…fjórfætt óléttupróf….

29 09 2005

Ég kynntist assgoti skemmtilegum hundi í gærkvöldi, honum Dr. Watson pedrosyni. Hann er þeim gáfum gæddur að skynja hvenær konur er óléttar!! Watson verður sum sé alveg spólgraður og vitlaus, þannig að hann steingleymir því að hann er eistnalaus og reynir að hömpa the mother to be. Af sjálfsögðu var engin undantekning með mig. Ég fékk vænan skammt af klof-athygli og svo eitt gott hump á fótinn áður en ég fór. Það er þar með staðfest: Ég er ólétt. Þannig að ef þið farið framyfir eða eruð í e-m vafa þá er bara að heilsa uppá Watson og spara sér clearblue





Enginn veit hvað átt hefur fyrr en….

29 09 2005

Ég er búin að komast að því í núverandi ástandi hvað maður tekur allt of marga hluti for granted. Ég hafði t.d. aldrei glaðst mikið yfir þeim forréttindum að hafa putta í eðlilegri stærð sem hafa eðlilega hreyfigetu, og yfir því að hafa sýnilega ökla. Þeir láta jú sjá sig af og til en það er mjög sjaldgæft. Svo voru þeir dagar líka yndislegir þegar maður þurfti ekki að hlaupa á klósettið eftir smá vökvainntöku vegna þess að e-r er að sparka í blöðruna. Það er nebbla ekki svo auðvelt um miðja nótt þegar mar þarf að mjaka sér sér út úr rúminu á e-n fáránlegan hátt….svo geymi ég líka öllu þessa dagana, og það á víst bara eftir að versna segja fróðar mæður mér. damn. Þannig að ef ég svara ekki sms um og símtölum þá er það vegna þess að síminn er heima. Hann gleymist þar annan hvern dag. hina dagana keyrir bjarki mað hann til mín.





fréttir frá Leeds

28 09 2005

Þá er ég byrjuð í skólanum. Og vá hvað ég held að þetta verði skemmtilegt. Kennslan er byggð upp á annan hátt en heima, hér er skipt í fyrirlestra og umræðuhópa. Það skemmtilega er að umræðuhóparnir eru mjög litlir og lögð áhersla á skoðanaskipti um viðfangsefnið. Alveg mjög brilliant. Þetta er einnig mjög hvetjandi, maður virkilega þarf að lesa og undirbúa sig til þess að geta tekið þátt í umræðunum, en heima getur maður bara haldið kjafti útí horni ef maður veit ekkert um hvað er verið að tala. Svo þetta kveikir mikið í mínm áhuga. Mér finnst ég einnig sjá mun á nemendunum – hér eru þeir yngri en miklu fókuseraðri, strax með mjög góða gagnrýna hugsun og skapandi pælingar, sem er ekki eins áberandi í bókmenntunum heima. Allavega á annan hátt. Held að þetta námsumhverfi geri þetta mögulegt. Í einum umræðutímanum hellti kennarinn upp á te fyrir alla, við sátum í hring og hann setti tónlist á fóninn og eitt leikrit eftir Beckett stúderað. Snilld! Svo í þeim kúrs verður smá verklegt líka, við lærum hluta af textanum og prófum okkur áfram með hann uppi á sviði..

Svo er ég auðvitað í einum hundleiðinlegum tíma, eða það var fyrsti tíminn allavega hehe… Endurreisnarbókmenntir. Fór á fyrsta fyrirlesturinn og guð minn góður hvað það verður erfitt að halda sér vakandi í vetur! Ætlaði svo að byrja að lesa fyrstu bókina í þessu fagi, komst í gegnum tvær blaðsíður og gafst svo upp. Veit EKKERT hvað er að gerast. Enda er þetta á fornensku liggur við, allt í “thus, thou, shall” og í bundnu máli í þokkabót, milljón persónur og eitthvað svakalegt plott oní einhverjar fornar enskar hefðir sem ég veit ekkert um. Þó veit ég að ég verð ekki sú eina sem skilur ekki neitt, því enskir stúdentar eru sjálfir í vandræðum með þetta.

