28 05 2004

já mikið rétt, seinasti dagurinn í dag. yupee fyrir því! ég skil engan vegin akkuru ég er ekki að væta mig af kæti, en það er bara ekki búið að registrerast hjá mér að ég sé að fara í sól og sælu og kokteila….en það kemur. …ég réð hann davíð áðan til að koma með og bera á okkur olíu, færa okkur kokteila und so weiter, þannig að þetta lítur afskaplega vel út….

…en ég er ekkert að segja meira um gærkveldið, lou has said it all, en við slóum nottla í gegn…..svo erða bar rólegheit í kveld með lilla bró held ég…en svo reyndar veit maður aldrei hvað gerist…En þá kveð ég bara í bili,efast um að ég nenni að leita uppi heit og sveitt internet kaffihús svona á milli kokteila….





síðasti dagur fyrir frí!!

28 05 2004

Já síðasta deginum er eytt í heilsuleysi.. maður á nú enga vorkunn skilið samt.. því heilsuleysið er áunnið.. Við Gurr og Jón Hannes skelltum okkur barasta á djammið í gær!! Kvöldið byrjaði nú rólega, en við Gurrý fórum ásamt eibs á burtfarartónleika Huldu vinkonu.. og vaaaaaá hún var æði, til hamingju Hulda mín. Við eibs vorum eiginlega bara steinhissa því við höfum aldrei heyrt hana syngja svona og hún er bara m svo hlýja og fallega rödd og svo frábæra túlkun.. við vorum semsagt stoltar vinkonur hennar í gær. Þar á eftir ákváðum við að skella okkur í öllara og enduðum semsagt á Jóni forseta í gay karaoke :) Algjör snilld. Mér leist nú illa á blikuna í fyrstu þar sem aðeins voru sirka sjö hræður á staðnum þegar við mættum og eitthvað sem leit út fyrir að vera algjörlega hræðilegt karaokekerfi, nettur midi-fæla-fílingur yfir því heheh.. en nei nei maður á víst ekki að dæma af útlitinu einu saman! Við svolgruðum bjór og fórum á kostum í söngnum, fáir þarna og höfðum þetta nánast út af fyrir okkur, amk framan af! Ákváðum líka bara að gefa bara skít í allt og taka lög sem við héldum að við gætum ekki sungið, ásamt gömlum slögurum hehehe.. höfðum mismunandi þema og allt eftir umferðum heheh.. t.d. væmið, rokk o.s.frv. Ég tók fullt af lögum, Diamonds are forever, Livin´ on a prayer, La Isla Bonita (það var óskalag frá hommapari sem sat á næsta borði og fannst ég æði hehe), Hopelessly devoted, Circle of Life og síðast en ekki síst She´s gone með Steel Heart hehehehe.. breytti því að sjálfsögðu í He´s gone :) Það var geðveikur fílingur að syngja það maður!! nottla ekki eins flott og ef karlmaður tekur þetta eeeeen who gives.. ég fer einhvern tímann aftur þangað, that´s for sure :) Fimmtudagar rúla á Jóni forseta :)

Heilsan í dag var eftir þessu.. var ekki sú hressasta hér í morgun og tveir á göngum RÚV spurðu “Lovísa, ert þú dáldið þreytt í dag??” hehehehe… svo ég er ekki að ýkja með slæmt ásigkomulag útlitslega séð hehehehe.. Svo átti ég tíma í klippingu og þá er hárið ýkt flott en annað í slæmu ástandi.. svo ég setti nú á mig maskara til að reyna að klóra í bakkann. Er ekki einu sinni m eyrnalokka í dag og þá er nú mikið sagt heheheh..

En já, svo er maður bara kominn í sumarfrí. Svo bloggið mun væntanlega liggja niðri í hálfan mánuð eða svo. Við verðum of uppteknar við sólböð og kokkteiladrykkju. Maður tekur nú forskot á sæluna og dettur ærlega í það um helgina (þó ekki í kvöld held ég úff púff), djammplön á lau og sun! :)

a bientot

Ykkar einlæg

Lovísa





27 05 2004

við erum komin með nýjan dagskrárlið hérna á síðuna og það er MYND DAGSINS! dammdammdamm! það er linkur hérna ykkur á hægrihönd. versogú.





