….er veðrið í dag. En verandi íslendingur á maður að vera búinn að læra að láta veðrið ekki hafa áhrif á skapið. Er það hægt?!?? bara bull. ekki það að ég sé e-ð að fara að leggjast í kör út af smá vibba, en ég get nú ekki sagt að mar hressist við þetta. Þá er bara eitt að gera. Setja Belle og Sebastian: Dear catastrpophe waitres á fóninn, því hvernig er annað hægt en að komast í bubblu-skemmtilegt skap þá!?!?! “…say my place at nine…” ladída….
ok, ég er ekki alveg að skilja eitt í sambandi við ólympíuleikana og fréttaflutning af okkar keppendum. Af hverju í ósköpunum fékk Rúnar Alexandersson ekki meiri athygli og umfjöllun?!?!? jú ok, hann er með heilsíðuauglýsingu í mogganum í dag og solliss sem er nottla íslandsbanka dæmi og frekar seint í rassinn gripið. en ekki vissi ég t.d. að hann hefði verið eini norðurlandamaðurinn sem komst á ólympíuleikana og sá fyrsti sem kemst í úrslit! sama hvaðan hann kemur upprunalega þá keppir hann sem íslendingur, þannig að ekki á það að skipta neinu máli. og með fullri virðingu fyrir Þóreyju Eddu, þá eretta nú ansi mikið betri árangur finnst mér. og hana nú.
…eiginkonan er lasin heim og ég skilin ein eftir í vinnunni. Það finnst mér ekki fallega gert. En þrátt fyrir þessa illu meðferð ætla ég að fara með 24 til hennar á eftir og gefa henni eitthvað að borða.
Nýleg ummæli