Þá er það ákveðið! Svona bústaðaferð fyrir jól verður árleg…það er ekkert smá næs að slappa aðeins af og byrja prósessinn að stækka magann. Við Hjörtur og Bjarki tókum því bara frekar rólega á föstudeginum, grilluðum mjög svo exótískann jarðaberja-skyr-kjúkling, drukkum mikið af rauðvíni, átum mikið af ostum og þökkuðum guði fyrir að hafa ekki farið í pottinn alsgáð í dagsbirtu þar sem grunur lék á að óvenju mikið af náttúrugróðri hefði náð að festa rótum- sá grunur var staðfestur á sunnudagsmorgninum þegar kom í ljós að á vatnsyfirborðinu flaut fallega græn slýja. Á laugardaginn eignaðis t ég svo vin. lítinn loðinn vin sem ég lokkaði til mín með Tuc kexi. Með okkur tókust miklar ástir þar til hann fékk ekki meira Tuc, og þá sást hann ekki meir. Bastard. mikil plön mín um að ganga um sveitirnar mér til heilsu og yndisauka urðu að engu þar sem það var allt í einu orðið dimmt og ég ennþá í náttfötunum. En heilinn var svo sannarlega æfður þegar ég rústaði my fellow bústaðaríbúum í Scrabble. Þeir fá aldrei að gleyma þessu. Svo kom restin af fólkinu, þá var meira grillað og meira drukkið og meira spilað þangað til að vil urðum að hætta því sökum illdeilna. Þá var bara farið í pottinn aftur. í dimmu sem betur fer. Svo endaði þetta bara allt í bulli og vitleysu, Captain Morgan flaskan teyguð. Bland er líka bara fyrir aumingja með hor. Snilldar helgi. Og hér eru nokkrar myndir…
Nýleg ummæli