Búin að sækja nokkra kynningarfundi. Í gær fór ég á fund hjá dansfélaginu, þar var semsagt frí danskennsla í fyrsta tíma og jiminn, þetta var það mest kaotíska sem ég hef séð. Sporin sem kennd voru í fyrsta tímanum voru grunnspor í vals og cha cha cha en ég kunni þau svosum fyrir svo ég ákvað að beila eftir tæpan klukkutíma og bara láta þau senda mér tölvupóst um frekari starfsemi. Það er alltaf þannig að innan við helmingur mætir aftur svo þá gæti þetta verið gaman. Af þessum fundi fór ég á kynningu hjá köfunarklúbbnum – beið í hálftíma eftir því að hann myndi byrja, svo svona 15 sek áður en hann byrjaði fattaði ég að ég gæti hvort sem er ekkert verið með! Ég má ekki fara í sundlaug í nokkra mánuði eftir augnaðgerðina! Lovísa gleymna! Kunni þá ekki við að troðast út svo ég sat fundinn og dauðlangaði auðvitað að vera með.. en jæja, spara mér svosum fullt af peningum. Í dag fór ég á fund hjá nemendafélagi enskudeildarinnar (deildarinnar minnar) og það var rosa gaman, kynntist þar tveimur stelpum og mér var boðið í afmælispartý annarrar þeirrar á morgun – ætla deff að mæta, til þess að kynnast fólki auðvitað! Þaðan fór ég á fund hjá Erasmus klúbbnum, þar verður mikið um að vera sýnist mér. Annað kvöld er til dæmis hið legendary Otley Run, svokallað bar crawl hér í Leeds. Á Otley götu eru 34 barir og Otley Run gengur út á það að byrja á einum enda og drekka einn drykk á hverjum bar þangað til á enda er komið “with no memory whatsoever” eins og skipuleggjandinn komst að orði :) Ok ég kæmist örugglega ekki hálfa leið!! En þetta er eitthvað sem, að sögn, allir stúdentar í Leeds verða að gera svo kannski fer ég einhvern tímann. Ætla þó frekar í afmælið annað kvöld.

Á föstudaginn ætlum við Ida á djammið og jafnvel að bjóða einni kanadískri með, stelpu sem Ida upphaflega ætlaði að búa með (og ég hafði samband við þær um að fá að búa m þeim), þær komust svo ekki að samkomulagi um húsnæði og Ida leitaði til mín. Ida er öll að koma til og meira að segja kom mér þvílíkt á óvart um daginn þegar hún samþykkti að fara á deit með enskum gaur, en hún á danskan kærasta sem er skiptinemi í Frakklandi. Svo ætlar hún að deita þennan enska áfram án þess að segja kærastanum! Ég missti kjálkann í gólfið – enda bjóst ég ekki við að hún væri “týpan” í svona. Svo er hún búin að vera að segja mér hitt og þetta með þetta samband þeirra og hún segist ekki vera ástfangin en jújú skotin í honum, vill ekki slíta þessu til að særa hann ekki og hvað ef hún slíti þessu og finni svo engan annan, þá verði hún alein.. og ég alveg kom með ýkt flotta klisju “þetta snýst ekki um að vera með einhverjum, þetta snýst um að vera hamingjusamur með einhverjum” heheheheh.. flott hjá mér ekki satt?

Ég sá svolítið broslegt um daginn – eða hvort það er evil að segja broslegt.. – allavega, strangtrúuð múslimsk stúlka í kufli sem huldi hana alla og bara smá net fyrir augum og nefi.. en svo voru gleraugu UTAN Á kuflinum hahahahhah.. maður hefur aldrei spáð í vesenið fyrir aumingja strangtrúaða fólkið að nota gleraugu heehehheeh..

