Blogg þurrð….

30 06 2004

ég er búin að komast að því að netheimur þjáist af bloggþurrð þessa dagana! þegar ég geng minn vanalega blogghring á daginn þá les ég sjaldnast e-ð nýtt (nema þá frá Kjánanum sem sér mér alveg fyrir skemmtiefni með snilldar linkum) veit fólk ekki að X mörg prósent af mínum vinnudegi fer í að hnýsast í annarra manna mál!?!?!?! jÁ, koma svoh fólk! blogga!!

….annars er vinnudagurinn búinn að vera einstakelga skemmtilegur. Var “valin” úr einvala liði fólks til að vera í “spurningu dagsins” í DV….spurt var: “ertu hrædd við köngulær?”….why????…en þar með opinberaðist góðmennska mín alheiminum þar sem eg tjáði blaðinu því að ég bjarga svona eins og einni loðinni á dag þar sem þær taka á móti mér fagnandi í baðinu á hverjum morgni. Þá erða bara glas, blað og köngulóin fær frelsi. mér finnst reyndar bara aðallega svo ógesslegt að drepa þær. SVo var ég plötuð í mötuneytinu í dag. Note to self: aldrei treysta kokkinum þegar hann reynir að pranga uppá þig pizzu sem þú máttiggi sjá og matartíminn er að verða búinn. Eftirrétturinn hennar eibs á Altea var hátíð í samanburði.

…jæja…þetta er orðið langt og leiðinlegt. Dagbókin hin æsispennandi awaits!!





The evidence

29 06 2004

jæja, þá er búið að endurlífga liðinn “mynd dagsins” ekki nema að þetta eru myndir aðfararnætur gærdagsins….en ó vell….þetta er skýring tussulegheita gærdagsins…versogú Myndir aðfararnætur gærdagsins!





Gammel Dansk angan..

28 06 2004

…já vá, ég hef aldrei verið eins tussuleg í vinnunni…kom of snemma (sem passar ekki alveg inní koma ,tussuleg í vinnuna söguna, en óvell, lovísu að þakka), ógeðsleg útlítandi og angandi af gammel dansk…glæsilegt…þetta var líka alveg fáránleg “uppvakning” í morgun, síminn fór e-ð að bípa og víbra og lovísa fór að tala um 17 straujaðar skyrtur, ég var svo sofandi og var alveg viss um að síminn væri að faxa, eða sko að það væri að koma fax úr símanum…svo sofnaði ég afur og dreymdi föx og 17 straujaðar skyrtur. Ekki frá því að ég hafi verið í ansi góðri áfengisvímu ennþá.

….en jújú, mjööög gaman í gær í the house of fun! húsið hefur hér með verið vígt! Sumir innastokksmunir betur en aðrir, eldavélin var t.d. vel vígð í rauðvíni. skál fryir því….

Ég hefði verið til í að eiga í spólu þegar ég og eibs vorum að reyna að koma rúminu inní herbergið!! note bene, þetta eru bara 37fermetrar og við sigfríður greinilega ekki svo bjartar. Amk vanntaði bara klaufabárða-lagið til að fullkomna þetta. Við náðum e-n vegin að festa okkur í andyrinu og svo þegar það leystist þá fórum inn og út úr stofunni all oft og reyndum að snúa rúminu á alla kannta áður en það komst inn. Verkvitið alveg að drepa okkur.

T- in the park.

já ég læt mig ennþá dreyma um að fara, og núna er ég loksins búin að gera e-ð rótækt íessu! Bara búin að bjóða í miða á e-bay! daddarrada! og svo er bara að sjá eftir 6 klst og 23 mín hvort að e-r hafi boðið betur! mér finnstetta voða spennó, er e-bay virgin. en það væru nú alveg líkt mér að hafa slysast inná e-ð fake e-bay og verð rænd. ekki jafn spennó.





Welcome to The House of Fun

28 06 2004

Já það er sko alveg hægt að saka mig um að vera tipsy í vinnunni. Kannski ekki bara tipsy. Nánast bara blindfull hehehehhe…

Semsagt, ég gisti fyrstu nóttina í nýju íbúðinni í nótt. Gurrý kúrði hjá mér. Það var vooooða gaman hjá okkur í gær, við byrjuðum að sötra yfir leiknum (EM guðirnir EKKI á mínu bandi í ár) og svo bara héldum við áfram og áfram. Svo komu hafs og nonni í heimsókn og hafs kom með housewarming, Gammel Dansk flösku.. við Gurr stútuðum henni svo eftir að þeir fóru.. aaaaaaaaldrei aftur!!!!! ældi næstum því! svo vorum við alveg komnar á “ælovjú” stigið og skriðum í bælið seint og um síðir. Hehehheh þar kynntist Gurrý alveg nýrri hlið á mér.. eeeehhh nei perrarnir ykkar, ekki roaring sex animal hliðinni hehehhehhheh heldur ruglinu í mér rétt áður en ég sofna heheheheheh.. uppáhaldsiðja Hafs í næstum fimm ár að tala við mig á móti í þessu ástandi og hlæja að mér.. :) ég semsagt fór að tala við hana um að sem betur fer væru nú 17 skyrtur tilbúnar sem ekki þyrfti að strauja og ég veit ekki hvað og hvað… gurrý var eitt spurningarmerki bara “ha, hvaða skyrtur?” og ég hreytti í hana “æ ég útskýri seinna” hehehehhehehe

