Ég kíkti í hádegismat til Gústu syz, Ívars Þórs ( ok, hann heitir það ekki alveg en ó vell…) og hadda núna áðan og þar var sko tekið á móti mér með pikknikki úti í garði hlöðnu bakkelsis gúmmilaði únd alles! mjég gott. Aþþí að það var/er sól og aþþí að þau voru að kaupa garðhúsgögn, þá varð nottla að testa bæði, sólina og húsgögnin. Svo akkúrat þegar haddi kom fram með frosna skyrkokteilinn þá hvarf sólin. En við nottla gáfumst ekkert upp! Bættum bara klökum í appelsínusafann og sóttum flíspeysur og dúnúlpur. Á endanum sátum við skjálfandi í skugganum með frosinn skyrkokteil og hrímað brauð. En maður skal nýta sólina!!
Annars er ég að fara að vera fótboltastjarna á eftir. Það er nebbla rúv fótboltamót í kvöld og það er greinilega svo mikil skortur á fótboltamönnum hér á frú að ég var meira að segja beðin að vera með!! Ég kýs nottla bara að taka þessu sem hrósi, hreystin hlýtur bara að skína svona af mér. Eníhú. ég er amk búin að dressa mig upp, komin með rauðar liverpoolstuttbuxur, fótboltasokka og frú liðsbolinn únd alles. Svo fékk ég líka svona sköbblúngahlífar hjá kallinum. Maður verður jú að verja sig þar sem ég geri fastlega ráð fyrr því að andstæðingarnir beiti tuddavörn eins og á Maradonna og skjóti mig niður til að losa sig við bezta leikmanninn. Svo fæ ég kannski líka nokkur spörk aþþí að ég er í liverpoolbuxum…ekki öllum sem líkar það.
Nýleg ummæli