Ég er svo búin að bóka okkur Héðin á tónleika, í þetta sinn Í RÉTTUM MÁNUÐI, á Jamie Cullum í Manchester þann 2. nóvember. Held að það verði kósí. (ég er enn að hlæja að það skuli virkilega vera gaur í bekknum hans sem heitir Salami hahahahaha…)

Fyrir ykkur sem vilja senda mér sms eða hringja, er síminn minn +44 790 885 9291. Og ef þið viljið senda mér ástarbréf, já eða póstkort (djöfull væri það gaman by the way) er heimilisfangið 38 Harold Walk, Hyde Park, Leeds, LS6 1PS, UK.

Og takk allir fyrir knúsin – þau hresstu mig mikið við!





stikk!!

27 09 2005

Ég er búin að vera klukkuð 2x svo ég viti til og ég er jafnoft búin að reyna að finna e-r 5 atriði til að hlýða klukkinu. En það er ekkert að ganga. Ég veit, þetta er voða simpílt, en samt sem áður hefur klukk andinn ekki komið yfir mig. Ég kenni bara óléttunni um. Allir vöðvarnir eru að verða að mauki og ég held bara heilinn líka. Þannig að ég er stikk…eða fer í stikk eða hvernig sem þetta var…





fyrsti skóladagurinn

26 09 2005

Erfið helgi. Var ekkert sérstaklega glöð eða í partýskapi. Svaf svo mjög lítið í nótt, ætli það sé ekki vegna þess sem er on my mind, smá fiðringur út af fyrsta skóladeginum og svo var ég bókstaflega að frjósa úr kulda. Þarf að láta strákana kenna mér á ofninn, hann er einhvern veginn tímastilltur eins og hjá okkur Gurr í London á sínum tíma – nema þar bjuggum við þrír Íslendingar, vanir okkar hlýju húsum og kyntum að vild, slétt sama um kostnaðinn. Það er eins gott að það sé sér rofi fyrir mitt herbergi og ég þurfi ekki að kynda mitt herbergi eins og hinir kynda sín. Ég er bara alveg tilbúin til þess að borga aðeins meira fyrir að sofa ekki í ísskáp.

Fer í tíma núna á eftir. Það var smá vesen að komast að því hvenær ég átti eiginlega að vera í skólanum, því miðinn frá kennaranum var ekki kominn upp á vegg í enskudeildinni. Því hér jú ekkert rafrænt, á netinu eða í tölvupósti eða neitt slíkt. Nei nei hér gerir maður sér ferð upp í skóla, treðst til þess að skoða blöð sem kennararnir hafa hengt upp og skrifar hjá sér hvenær maður á að vera í skólanum. Mér finnst þetta furðulegt. Því svo eru bara ákveðnir opnunartímar. En já, mér líst ágætlega á þennan kúrs sem ég er að fara í á eftir; Danger, Domesticity and American Literature :) Það er mjög lítil viðvera í skólanum hjá mér, er samtals 4 tíma í viku (5 tíma aðra hverja viku svo) í skólanum. Svo kemur í ljós hvernig vinnuálagið verður í heimalærdómi..

Í vikunni eru svo kynningafundir á alls kyns félagslífi – ég hef áhuga á nokkrum klúbbum og ætla að mæta á fundi í samkvæmisdansaklúbbnum, Erasmusklúbbnum, enskuklúbbnum, köfunarklúbbnum.. og svo nottla þessi belly dancing og skartgripagerð..

en já – mig vantar knús. Lovísa er lítil í sér.