íbúðin vooooða heimilisleg. Nottla pressa að ég verði flutt inn fyrir föstudag!! Settum upp gardínur, Þorbjörg hin yndislega og yndisfagra gaf mér rúm og við trítluðum með það á milli húsa, aðeins 5 hús á milli okkar.. settum upp svona glitrandi hengi fyrir eina hurðina (hvað heitir þetta nú eiginlega??) og negldum upp fjórar myndir klukkan eitt í nótt, voða vinsælt heheh.. allavega, er að tapa mér úr hamingju yfir fínu sætu íbúðinni minni sem mínar yndislegu vinkonur hjálpuðu mér við að mála og gera fínt. Love them.

Kosninganóttin var fyndin. Var á vaktinni hér í RÚV. Kom alveg glimrandi fín í vinnuna því ég ætlaði á djammið, alveg á fínu skónum og stífmáluð. Svo í útsendingunni var ég hlaupandi um allt hús á milljón, án gríns, með nýjar tölur og hlaupa með þær inní stúdíó alveg móð.. var orðin sveitt og eins og fáviti á fínu skónum og stífmáluð. Way to go Lovísa.





EM-óhamingja

25 06 2004

Ég er í algjöru rusli. Ömurlegt að England komst ekki áfram. Og eftir fokkings fokkings vítaspyrnukeppni!!! Ég VISSI að þetta myndi enda svona í gær! æh, þetta er eitthvað svo sorglegt. Ég hélt með þeim af öllu hjarta. Mér skilst líka að England sé í rusli, Vic sagði á MSN að þetta hefði verið gott að gleyma sér í EM.. England hefði þurft á þessu að halda. Brostnar vonir.. ömurleg tilfinning. Hef misst EM áhugann í augnablikinu.





24 06 2004

……..ég er búin að vera með “litlu andar ungarnir..” á heilanum í allan morgun…hvað er málið!?!?!?…skemmtilegur morgun….annars er allt að verða vitlaus hérna, eða sko karlpeningurinn á erfitt með að hemja sig amk. Rússneski skiptineminn úr American pie er búin að vera í húsi í allan morgun, og hún er nú ekki það ljótasta sem maður hefur séð…og það sást ansi mikið af henni í myndinni…Ég mætti immitt Davíð frammi á gangi áðan með spenntar rasskinnar, ný uppsett hár og bros á vör í von um að rekast á hana aftur, hún er reyndar með kærastann með, sorrí strákar;)…

…potter var góður í gær, hann litli radkliff eða what´s-his-face er næstum því búinn að læra að leika.

Jæja, hvern á svo að kjósa!?!?!?!? Vill maður A) Jólasveininni á Bessastaði? (það gæti reyndar verið svoldið sterkt move svona þar sem sumir eru að halda því fram að hann búi í finnlandi eða e-ns staðar)…eeeða B)Mann mað aðeins-of-starandi augu til að manni standi á sama… já, eða … C) hann Óla grís sem er tjah, engin vigdís, en er alveg búinn að standa sig ágætlega. hummmm…..let me think…mig langar nú reyndar mest að mæta með home made seðil þar sem stendur á VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR og seta feitt X við það.





23 06 2004

…immitt þegar ég ákveð að vera voða sumarleg í stuttu pilsi í vinnunni þá fer nottla sólin og það er komin súld og gaddur liggur við!! er þetta e-rt hint til mín og míns stutta pils!??? maður spyr sig. amk ætla ég að láta sækja mig í vinnuna svo að ég fái ekki blöðrubólgu á leiðinni heim. ég er hætt að reyna að vera fín og sæt.

ekki það að maður á náttúrulega að vea búinn að læra að það er aldrei gott veður hér 3 daga í röð, get bara sjálfri mér um kennt…

….annars erða bara máleri hjá lou og svo harry potter í kvöld!! weeheee! ég er svo sein að ég var bara að klára 3ju Potter í fyrradag, og nú get ég ekki beðið eftir myndinni og eftir að byrja á nr.4! ég veit ekki hvað ég á af mér að gera þegar ég klára allar! ekki nema að byrja bara aftur.





Who needs men?

