komin heim eftir frábæra New York ferð. Ó, hvað það var gaman. Lagði reyndar af stað í ferðina pirruð og reið frá helvíti (sumt fólk hugsar ekki lengra en nef þess nær og það bitnar á öðrum) en sem betur fer tókst mér að gleyma því í vélinni.
Það var farið í þyrluflug yfir Manhattan, skautað í Rockefeller Center, Mojito sötraður, verslað, sungið (illa vegna kvefs) í karaoke með Japönum, mikið um að snýta sér því Flugleiðir voru dáldið í því að hafa loftræstinguna á milljónogfimmtíu, borðaður góður matur, Amstel Light þambaður, þrammað um borgina, venti skimmed hazelnut latte á Starbucks, hlaupið upp Rocky tröppurnar í Philadelphiu, gestrisnin drap Gunna og Karen næstum því og ég veit ekki hvað og hvað. Mikið gaman, mikið fjör.
er algjörlega uppgefin núna – á aðeins eftir að snúa sólarhringnum betur við.. set inn myndir síðar. Barasta nenni því ekki núna. Over and out í bili.
Nýleg ummæli