Keikó kjagar

23 09 2005

Það er ekki á hverjum degi sem það er ort fyrir mann ljóð. En það gerði hann Pálmi núna í morgun…hann er yfirleitt mjög duglegur að minna mig á stærð vambar, og samlíkingin við hval í þeim eftnum er mjög vinsæl. Í dag náði þetta hápunkti og tók á sig form ljóðs/stöku/rímu:

Keikó litli kjagar
Grasekkjan kasólétt
Tölvunördinn lagar
í Írlandi pottþétt

Það er munur að vinna með svona hagmæltu fólki sem getur ort á meðan það les 10 fréttirnar….;)





klukk

22 09 2005

Jamm ég hef verið klukkuð og á þar með að setja inn staðreyndir um mig, helst sem fólk veit ekki almennt eða eru furðulegar. Þegar ég var að reyna að hugsa hvað ég ætti að setja inn, uppgötvaði ég staðreynd um sjálfa mig. Ég held ég tali of mikið! Og um sjálfa mig! Því mér dettur ekkert í hug sem fólk veit ekki nú þegar. En here goes…

1. Ég fæddist með valbrá á vinstri hendi og hún er þar enn.

2. Ég fékk mjög oft “S” í hegðunareinkunn í barnaskóla því ég þótti tala mikið og vilja hafa rétt fyrir mér. (hmmm snemma beygist krókurinn!!)…. glimrandi einkunnaspjald að öðru leyti…

3. Ég hef átt fjögur gæludýr um ævina, köttinn Skessu, sem dó nokkurra mánaða í bílslysi, gullfisk sem ég gaf frelsi.. og svo hamstrana Mozart og Sebastian (með annarri vinkonu minni) sem voru étnir af sama kettinum með nokkurra mánaða millibili.

4. Ég elska ristað brauð með bragðmiklum osti og rifsberjasultu. En ég leifi alltaf smá skorpu.

5. Ég hef verið í áhugaleikfélagi frá unglingsaldri og leikið margar persónur í mörgum leikritum. Í nánast öllum tilfellum hefur karakterinn minn annað hvort verið karlmaður í handriti en breytt í kvenmann fyrir mig, eða algjör gribba!!

jæja kannski finnst einhverjum þetta áhugavert og að þeir þekki mig betur somehow.. en allir sem þekkja mig mjög vel vita allt þetta. Vildi óska að ég hefði getað ljóstrað upp einhverjum ógurlegum leyndarmálum :) Anna Brynja er hér með klukkuð! Eins Ofurhjúkkan og Héðinn… og Íris bókmenntabekkjarsystir. Að lokum Höski mitt yndislega feikdeit, því það gæti hvatt hann til frekara bloggs. Og þá eru komnir fimm.





registration

21 09 2005

Þetta er offisíllí orðið sem er neðst á mínum vinsældarlista eftir daginn í dag. Lem þann næsta sem segir þetta orð við mig. Í fjóra daga er semsagt registration í skólanum mínum. Þar eiga 22 þúsund manns að skrá sig til náms í skólanum á fjórum dögum. Í Háskóla Íslands er þetta jú allt komið á netið, en þó man ég þá gömlu “góðu” daga þegar maður þurfti að skrá sig í Nemendaskrá. Það var bara snilld að fá þetta á netið. Hér virðast menn styttra komnir í tölvutækni og þetta er EKKI komið á netið. Og þá fer eflaust hrollur um marga að hugsa um eina langa röð í “nemendaskrá” hér úti. Þetta er töluvert verra en það.

Fyrst skráir maður sig í fög með því að senda deildarstjóranum tölvupóst. Svo þarf maður að “skrá sig” aftur á þar til gerð skráningarskjöl, fá þau stimpluð frá deildinni og fara svo með skjölin og skrá sig endanlega í skólann!!