Valkvíði

26 05 2004

ég er búin að gera nógu askoti mikið grín að þessum kvilla hennar lou en svo er ég alveg nákvæmlega eins að einu leiti. og það er í sambandi við hárið á mér. ég er aldrei ánægð með það og langar alltaf að breyta en get alveg ómögulega ákveðið mig hvernig og blih arrg urr ig hnuss. Ég stoppa sjalfa mig af þegar ég er fari að eiga erfitt með að velja um hárgreiðslur sem eru fyrir sítt hár. hefði haldið að ég ætti að geta útilokað þær amk. en nú hef ég 30 mín til að ákveða mig eða bara leggja þetta allt í hendur Nönnu klippimeistara.

SPÁnÍÁ!!!!! bara vika!! sól, kokteikar og sól og svo kokteilar og svo bjór á milli…..aaahhhh…..





bridget undirbýr beni

26 05 2004

jæja gott fólk, nú er aðeins vika þangað til bloggstelpurnar ykkar halda á vit sumarins á Spáníá.. og tilhlökkunin eftir því. Þetta er svona að síast inn, svei mér þá.

Ég tapaði mér aðeins í Smáralind um daginn.. keypti mér bikini þótt ég haldi enn í vonina að átvaglið á nýbýlaveginum gubbi mínu svarta upp.. tvennar stuttbuxur og tvo boli.. úff púff.. nettur sammari í gangi.. en hei, ég átti engar stuttbuxur! maður getur ekkert BARA verið í pilsi!!

svo eru svona komplexarnir að síast inn með.. akkuru drattaðist maður ekki í gymmið? ég bara spyr? letin að drepa mann :) jæja, komplexarnir hverfa um leið og maður mætir út..

fór og hitti Sykurpabbann í gær, við grömsuðum í geymslunni okkar og undruðumst alla kassana. Hvað er eiginlega í þessum kössum eiginlega?? Ég náði í fullt af gömlum fötum í einum kassanum, fullt fyrir beni og fullt sem ég passa í núna sem ég passaði ekki í þegar þetta fór oní kassann. gaman að því nottla. Fórum svo og fengum okkur 250kr bjórinn á Prikinu. Amminamm. Svo hitti maður alveg fólk sem maður kannast við og sá spurnarsvipinn í augunum.. alveg “hmmm ætli þau séu byrjuð saman aftur..?” heheheh.. en nei þetta var bara hið fínasta mál að tsjatta aðeins.. enda dramað í minimal magni í þessu breiköppi sem betur fer. Við höndlum þetta af skynsemi og látum ekki eins og börn.. húrra fyrir því.

ég gef Bridget Jones ekkert eftir í lúðalegum töktum. Átti þvílíkt lúðalegan sprett í gær og vildi helst eitt augnablik hverfa oní jörðina. Eeeeen maður reynir að sjá hlægilegu hliðina á þessu öllu saman. Hélt semsagt að ég væri m missed call frá ákveðnum aðila og hringdi tilbaka í manneskjuna, þó í annað númer.. en nei, svo komst ég að því mjög fljótlega eftir að ég lagði á að það var lífeyrissparnaður landsbankans sem var að reyna að ná í mig. Númerin semsagt eiginlega ALVEG EINS HAHAHAHHAHAHAH… svaraði m.a.s. aumingja Landsbankakonunni alveg “HÆ” þegar hún hringdi aftur.. heheheh.. jæja enginn voðalegur skaði skeður svosum heheheh.. þar fór the inner poised Icequeen í vaskinn hahahahhah





O.C. dauðans!

25 05 2004

alveg merkilegt hvað ég get pirrast eeeeendalaust yfir þessum þætti!! en samt nottla horfi ég, ég held að ég laðist að þessum þætti bæði út af því að mér finnst ég náttúrulega vera svo skýr og full of common sense þegar ég bauna á þau kommentum og svo er náttúrulega líka svosum alltaf “gaman” að horfa á fallegt fólk í Barbí-veröld….en samt hvað er málið með að vera með stríðsmálningu þegar maður er að fara að sofa!?!?!?! hefur þetta fólk aldrei heyrt um svona cleansing cloths!…reyndar er þetta alveg í samræmi við allt þanna, aldrei tekur barbie af sér andlitið…SVo er aðal gellan þarna náttúrulega smánarblettur á women´s good name! það er alveg greinilegt að öll hennar örka fer í að vera bjútí svo það er gersamlega vinstrekkingur í gegn. Þetta er svona kærasta dauðans, fattar ALDREI akkuru gaurinn er súr og blihhh…. æji, ok genug. Ég er hætt að horfa áetta…..nei ok, það er kannski full langt gengið, e-u verð ég að hneixlast á….

