Við kallinn vorum að kaupa okkur flug til köben í ágúst!!:) Það er svona að eiga fullt flug punktum og vin í köben sem er að fara til kína:) reyndar er frekar fúlt að ingvi litli verði ekki þanna en við pössum uppá nýja slottið hans á meðan….svo erða bara öl, danmörk-england í Parken, tívolí, japanskt karókí með ívsa bró, tsjill á sólbakkanum o.fl. o.fl……ahhh….life is good….
Gíslabarn númer fimm.
30 05 2005haldiði ekki bara að ég hafi eignast eitt stykki lítinn bróður í gær:) eftir 28 (!!!!) klst ákvað hann að láta undan og koma í heiminn og við fengum að kíkja á hann í gær. héddna er hann með stóra frænda:) lítill fínn rauður og krumpaður búddah:)…en þetta á eftir að verða frekar flókið fyrir greyjið. Það tók Hallvarð lilla bró laaaangan tíma að fatta hver væri frændi sinn og hver væri bróðir sinn o.sfrv. Og þegar hann loksins áttaði sig á þessu þá var ég aldrei bara ávörpur sem Gurrý, það fylgdi alltaf líka “já, og þú ert sko stórar systir mín, ekki frænka mín”. bara svona til að vera alveg sjúr. En þetta verður líklegast ennþá flóknara fyrir herra nýjan ef e-ð er…Svo er Viktor hennar gústu sys orðinn frekar ringlaður líka. hann var ekki alveg að ná hvernig hann og mamma sín gætu verið að eignast lítinn bróður á sama tíma……ahh…hin týpíska íslenska fjölskylda….
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
það sem á dagana hefur drifið..
30 05 2005maður er alveg orðinn últra lélegur bloggari.. það er svona að vera ekki nettengingu heima hjá sér (sem verður lagað á næstu dögum) og mikið að gera svo kaffihúsin sitja á hakanum..
allavega; ÉG ER BÚIN AÐ FÁ FYRSTU SKRÁNA MÍNA
:) við bekkurinn vorum alveg óþolandi svona síðustu tvo dagana “is it here yet?”, “is it here yet?”… og svo endaði þetta með því að kennarinn keyrði með okkur niður á Loftleiðir til að opna fyrir okkur svo við gætum sótt þetta heheheh.. ég fer í fyrsta flugið til Köben 8.júní, einskonar kynningarflug þar sem við erum aukaáhafnarmeðlimir í einkennisbúningi.. en morguninn eftir fer ég svo í nákvæmlega eins flug með tveimur stelpum á námskeiðinu! ýkt gaman! en þetta þýðir að ein okkar mun gera farþegaávarp heheheh og það er spennó að sjá hver það verður. Svo flýg ég með tveimur öðrum úr bekknum mínum í öðrum flugum í júní vei vei.. Ég fer svo til Minneapolis um miðjan júní og New York í lok júní
:) Gaurinn sem gerir skrárnar er greinilega mjög móttækilegur fyrir hugskeytum frá mér því ég fékk öll þau frí sem ég vildi, án þess að hafa beðið um það!
Svo ég kemst í brúðkaup 16.júní, bústaðaferð daginn eftir og á Duran Duran. Vei!
Í gær var bekkurinn að busla í Sundlaug Mosó í öllum fötunum, í björgunarvestum og með björgunarbát – ógeðslega skemmtilegt. Við vorum heppin með veður og mér varð ekkert það kalt, en einn hópur í nóvember lenti í 19 stiga frosti við að gera þetta og fraus við bakkana og svoleiðis skemmtilegheit..
Á laugardagskvöldið sungum við Nobbar með Lady&Bird í Íslensku óperunni og það var rosalega gaman. Mjög skemmilegt að gera eitthvað alveg nýtt fyrir okkur, sæt lög og svo síðast en ekki síst að prófa að vera í kór hjá pabba
sjá hvernig hann stjórnar!
en jæja, best að hætta í bili..
wow ya all
loulou
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
dagurinn minn
25 05 2005Í dag var ég að æfa mig í að berjast við eld í handfarangursrými, inni á salerni og í ofni. Einnig að bjarga meðvitundarlausum farþegum úr farþegarými fullu af reyk með svaka súrefnisgrímu og allt. Svo að læra réttu hreyfingarnar við “…setjið grímuna yfir nef og munn og andið eðlilega..” ……..
nú er ég að fara á æfingu með Lady&Bird, en Nobili syngja með þeim á Listahátíð á laugardaginn.
Hvernig var ykkar vinnudagur?
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
gleðifréttir
22 05 2005Þvílíkur dagur. Rosalega góður dagur!!!!!
