar var hversu saetar horurnar eru!! stelpur, ekki hleypa kaerustunum til amsterdam!! hehehehehe segi nu bara svona hahaha allavega thetta virdist aetla ad verda algjort aevintyri – vid bokudum 4-6 manna herbergi, en erum bara 3 i herbergi, vid tanya og einhver midaldra madur sem er vaegast sagt undarlegur, til daemis thegar vid komum heim i dag la hann utglenntur a midju golfiinu i einhverju moki!! jiminn eini.. okkur finnst hann meira en litid skritinn og aetlum kannski ad lata faera okkur a morgun. hostelid er snilld, the flying pig, stadsett a adalverslunargotunni svo ekki er haegt ad kvarta yfir thvi. vid sitjum nuna a hostelbarnum med einhverju snilldarlidi og drekkum bjor, tanya er algjor snillingur, fyndid hvad madur skynjar hratt hverjir eru chilled out og hverjir ekki ;) thad eina sem fer i taugarnar a mer er svipurinn a folki thegar eg segist hafa viljad fara til amsterdam og baeti alltaf vid NEI EKKI TIL AD REYKJA HASS svona til oryggis.. eg hef aldrei gert thad og geri thad orugglega ekki hedan af. Tanya keypti ser hasssleikjo, thad er daldid fyndid eheheh
Allavega, farin a djammid
semi tipsy Lovisa Arnadottir
RUV news
Amsterdam

hljomadi thetta ekki vel? ;)





enn um konurnar…

21 10 2005

Ég var að lesa meil áðan frá reiðri móður. Hún var afskaplega reið bæjarstjóra síns sveitarfélags fyrir að hafa gefið starfsmönnum dægradvalar skólanna og leikskólakonum frí eftir 14 á mánudaginn. Hvað á hún núna að gera við börnin sín??? Ég skil alveg að það komast ekki allar frá vinnu á mánudaginn og að það eiga ekki allir foreldrar barnapíjur bíðandi í röðum, en mér finnst samt alveg óþarfi að sýna kvennfrídeginum þennan anti-stuðning með að skrifa reiðimeil til allra fjölmiðla þar sem viðkomandi bæjarstjóri er úthúðaður. Greyjið er bara að reyna að sýna okkur kjéllingunum smá stuðning…en núna er hann bara milli steins og sleggju. En við erum jú konur og það er bara svoldið erfitt að þóknast okkur stundum. Ég er að spá í að bjóða henni að ég taki börnin bara með mér í kröfugönguna…

Annars finnst mér ég farin að hljóma aðeins of mikið eins og rauðsokka…að vera femínisti er gott mál en ég held að ef ég fari að æsa mig meira yfir þessum málum þá verði ég innan skamms búin að breyta eftirnafninu mínu í Þórdísardóttir og hætt að raka mig…eða hvað það nú er sem sannar rauðsokkur gera…

annars er góður föstudagur í dag, frí á morgun og heima bíður mín besta súkkulaðikakan! what more can a pregnant gal want….





Konur eru aumingjar.

20 10 2005

Það er e-ð sem ég vil hreinlega ekki trúa, en í dag er ég alveg á því. Ég hef bara verið að spá, á e-r sem þorir ekki að berjast fyrir sínum rétti, nokkuð skilið að hans hagur bætist??? Ég var að tala við mömmu áðan og tékka hvort að hún ætlaði ekki að koma á mánudaginn, og hún hélt nú eila ekki því að það er svo erfitt þar sem hún er kennari…svo líka eru þær í hennar stétt ekki beint beittar misrétti…what!?!?!?!? Í fyrsta lagi þá á mar að mæta þó ekki væri bara til að styðja sitt kyn, og svo hvaða bull er það að kennara séu ekki beittir launa misrétti???? Like hell að kennarar væru svona láglauna ef þetta væri karlastétt! Staðreyndin er sú bara að við erum allt of soft. Við erum of ábyrgðarfukllar gagnvart starfinu eða e-ð álíka, höldum að við verðum reknar fyrir að mótmæla o.frv. jafnvel þó að þetta sé “viðurkenndur” mótmæladagur…af sömu ástæði þorum við ekki að setja “of” háar launakröfur…við gætum nottla átt í hættu á að fá ekki starfið og ef við biðjum um launahækkun þá gætum við nottla verið reknar bara….en fyrst að við þorum aldrei að taka neina sjénsa með svona og trúa því sjálfar að við séum ekkert síðri vinnukraftar ekki karlarnir, eigum við þá nokkuð skilið að hækka í launum???

…alveg brjáluð…