23 06 2004

Ég, Þóra og eibs máluðum í gær. Fórum umferð nr.2 yfir stofuna og eina yfir restina. Dilluðum okkur við tónlist á meðan og Þorbjörg og Hrafnkell Daði komu í heimsókn. Sá stutti alltaf sami sjarmörinn. Svo var þetta voða heimilislegt hjá okkur, tengdum sjónvarpið, hlunkuðum okkur á gólfið og horfðum á Danmörk-Svíþjóð. Rokk. Við vorum þvílíkt karlmannlegar í gær: Máluðum, átum pizzu, drukkum bjór og horfðum á leikinn!! :) :) Snilld snilld. Eini munurinn er að við drukkum Víking Lite :)





ROONEY BABY!!!!

22 06 2004

ó my fokking god hvað maðurinn (barnið öllu heldur) er GEÐVEIKUR!! Maður var alveg að tapa sér yfir leiknum í gær, Little Wayne, fallegir karlmenn og englendingar ekki að skíta á sig!…fjarri því! nema kannski Owen, var ekki alveg að ná því hvað hann var að gera inná yfir höfuð….ekki nema að prýða liðið með fallegu andliti svosum…fallegur kroppur hann James, og askoti gott sjónarhorn á Beckham þarna í seinni hálfleik;)arrr Posh you lucky devil you!

Annars er Þórir kjáni búinn að smita mig af e-um óþolandi “fullorðins” pælingum…allir að að gera a-ð nytsamlegt og gáfulegt nema ég og solliss…ekki nema að mér er slétt sama um börn og mann og allt það, það má bíða út í eilífðina for all I care. en hvað gerist ef það sem maður er búinn að ætla sér að verða síðan mar var 6 ára, og er búinn að eyða ca.10 árum í að mennta sig í(svo ekki sé talað um pjéningana), er svo bara ekkert það sem mar vill, eða öllu heldur ætti að vera að gera!?!?! það er frekar pirrandi, og allt of erfitt að finna e-ð annað núna (mk í dag þegar það er sól go solliss). ég verð bara róni sem lifi á ríkinu…….

COMMMOOOON EEEENGLAAAAND!!!!!!!





EM-hamingja

22 06 2004

ókei hvað er málið með fallega menn á EM í ár?? :) og hvað er málið með fallega markmenn!?! Hinn danski Sørensen er nottlega ferlega sætur, eitthvað svona strákslegur sjarmi yfir honum. David James hinn enski sjúklega fallegur.. og kroppurinn á manninum, kræst, var nærmynd af honum fara úr bolnum í gær og ég hélt það myndi líða yfir mig hehehehehe.. og sjálfsöryggið geislar af honum. Væri til í svona fótboltabol, nr.1 JAMES aftaná, mér finnst það heavy kúl :) Buffon hinn ítalski karlmennskan uppmáluð, testosteronið oozar af honum! Ítalska liðið fær þvílík rokkstig fyrir flott hár, hálfleikur hjá þeim er væntanlega allur fyrir framan spegilinn að laga greiðsluna til.. svo nottla Barthez mín gamla ást, hann hefur þetta ennþá.. en hinir eru nú komnir framar í röðina hjá mér :) Svo Beckham, Lampard, Raúl, Zidane með nýja hárið gvuðsélof, all sexy again, Figo og svona mætti lengi telja áfram. Ég er heavy sátt.

Ekki skemmir svo fótboltinn sjálfur! Við Gurrý vorum hæstánægðar með frammistöðu okkar manna í gær, sátum í beer&burger á Players og æptum á stóra skjáinn. Ég missti nú úr slag við markið hjá Króatíu.. en svo varð allt gott aftur :) :) ROOOOONEY ROOOOOONEY ROOONEY.. þvílíki snillingurinn sem þessi drengur er! Átján ára!! er ekki í lagi?? Maðurinn er allt í öllu, ótrúlegt auga sem hann hefur og bara sjálfstraustið er ótrúlegt. Húrra fyrir Rooney. Hugsa að bolir merktir 9 fari barasta framyfir 7 í sölu :) Á fimmtudaginn mætum við svo Portúgal. Við ætlum að mæta í búningunum okkar og senda allar góðar hugsanir til þeirra.. ekki veitir af. En ég er sannfærð um sigur. Þeir geta þetta alveg! Við erum nú líka að gæla við að bóka ferð til London fyrstu helgina í júlí. Þá fer fram úrslitaleikur EM.. og leikurinn um 3.sætið off kors.. svo ef England verður með, þá væri stuð að vera á staðnum og slá þannig tvær flugur í einu höggi, vera í alvöru stemmara OG heimsækja Vic&Charlie :) :) en það gæti verið dáldið dýrt.. kemur í ljós!

ó mæ god, var að frá frí eftir hádegi!!! :) :):) yfirmaðurinn minn er SNILLINGUR!! :) :) þokkalega verður það bikiniið útí garð á eftir! Málningarvinnu í nýju íbúðinni frestað þar til í kvöld vegna veðurs!! þar til eftir leik!

og já by the way, skrilljón BENI myndir komnar inn :)