Það er einhver krónískur hnútur í mallakút þessa dagana. Margt í gangi.
Velheppnaðar æfingabúðir um helgina. Setning helgarinnar er (og gáta sem ykkur er frjálst að svara): Í HVAÐ SETUR MAÐUR JARÐARBERIN??
Það er einhver krónískur hnútur í mallakút þessa dagana. Margt í gangi.
Velheppnaðar æfingabúðir um helgina. Setning helgarinnar er (og gáta sem ykkur er frjálst að svara): Í HVAÐ SETUR MAÐUR JARÐARBERIN??
JÁ JÁ JÁ – og þokkalega verð ég reddí to pick up the pieces hehehehheheeheh.. eða ætti ég frekar að segja MÚA. .HA.. HAAA.. HAAA.. HAAAAAAAA með villtum svip og tilheyrandi froðufellingum..
..allt að gerast..það er verið að sýna beint frá landsþingi framsóknarflokksins og þingið byrjar með glæsilegri dagskrá, Karlakór með “þú álfu vorrar”, bollywood magadansari og svo Skólakór Kársness…..hummm…who´s the odd one out…
…jahérna, það er allt af verða vitlaust, kárneskórinn var klappaður upp…viltir þessir framsóknarmenn…
Ég fór víst línuvillt í námsáætluninni og 1000 orða verkefnið sem ég hélt ég ætti að skila á þriðjudaginn er í raun bara 500 orða – og þá sá ég að kannski kæmist ræðuliðið fyrir eftir allt saman…. – mætti á fund með þeim og sálfræðiliðinu til þess að ákveða efni… og hef ákveðið að vera með!!
já ég er geðveik – en þetta verður bara svo gaman
:) Til hvers að vera í háskóla ef maður ætlar ekki að taka þátt í öllu því skemmtilega sem er í boði??? Umræðuefnið er semsagt Karlmennska og við munum tala MEÐ. Það er náttúrulega sterkur leikur að hafa eitt stykki kvenmann í liðinu svo ég sló til – en þar sem ég er í raun mjöööög tímabundin skipti ég um hlutverk og er orðin liðsstjóri
Er það ekki líka bara við hæfi? að fara fyrir þremur sönnum karlmönnum með svona umræðuefni?
Hitti svo strákana í gær á Stúdentakjallaranum þar sem við breinstormuðum. Vá hvað þetta verður skemmtilegt. Liðið er nokkuð fyndið, við erum öll svo ólík. Hugsa að ég sé svona.. jah.. hvað segir maður.. minnst “artí” af þeim, svona “venjulegust” hehehehe.. stundum vildi ég óska að ég væri aðeins meira “artí”, aðeins hugmyndaríkari og frumlegri, þá kannski væri ég öruggari með sjálfa mig og svona – og stundum vildi ég alls ekki óska þess. Stundum er maður bara ekki í stuði að ræða við ofsalega artí fólk
en ok, þetta var smá útúrdúr, umræðurnar gengu semsagt glimrandi og við erum bara spennt fyrir þessu. Ef einhver hefur eitthvað til málanna að leggja, vil ég endilega heyra það
Það er bara svo gaman að reyna að fara út fyrir einhver mörk og spjalla um það. Það finnst mér að minnsta kosti.
Annars er bara margt on my mind þessa dagana.
held ég deyi bráðum úr stressi. Eftirfarandi þarf ég að gera á einni viku:
syngja í nokkrum jarðarförum
hitta ræðuliðið, ákveða efni og breinstorma um ræðurnar
skrifa tvær ræður, upp á amk 4 mín hvor
lesa fullt í námsefni
skila 1000 orða verkefni
ákveða lokaritgerðarefni og skila skilmerkilegri áætlun um hana
vinna tvo heila daga
fara í 3 daga æfingabúðir með kórnum
sýna Klapparstíginn og leigja hann út
klára verkefnið sem ég á að skila í dag
almáttugur. Eftir að hafa virkilega skrifað þetta niður, sé ég að þetta er ekki séns í helvíti. Verð barasta að draga mig út úr þessu ræðuliði – þótt ég hefði gjarnan viljað vera með. Tímasetningin bara afleit. I ain’t no Superwoman – þótt ég komist jú ansi nálægt því.