:) Mér sýnist að Háskólinn í Leeds sé búinn að taka við mér, báðar annirnar!!! Og einhverjum öðrum íslenskum nemanda líka! Ooooooog ÉG FÉKK ÁTTA Í ÖLLUM PRÓFUNUM!! vá hvað ég átti það EKKI skilið og satt best að segja skil ég ekki hvernig ég fór að þessu. Hvers konar einkunnir hefði ég fengið hefði ég actually stundað námið almennilega þessa önn????? Ég er í skýjunum. Samgleðjist!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Fyrsti í Júró.
19 05 2005Komasohhh selma!!! Ég hef fulla trú á því að hún komist nú amk í aðalkeppnina, but one never knows, þetta austantjaldspakk þekkir ekki gott júrótrashpopp þó það bíti þau í rassinn….en er fólkið ekki að grínast með búningana!?!?!?!??!? Þetta eru VIBBA ljótir búningar! ég er bara að vona að þetta hafi verið allt í plati og þau mæti á sviðið í kvöld í e-m geðveikum búningum…tah-tah! fooled ya!….það hlýtur eila bara að vera…En samt sem áður er maður bjartsýnn. Við íslendingar höfum nú svosum ekki verið þekkt fyrir það að láta gæði lags, flytjanda, atriðis eða búninga veikja okkur í trúnni um að núna komi þetta.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
It´s the season….
18 05 2005Nú er genginn í garð tími reykingarpása! Vanalega er mér nokk sama þó að reykingarmenn fái fleiri pásur en ég og solliss, en á sumrin tek ég það ekki í mál! Þá nebbla færa smókerarnir sig út á gras og sóla sig um leið. Þannig að á dögum eins og ég dag “reyki” ég amk pakka á dag;)
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
18 05 2005
Ég fann myndbandið sem Al kaida notar sem motivation fyrir liðsmenn sína. Þetta er svo öflugt tól að ég þarf að hemja mig svo að ég fari ekki að gera e-ð vont við næsta usa mann sem ég sé.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
sumri fagnað
16 05 2005Sumarpartý RÚV fór fram á föstudaginn – stemningin fór fram úr mínum björtustu vonum, var nefnilega hrædd um að fólk léti sig vanta í partý um hvítasunnuhelgina. En nei, stemningin var góð og ölvunarstig á háu stigi eins og vera ber.
Það var því lítil mygluð Lovísa sem vaknaði á árshátíðardag saumó á laugardagsmorgni. En rúmir tveir tímar í Saga Spa á Nýbýlaveginum læknuðu öll mein. Algjörlega frábært og félagsskapurinn skemmtilegur. Svo var mætt í Mojito til Þóru en Inga blandaði deadly blöndu og við gerðum nokkrum stykkjum á mann góð skil. Þaðan var haldið á Austur-Indíafjelagið. Amminamm besti matur heimsins og Cobra bjór sötraður með eða Cosmo. Við gáfum saumaklúbbnum nafn – First Wives Club – því þannig byrjaði þetta eila allt saman
Með Þóru sem undantekningu þar sem hún er gift sínum. Frá Hverfisgötu var haldið á Vegamót og ölvunarstig fór óðum hækkandi, sérstaklega eftir 2-3 Gajol skot ofan í Breezerana. Áskorun var spiluð þar sem Þóra dansaði súludans og ég nuddaði mér utaní einhvern vesalings karlmann og Fríða fór á drykkjahunt. Svo endaði þetta auðvitað á því að þær allra hörðustu urðu eftir – ég og Þóra – og dönsuðum okkur sveittar á Hressó.
Milljón myndir teknar og þær koma inn seinna. Ég var dáldið glær daginn eftir í vinnunni, en hátíðarmaturinn í mötuneytinu í tilefni hvítasunnunnar bjargaði deginum, einnig hangikjötið hjá mömmu seinna um kvöldið. Svo sökkti ég mér í fyrstu þætti fjórðu seríu 24 um kvöldið – hvolpurinn var svo góður að redda mér þeim – og ég sé fram á góðar stundir með Jack Bauer.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
london
12 05 2005þá er fyrsta flugið búið!! Ja hérna. Við fórum fimm sætar stelpur í æfingaflug í dag, full vél til London og svo aftur heim. Hef aldrei vaknað áður klukkan hálffimm og málað mig rosa sæta og passað vel upp á hárið og sett í mig linsur og allt. Þetta var hörkupúl og hasar og ég er svo dauðþreytt að það er ekki fyndið. En þetta var líka mjög gaman. Stjanaði meðal annars við Ásinn sem brosti fallega til mín og reyndi þannig að sanna af hverju hann er nokkrum sætum ofar en Fjarkinn. Við stóðum okkur víst voða vel og allir voða ánægðir – við vorum það líka. Ég er einu skrefi nær því að vera fullgild fluffa.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Nýleg ummæli