Fyrsta þrepið gerði ég í sumar og það var töluvert vesen þar sem nemendafjöldi í hverju fagi miðast við 5-30 manns. Iðulega var fullt í þau námskeið sem ég valdi. Allavega, þegar ég kom út þurfti ég svo að fara á ákveðna skrifstofu til að sækja skráningarskjölin mín og svo sitja fundi um hvernig ætti að fylla þau út. Þar sem á skjölin vantaði nokkur fög sem ég ætlaði að vera í í vetur, þurfti ég að fara að tala við manneskjuna sem sér um okkur Erasmus stúdenta á sérstökum Erasmus fundi. Við erum skrilljón Erasmus stúdentar hér og aðeins EIN manneskja sem á að sjá um allar skráningar fyrir okkur og stimpla skráningarskjölin. Skemmst er frá því að segja að ég beið í næstum FJÓRA klukkutíma eftir þessu!!!! og er skráð í einhver vangefin fög því allt var orðið fullt! Það var svo búið að loka endastöðinni til skráningar þegar ég loksins kom. Svo ég á eftir að skrá mig endanlega. Það er víst röð dauðans. Oh ég hlakka svo tiiiiiiiiiil!!!!!!

Var orðin frekar pirruð þegar ég kom heim. Enda þurfa herbergin sem maður bíður í alltaf að vera alveg sjóðheit. Semsagt – pirruð og sveitt! Opnaði strax eina Stellu til að létta lundina.

En úr þessu skemmtilega í annað meira skemmtilegt: Hitti Neil í gær, ýkt gott að sjá hann. Hann bauð mér út að borða sjéntilmaðurinn sá á einhvern stað sem svipar til Wagamama. Ekki eins góður en samt góður :) Hann er að fara að vinna hér í Leeds næstum einu sinni í viku og kærastan hans er kannski að fara að vinna hér svo ég bind vonir við vinahópana þeirra :) Svo fór ég á Rocky Horror – fullt af stelpum beisikklí á nærfötunum og korselettunum og karlmönnum með hárkollu og á háum hælum – gaman að því! Ég var semsagt í fyrsta sinn á ævinni ein í bíó (ekki samt alveg ein, hafði jú 100ml Häagen Dazsinn minn með mér) og skemmti mér bara vel. Alveg ofsalega sýrð mynd og rosalega költ og ég þekkti 3 lög eftir allt saman og allir aðrir kunnu myndina utanað. Í hvert sinn sem nafn Brads var nefnt öskruðu allir ASSHOLE og í hvert sinn það var sagt Janet var öskrað SLUT, svo í brúðkaupsatriðinu í upphafi köstuðu allir hrísgrjónum yfir salinn og voru svo með sérstaka dansa við lögin, sko staðið upp og gerðar hreyfingar :) Tim Curry nottla frábær Frank’n'Furter, enda skemmtilegt hlutverk – en Dolli í sportinu var sko ekki síðri á SKRÚV 2002! og Geir og Halldóra frábær Brad ASSHOLE og Janet SLUT!

Hitti eina íslenska stelpu í skráningunni í dag – þá er hún búsett í Þýskalandi og Erasmus stúdent þaðan. Hún bara benti á mig yfir salinn liggur við og “þú ert íslensk, er það ekki?” heheheh.. þá kannast hún eitthvað við mig. ‘81 módel úr MR. Ég vissi ekkert hver hún var, enda er ég ekki góð með andlit :) Og spurði hvort ég syngi ekki. Hún segist þekkja einhvern sem ég þekki sem syngur líka.. ó litla sæta Ísland. Hún sagði að allt í allt væru sirka 10 Íslendingar hérna. Ja hérna. Við erum alls staðar.