Vá hvað það var dekrað við mig í gær. Hvolpurinn afsannaði alveg mína kenningu um að hann væri óíbúðarhæfur – þegar ég kom heim úr vinnunni var hann búinn að taka til, vaska upp og var reddí með stærsta humar sem ég hef séð, tæp tvö kíló meira að segja. Enginn snjór í poka sem er víst seldur sem humar í 10-11 og ég borða með bestu lyst
Þetta eldaði hann svo oní mig með tilheyrandi meðlæti. Rokkstig til hans.
Svo á einhvern ótrúlegan hátt er ég komin í ræðulið bókmenntafræðinnar sem mætir sálfræðinemum á miðvikudag eftir viku. Það var og. Veit stundum ekki hvað hleypur í mig. Lovísa verður þar í hlutverki frummælanda. Ég verð að rifja upp taktana frá MR þar sem ég var í ræðuliði 3.G í frægri keppni þar sem einn liðsmanna minna klæddi sig úr öllum fötunum í hita leiksins og sprangaði um salinn, máli sínu til stuðnings. Við sjáum að minnsta kosti til.
híhí hér er the furball, tsjillum á að vera ógissla sætur!
annars var gott djamm í gær – sötrað á S37, horft á perrann (sem að sjálfsögðu vakti mikla lukku), dansað á Hressó og ölvunarstig var hátt og gott.
Hárið á mér er alveg vonlaust í dag. Það er lokkur sem stendur beint út í loftið ofaná hausnum á mér. Og ég er ekkert að ýkja. Það bara vill ekki fara niður. Ég er búin að reyna að slétta þetta og þvinga þetta niður með einhverjum efnum en ekkert gengur. Ég er eins og fífl. Gurrý sprakk úr hlátri þegar hún sá mig og það gerðu vinnufélagarnir líka. Eins gott að maður getur alveg haft smá húmor fyrir sjálfum sér
Fann spjallþræði um myndina á netinu – og þessa skemmtilegu grein. Mér actually hlýnaði um hjartarætur við að lesa quote-in úr myndinni. En vá, please, ekki gera remake, myndin er fullkomin eins og hún er núna og hefur þennan óútskýranlega sjarma – veit ekki hvort það myndi skila sér.
neeeeeeiii andskotinn!! er ekki verið að gríííínast?????
Gott videokvöld í gær. Við Beni-hópurinn létum verða af margumtöluðu “költmyndakvöldi”, það er að segja þar sem horft yrði á OKKAR költmyndir, myndir sem okkur þykir sérstaklega vænt um eða við dýrkuðum þegar við vorum yngri. Á Beni vorum við oft að spjalla og þá komu þessar myndir oft upp “oohhh muniði eftir þessari mynd, hún var æææði..”, “vá ég horfði eeendalaust á þessa mynd”, “þetta er ein af mínum uppáhalds”, “hafiði séð þessa mynd” og svo framvegis.. og létum slag standa og nú erum við að horfa á þessar myndir
Fyrsta kvöldið fór í Cry-Baby, en undirrituð hafði nú ekki gerst svo fræg að berja hana augum, í gær var svo horft á barnapíuklassíkina A Night on the Town (sjónvarpstitillinn var annar) með Elizabeth Shue í aðalhlutverki, en hún var í miklu uppáhaldi hjá meirihluta hópsins. Hún er æði! Á döfinni eru svo myndir eins og The Breakfast Club (mín uppáuppáuppáhalds), Svarti folinn, Who Framed Roger Rabbit, Dangerous Liasions , Baron Munchausen og þannig mætti lengi telja áfram. Svo var Ýr ansi húsmóðurleg og dældi í okkur góðgæti með glápinu, bakaði súkkulaðiköku, risa nammiskál og stærsti Chupa-sleikjópoki sem ég hef séð um ævina. Ofsalega gott mál. Óliver hinn persneski sló í gegn.. gangandi furball með risa augu
Helginni verður eytt í faðmi vina, félaga og vinnufélaga. Hlakka til. Það er aldrei leiðinlegt að eyða helgi á þennan hátt. Sé fram á nokkurt djamm – svona eins og venjulega – maður er jú svo vinsæll og eftirsóttur í alls kyns gleðskap
Já svo er Klapparstígurinn til leigu frá og með 1.mars. Allir að hafa augu og eyru opin fyrir einhverjum sem vantar þak yfir höfuðið.
Nýleg ummæli