ég bókaði ammælis gjöfina mína áðan og fer í desember til flottustu trukkalessanna í London! weeheee! I can just see it: pino í stað vatns alla helgina, hangið með vic og Charlie á börnum þeirra eftir lokun þar sem bestu 3ja manna partýjin urðu ósjaldan til, lúftgítarsólóin tekin við “I believe in a thing called love”, Allir gay staðirnir í Soho þræddir – kannski verð ég þá aftur ættleidd af 2 ofurhommum sem klipu mig í kinnar og fannst ég the cutest thing ever, fannst ég svo líka vera alveg eins og E-r Sjúgabeibs gella og voru sjálfskipaðir lífverðir mínir inná G.A.Y sem VIRKAÐI actually fólk trúði þessu og hleypti okkur í gegn!?!?!….aaahhhh london…….svo verður örugglega búið að skreyta allstaðar og ég missi mig just a tiny bit í að versla…en það má, því að jesú á bráðum ammæli….. Það eina sem vanntar til að endurskapa Londondraumaveröldina er lou.
juxtapós
27 10 2004já “huh?” er líklega orð sem fæðist á vörum ykkar þegar þið lesið titil færslunnar. Jújú hér er á ferðinni nafn nýrrar Búdrýgindaplötu sem kemur út í nóvember skilst mér (engin ábyrgð er borin á stafsetningu orðsins, þar sem það er ekki til!!). Viktor bró leyfði mér að hlýða á gripinn í gær og þetta lofar aldeilis góðu
Margt auðvitað sem ég fíla ekki, dáldil læti og svona.. en vá þeir eiga aldeilis rosalega góða spretti!! Er mjög stolt af bróður mínum!! Hann útsetti svaka flotta strengi á nokkur lög og samdi mest catchy lag plötunnar! way to go bro!
Hvað er málið með Idolið? ég bara spyr. Ég er bara gapandi eftir þessa þætti með áheyrnarprófin. Hvernig dettur þessu rammfalska liði í hug að fara í áheyrnarprufu????? og skilja svo ekkert í því að komast ekki áfram og alveg háskæla! Hver er eiginlega ávinningurinn af því að vinna hið íslenska Idol??? ENGINN!! Ekki er Kalli Bjarni að meika það svo draumurinn um að verða poppstjarna Íslands í lengur en kortér er alls ekki garanteraður. Ég bara næ þessu alls ekki. Og nú er ég að fá ógeð á spurningunni “af hverju fórst þú ekki í Idol?”. Hmmm gee let me think. Ég myndi alveg fara í enska Idolið ef ég mætti/gæti uppá flippið – þar er jú til mikils að vinna, maður verður amk milljónamæringur! Hér fær maður Skífusamning (jei).
Ég gerði rosa uppgötvun!! Ég þarf nýja barnapíu!
held nefnilega að night of shame um daginn hafi barasta ekkert verið mér að kenna heldur V I N K O N U M mínum sem eru of uppteknar að horfast í augu við nýju kærastana til að passa upp á dauðadrukkna vinkonu sína!! Hananú!!
hahahahha… Sáu ekkert athugavert við það að ég myndi labba ein heim í þessu ástandi heldur bara “já bæ bæ” hehehehhe.. sé þetta svooooo fyrir mér
en já staða pössunaraðila/djammfélaga laus til umsóknar! Verður að geta uppfyllt bæði skilyrðin!
Verð nefnilega að viðurkenna eitt. Er svo ógó hrædd um að smitast af rómantíkinni í kringum mig. Þannig að ég er að þykjast vera bitur. Týpískt ég núna að hugsa of langt fram í tímann og vera eitthvað hrædd um að vera eitthvað að rómóast – en þetta er mjög markvisst hjá mér. Verð kannski að reyna aaaaaðeins að go meira with the flow. Eða hvað? Híhí þetta togast svooo á í mér.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Jaqueline Bauer
27 10 2004Djöfull er gaman að vakna þegar mar er búin að vera að bjarga heiminum alla nóttina! ég var sum sé komin inní “þátt” sem var sambland af 24 og Alias og var að bjarga heiminum frá e-i sprengju sem aðal ráðgjafi Bush setti af stað til að Bjarga kosningunum (uuuhhh…?)…en svo var eins og reality caught up with me því að allt í einu var ég stödd við rætur Kötlu sem var farin að gjósa og ég breyttist í Gurrý skriftu sem fór að hafa áhyggjur af því, meðan ég var að forða mér og öðrum frá hraun-rigningu (?), að ég ætti að vera komin niðrí efstaleiti að taka þátt í neyðarútsendingunni og logga allt sem gerist. WHy!?!?!?!…Eilítið minna spennandi en að bjarga heiminum… Þetta er samt skárra en um daginn, því að þá “var” ég karakter í teiknimyndinni “Villti folinn” alla nóttina (ok, gæti hljómað eins og e-ð pervertískt…en nei. bara Pixar) …mjög spennó. ég ætti kannski að byrja að taka lyfin mín.