eftir smá upphafsörðugleika við dönsku stelpuna sem ég bý með er þetta aðeins að skána. Hún er ósköp indæl sko, en við erum bara mjög ólíkar manneskjur. Ég vissi alveg að Danir vilja spara peninga og svona, en hún er búin að taka þetta skrefi lengra. Hún talar alveg sko nonstop og helst bara um leiðir til að spara. Hún tönnlast á sömu hlutunum aftur og aftur og gerir rosalegt mál úr smáaurum. Til dæmis vill hún að húseigandinn borgi hnífasett sem við keyptum í IKEA og kostaði heil 99 pens. Þegar hún var búin að röfla nonstop um þetta í 3 daga sagði ég “já en þetta er nú bara smá peningur, skiptir engu máli fyrir mig sko..” þá sagði hún og gretti sig “still.. lot of expenses..” Guð minn góður! Svo gerði hún rosalegt mál yfir einhverjum herðatrjám í IKEA – fyrst ætlaði ég að kaupa úr tré því hún sagði að það væri betra ef ég vildi þvo þvott en þau væru samt dáldið dýr.. svo sáum við plastherðatré en þá hélt hún ekki kjafti yfir að þau væru ekki nógu smart! Helló!!!! HERÐATRÉ! Ég keypti 3 pakka bara til þess að stríða henni. Svo segir hún stanslaust “í danmörku er þetta sko þannig að..” við okkur öll.. eins og okkur sé ekki slétt sama. Við getum ekkert breytt þessu hér! Málið er að hún er bara í dálitlu kúltúrsjokki held ég, enda hefur hún aldrei dvalist utan síns heittelskaða heimalands. Eftir smá stund fattar maður bara að fólk hefur ekki allan áhuga heimsins á að vita í smáatriðum hvernig þetta er heima hjá þér. Eftir að ég hafði lokað mig inní herbergi í 2 daga bara til þess að forðast hana, er hún að skána. Við kíktum aðeins út á lífið í fyrradag en hún var orðin blindfull eftir 2 hvítvínsglös svo hún er ekki mikill djammari heheheh.. in fact er hún frekar hissa á allri drykkjunni hér. Vissulega er hún mjög mikil en ég er búin að vara hana við að svona sé þetta bara og hún þurfi að venjast þessu.

Það er bara Benidorm stemning hérna núna. Alls staðar í kringum skólann er fólk að dreifa bæklingum um hvað er að gerast hér og þar og um ódýra drykki. Allir nýnemar fengu sendan bækling heim þar sem vægast sagt er hvatt til mikillar drykkju og jafnvel hassneyslu. Mér blöskraði eiginlega.





stúdentaborg

19 09 2005

Vá bærinn bara gjörbreyttist skyndilega. Nú er allt troðfullt af stúdentum! Ég fór inní skóla í dag og allar götur eru fullar af ungu fólki, sá ekki einn einasta yfir þrítugu! Vonandi nær maður svo að kynnast einhverju af þessu liði!
Ætla alveg að taka þátt í einhverjum af þessum klúbbum sem eru í boði fyrir lítið sem engan pening, langar til dæmis í magadans, salsa, jewellery making, indverska matargerð og svo margt fleira.
Annað kvöld er ég að fara að hitta Neil í mat og svo líklegast á Rocky Horror í bíó. Það er fancy dress sýning hér í Hyde Park Picture House sem er rétt við húsið mitt, bíó sem sýnir vandaðar myndir en ekki þetta venjulega sem selur, og ég hef aldrei séð Rocky Horror. Þekki líka bara eitt lag. Svo það er nú kominn tími til. Ekki verra að þetta sé einhver freakshow búningasýning :)
Annars gengur allt ágætlega, hlakka til að byrja í skólanum!
Fór að skoða skólann í dag, eða réttara sagt örlítinn hluta. Skólinn er svo stór að það er nánast yfirþyrmandi. Þetta er svona háskólaþorp með mörgum byggingum og sér súpermarkaði og fjórum skemmtistöðum + börum og alls konar búðum og ég veit ekki hvað og hvað. Það á eftir að taka smá stund að rata um byggingarnar!!





“Kun iiiiiiiiiis!!!!”

15 09 2005

Jæja þá er ég komin út til Leeds sem verður heimaborg mín næstu mánuði. Ferðalagið gekk vonum framar, yfirvigtin reddaðist þar sem ég hitti Bryndísi Nielsen í check-in, hún var bara með oggulitla tösku með sér svo við tékkuðum okkur bara inn saman. Lestarferðirnar gengu hratt fyrir sig og á lestarstöðinni í Leeds var bás frá háskólanum mínum, svokölluð Meet and Greet Service sem ég hafði reyndar ekki skráð mig í en þau keyrðu mig upp að dyrum heim, alveg frítt! Góð þjónusta þar!

