á nálum

1 09 2004

í dag er skrítinn dagur. Peningalega séð. Nú þarf ansi margt að smella saman svo loulou sé ekki í hnédjúpum. Ligg á bæn. Margar ákvarðanir teknar í gær í heilsuleysinu. Dreymdi líka mjög skrítið í nótt – mikið af reddingum í gangi.

Ólympíuleikarnir búnir. It´s an end of an era. Eða eitthvað soliss. Skrítið að það séu svo ekki aftur leikar fyrr en eftir FJÖGUR ár.. sem líða alltaf svo óþægilega hratt. Hvar verð ég eftir fjögur ár? hmmm… í master í bókmenntafræði/leikhúsfræði/einhverju öðru.. börn? með mann? jah, hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Vonandi verð ég amk í útlöndum. En já – rokk Ólympíuleikanna eru nokkur: Þórey Edda – gaman að öskra af gleði á sjónvarpið þegar hún vippaði sér yfir, góð stemning á fréttastofunni þá! Einnig fyrir bara að vera flott!!! Rúnar Alexandersson – frábær frammistaða. Björn Friðrik – fyrir að vera sá allra allra bjartsýnasti og alltaf jákvæður, alltaf svona glaðlegur tónn í röddinni.. m.a.s. þegar handboltaliðið var alveg með allt niðrum sig og hendandi boltanum útaf þá bara “já, ætli boltinn sé ekki eitthvað sleipur”.. og svo aðalrokkið fær æsti lýsandinn (held hann heiti Sigurbjörn eða eitthv soliss – Samúel Örn m mjög lágan blóðþrýsting miðað við hann – enginn lakkrís fyrir Sigurbjörn!!) sem tapaði sér ALVEG í einhverju 1500 metra hlaupi karla og öskraði úr sér lungun og maður skildi ekki orð.. og sagði svo eftir æsilegan endasprettinn þar sem næstum því var sett heims-og ólympíumet og ég veit ekki hvað og hvað “jáh, þetta var bara alveg eins og á Landsmótinu í fyrra!”… Já alveg eins! BWAHAHAHAHAHAHHA

óheyrilegt 24 gláp í gærkvöldi. Heldur vonandi áfram í kvöld. Einnig mikið hlustað á nýju diskana mína. Líst ansi vel á Razorlight! Helvíti góðir. Var á cold turkey samt allan daginn – Eiginmaðurinn m Keane í láni svo ég gat ekkert hlustað á Everybody´s Changing. Horfði svo líka á Sleepless in Seattle sem ég fékk lánaða hjá Þóru um daginn. Felldi nokkur stelputár :) alltaf gott :) Myndin jók nú bara á New York löngunina hjá mér. Urg. Byrja að safna!!


Actions

Information

One response

25 08 2008
fjórum árum síðar « Hölt leiðir blinda..

[...] veginn. Flýgur hreinlega hjá. Ég bloggaði um þessar pælingar mínar fyrir fjórum árum. Hér er færslan. Ekki var ég beint sannspá, en það er líka bara allt í lagi. Þetta voru fjögur FRÁBÆR ár [...]

Skrá ummæli