en í dag er fiskidagur! fít-fíjú! Bjarki eldaði geeeeeðveikan fisk frá fiskibúðinni á suðurlandsbrautinni sem-ég-maniggi-hvað-heitir í seinustu viku ….mmmm…..er nýji aðdáandi nr.1….nú skal þetta gjört aftur.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
draumóramanneskjan ég
26 10 2004Jæja. Ég þarf að get a grip í skólanum. Eyða meiri tíma í lærdóm. Og kannski ekki að dreyma dagdrauma og fantasera um hina og þessa hluti í tímum. Samt finnst mér gaman í skólanum, ég bara geri þetta alltaf, læri bara ekki nema undir pressu. Alveg ferlegt. Af hverju er maður alltaf á síðustu stundu með allt? Af hverju af hverju af hverju? Af hverju get ég ekki.. lifað venjulegu lífi.. og svo framvegis eða hvernig sem lagið er
Já svo fór ég í klippingu í dag. Er enn meira rokktsjikk en áður. Á samt eftir að skoða betur hvort þetta er OF strákalegt. Nei nei. Bara nettur Rod Stewart í gangi.
Ég ætlaði að vera heví sæt í skólanum í dag.. kom svo mjög feykt í skólann með tárin í augunum eftir kaldan vindinn og Roddinn í hárinu alveg hrikalega ýktan.. svo ég geri ráð fyrir að planið hafi misheppnast herfilega.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
26 10 2004
helgin hefði varla getað verið betri. en ekki meira um það, því að ég nenni ennþá ekki að blogga. en ég var hinsvegar að setja inn myndir frá Októberfestinu á föstudaginn. hér er það, versogú.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Síðan ég bloggaði síðast:
25 10 2004- hefur óheyrilegt magn bjórs og víns verið innbyrt
- hef ég sungið Vem kan segla í röddum eftir innöndun helíums
- hef ég næstum pissað í mig af hlátri yfir SNILLINGNUM, sem steig villtan dans á Markúsartorgi í hlýrabol og hotpants
- hef ég tekið þátt í boðhlaupi og borðað súrar gúrkur
- hef ég vaknað og uppgötvað mér til skelfingar að ég ætti að vera mætt í veislu eftir 2 tíma
- var Djúsí saman í partýi án þess að taka lagið (ja hérna)
- hefur góð vinkona fengið opinberlega titilinn cand.jur.
:) Til hamingju Sigga mín!!
- fékk ég Everybody´s Changing inn á talhólfið mitt
:) TAKK TAKK TAKK TAKK
- var sett upp loftljós heima hjá mér TAKK TAKK TAKK TAKK
- dvaldist ég á Ölstofunni örugglega samanlagt í svona 10 tíma
- reyndu tveir menn að draga mig á tálar sem er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þá skemmilegu staðreynd að á þeim er 21 árs aldursmunur
- hef ég farið í leikhús á Geitina. Spes.
- er ég komin í nemendafélag bókmenntafræðinnar… gat nú verið
- samgladdist ég Manchester United! ótrúlegt!! Fölskvalaus gleði van Nistelrooy smitaði mig bara og ég fékk næstum tár í augun
- hef ég ekki opnað skólabók
- FÉKK ÉG ÞÆR FRÉTTIR AÐ JULIE ER AÐ KOMA Í HEIMSÓKN!!!
:) það verður að vera svaka partý til að hugga Danann í ástarsorg, komin til að gleyma sér í villtum partýum Reykjavíkurborgar
- hef ég samglaðst vinkonum mínum innilega. Ástin lekur af þeim. Wow u all!
until next time
loulou
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Októberfest!