Húsið er vægast sagt undarlegt og ég fékk vott af áfalli þegar ég sá þetta fyrst. Það virtist staðsett í slömmi aldarinnar. Einhver gámur út á miðri götu, eina fólkið sem sást voru í kuflum og það er meira að segja kuflabúð beint á móti húsinu mínu. Útsala og allt. Maður ætti kannski að fjárfesta í einum slíkum til að falla inn í umhverfið. Svo kom ég inn í húsið – annað nett sjokk. Teppin eru enn ljótari en þau líta út fyrir að vera á myndunum sem ég fékk. Þvengmjóir gangar upp nokkrar hæðir, ég er í efsta herberginu, smá risfílingur. Það er nú alveg kominn tími á að gera eitthvað fyrir herbergið, veggirnir ósléttir og illa málaðir, og svo auðvitað arfaljótt teppi. Hvað er líka málið með að hafa margar tegundir af teppum um allt hús?? Ætla Englendingar ekkert að uppgötva parket?? En eldhúsið er stórt og gott, stofan er fín og baðherbergið mjög flott og snyrtilegt. Ég þarf bara aðeins að vinna í að gera herbergið mitt sætt, þarf nú ekkert ógurlega mikið til að gera það vistlegra! Alls ekki alslæmt, held að teppið villi manni bara sýn.. Svo skilst mér að hverfið gjörbreytist þegar allir stúdentanir fara að streyma hingað á næstunni, þannig að það verða ekki bara múslimar sýnilegir hér!

Það sem skiptir öllu máli er hvort að sambýlingarnir séu skemmtilegir. Og ég held að ég hafi dottið í lukkupottinn með þá! Ida hin danska er mjög indæl (alveg stereotýpískt dönsk!) og strákarnir, Matt og Ste, eru svaka hressir. Annar þeirra er MJÖG lágvaxinn, mér eiginlega hálfbrá þegar ég sá hann :) hinn hinsvegar langur og mjór. Við fórum út að borða öll saman í gær og duttum aðeins í það og það var alveg bril, enduðum dansandi inn í herbergi Matt og spilandi á gítar. Snilld! Ida var orðin dáldið full greyið og var sífellt að reyna að kenna strákunum dönsku og stundum að gleyma að hún var ekkert að tala ensku við þá heheheh, setningin KUN IS orðin klassík nú þegar – svona sagt með skerandi hárri röddu “kun iiiiiiiis!!” heeheheh..

Í dag fór ég út í rigninuna til að fara í sight seeing á vegum nemendafélagsins – hélt að þetta yrði í rútu en nei, labbandi :) Sem gerði auðvitað ekkert til, nema við urðum öll frekar blaut. Leiðsögustelpan var frekar hissa á að við ætluðum að skoða okkur um í þessu veðri og kvartaði endalaust yfir rigningunni allan tímann heheheheh.. smá svona úði og vindur! Miðborgin er ferlega sæt, það eru göngugötur um allt með FULLT af flottum búðum og litlum verslunarmiðstöðvum svo það verður erfitt að halda aftur af sér í vetur :) ég labbaði svo eitthvað aðeins um eftir að túrinn var búinn, fann Octopus búðina (þar sem ég keypti mína heittelskuðu brauðrist á sínum tíma) og keypti mér pela, þ.e.a.s. áfengispela. Ýkt flottur! Keypti líka Minicheddars. Elska Minicheddars. Svo fór ég í súpermarkað og rölti svo heim, var orðin ansi þreytt í líkamanum, er nefnilega með harðsperrur í handleggjunum og stíf í axlarvöðvunum eftir helvítis ferðatöskuna :) ætla bara að vera heima í kvöld og sortera sokkana mína eða eitthvað – safna orku fyrir helgina!

allavega, veit nú ekki hvort þið nenntuð að lesa þetta en þetta var svona smá til að lýsa mínum fyrstu kynnum af Leeds!