22 10 2004….verður haldið á Markúsartorginu í kvöld. þar verður nægur bjór, bratwúrst púlser, sáerkrát og þýska stálið!….ætti að vera þrusugott. Helgin lofar líka ógessla góðu, pabbi ætlar að hafa Lunda-ammælis feast fyrir mig á morgun:)!! fítfíjú! þar verður grafinn lundi, Lundi í gráðostasósu og Grillaður lundi marineraður í BBQ sósu….grrrr…..pabbi að experimenta aðeins með þjóðarrétt fjölskyldunnar….
…annars þjáist ég af e-i blogg tilvistarkreppu þessa dagana…ég hef voða litla löngun e-ð til að opinbera my actions á veraldarvefnum…mar veit aldrei who´s watching….dammdammdamm…og þangað til að það breytist þá verður þetta e-ð fátæklegt …
En allir á Airwaves á Kapital annað kvöld!!
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Á dögum eins og í dag…
19 10 2004…er lífsins ómögulegt að vakna
…á maður greinilega ekki að setja í sig linsur. þær detta bara á gólfið
…á maður heldur ekki að reyna að fá sér af salatbarnum. hann hrynur bara.
…spái ég mikið í því hvernig í ansk. ég endaði á að vinna við e-ð algerlega óskylt því sem ég lærði
…er eina ljósið að í kvöld fær mar besta kúr-ið:)
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
19 10 2004
Jæja þá er maður rétt að jafna sig eftir erfiði helgarinnar! Það var sko þokkalega annar í þynnku í gær, var viðbjóðslega ljót í vinnunni
Gott partý hjá Gurr, gott þynnkupartý hjá Hafsteini daginn eftir svo það er ekkert nema gott um það að segja. Minna gott að segja um mig eftir að ég yfirgaf partýið hjá Gurrý – Lovisa´s night of shame – en jæja, ekkert við því að gera svosum
Var mjög fegin að heyra að það voru víst fleiri í sama pakkanum.
Ég fauk í skólann í dag – ókeypis hárblástur í boði móður Náttúru. Mér til mikillar gleði sé ég að það er búið að plana bjórkvöld hjá bókmenntafræðinni á fimmtudaginn!! jibbíííí
loksins eitthvað að gerast í félagslífinu! Þannig að það er eitthvað að gerast hjá mér á fim, fös og lau! :/ ekki seinna vænna að jafna sig eftir helgina!!
Hef tekið ákvörðun um að segja ekkert um sæta stráka á blogginu heheheh þetta er bara OF lítið land til þess!! Jæja best að fjúka áfram í tíma..
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Lovísa
Perfetto!
18 10 2004
helgin var aaaaæææðisleg. í hnetuskel var hún:
+ Föstudagurinn: ammælisfögnuður nr.1 með Margréti og Guðbjörtu: idol-hvítvín-Tapas-hvítvín-ölstofan-hvítvín = gott kvöld.
+ Panikk á laugardagsmorgun yfir því að þynnkudjöfullnn væri kannski búinn að ná mér. Slapp naumlega. Kannski nær hann mér þegar ég verð 26.
+ Var domestic godess allan daginn. prýdd gylltri ammæliskórónu bruggaði ég bollu, gerði salsa dýfu og þurrkaði ryk.
+ ég uppgötvaði að vinir mínir eru bestir en líka geðveikir!! thanks to them þá er ég á leiðinni til London!!! je beibí!
+ ég fékk alveg fáránlega flottar gjafir! note to self: halda ammæli oftar en á 5 ára fresti. Nú get ég t.d. farið í Leikhús í “stupid factory: where boys are made”- bolnum mínum, með ný-slétt hár ( því annars er ég eins og allir vita með fagurlega liðaða lokka) nýbúin að drekka kaffi í fínum bollum, tekið mynd af því öllu á fínu rauðu digital myndavélina og svo horft á Peter Grimes á dvd eftir á. Juppí!
+ Partýjið var ógessla skemmtilegt! ég held að skot og bolla úr 50 Vodka blönduð af mér= mjög sterk, hafi stuðlað að trylltum dansi, gítarspili og almennri gleði. Sjón er sögu ríkari, og hér eru myndirnar.
+ ammælisdagurinn sjálfur var eins og best var á kosið, Þynnku-veisla og mikið af kúri allan daginn….
+ niðurstaðan var góð helgi. Nú verð ég hinsvegar að neyðast til þess að hætta að kaupa handa sjálfri mér dýra hluti og nota þá afsökun að ég eigi bráðum ammæli. en það verður ekki lengi svosum, því bráðum fer afsökunin “af því að Jesús á bráðum ammæli” að ganga í gildi;)
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Gurrý
Nýleg ummæli