Note to self: muna að blogga ekki þegar ég hef ekkert að segja.





róleg helgi

24 05 2004

var of þæg um helgina. Alltof alltof þæg. Þetta gengur nottla ekki. Var bara eiginlega alveg búin eftir rúvó og júró og líkaminn sagði bara stopp ekki meir.. var m díbblað neb og leiðindi. Fór á Troy.. varð fyrir þónokkrum vonbrigðum.. Akkiles var bara annoying og Orlando Bloom bara vælukjói.. en ok Brad Pitt er bara með hrikalega fallegan líkama.. og myndin virðist oft ganga út á að sýna það.. je je we got it hann er ógeðslega fallegur svona nakinn, skítugur, blóðugur og olíuborinn og með myndavélina rétt fyrir ofan það allra heilagasta. (ágætis tilbreyting samt frá hálfberum konum sem tröllríða öllu) En vá, Eric Bana valtaði nú samt yfir hann í kynþokka í þessari mynd. Enda karakterinn sniðinn að konum; í leðurpilsi, mátulega loðinn, dökkur yfirlitum með massa skeggrót, hálfber og olíuborinn hálfa myndina svo vöðvarnir eru vel sýnilegir, hugrakkur stríðsmaður sem inná milli knúsar litla sæta krakkann sinn og leggur allt í sölurnar fyrir fjölskyldu sína.. what more could a woman want? :) myndin sjálf hálfgert prump að mínu mati.. hlakka til að sjá Potter!!! vei vei vei vei..

hékk svo með vinkonunum alla helgina, var hjá eibs að passa grislingana á laugardagskvöldið og fór sunnudagurinn í sundferð með Beni-genginu (mínus eibs reyndar) og restin með Hörpu vinkonu á Stælnum, Austurvelli, Café Borg, á rúntinum.. en Harpa er algjör Palle Pedersen þessa dagana!! :) Við eigum einmitt 20 ára vinkonuammli í ár og stefnan er sett á að halda ærlega uppá það næstu helgi. Maður þarf að bæta fyrir þessa góðu hegðun með smá óþekkt næstu helgi.

En það er bara of stutt í Beni. Á eftir að gera hrúgu. Kaupa nýtt bikini (einhver borðar fötin mín heima, ég sver það, þau bara hverfa), fara í klippingu, kaupa ferðatösku, ganga frá ýmsum praktískum málum s.s. tryggingum, íbúðamálum ofl., fara í fatakassann á Klapparstíg, vinna mikið þessa vikuna, sækja um í Háskólann.. gaaaaa!!





Maður á svo bágt!!

24 05 2004

ég hnerra hérna eins og mér sé borgað fyrir það, og ég get vottað það að maður fær EKKI fullnægingu á því að hnerra 7 sinnum í röð! annars væri ég miklu glaðari yfir ástandinu belíf jú mí!

Svo er líka bara svo gott veður að ég væri miklu frekar til í að vera í pikknikk e-s staðar eða í sundi og fá svo eina með -öllu á eftir eeeeða bara úti að hljóla. Allt annað en hér eila. En ég hef svona á tilfinningunni að e´g leggjist beint undir teppi með spólu eftir vinnu…..djöööö…

…..en helgarreport….

föstudagurinn var mjööög rólegur og góður, ákvað að gera svona eins og ekkert þar sem ég var að syngja í brullupi á laugardaginn. þannig að það var bara bað, rauðvín og davinci code…mmmm..hún er svoooo góð að ég gat ekki hætt, mætti næstum því og seint í brullupið og alles…ussussuss…en brúðkaup eru alltaf voða falleg og allt það, nema hvað að ég lennti í alveg furðulegustu söngreynslu ever í þessu!! í 1. sálminum þá snerist maginn á hvolf og allt vildi út, og ég var að berjast við þetta allan sálminn! en mér tókst að syngja og halda öllu niðri og geri aðrir betur! en svo var veislan nottla snilli ein og við gústa systir slógum í gegn á dansgólfinu. maður er ekkert lítið fótafimur.

Svo var nýja bene bikiníið testað í sundi í gær…bara rúm vika í departure!!!WEEE!! þá er bara að drekka sig nógu fulla þannig að mér sé alveg sama ef flugvélin hrapar eða á ég fái bara Jón Hannes til að búa til e-a fína tæknilega flugmanna skýringu á því akkuru flugvélar sem fljúga til alicante geti einfaldlega ekki hrapað!

æji ok, alveg komið nóg í bili….

nei eitt enn TIL LUKKU STÓRA SYSTIR OG CO MEÐ NÝJA HÚSIÐ!!!





Þriðji í rúvó

21 05 2004

Þriðja sæti!! weeheee!!!! go við..og svo unnum við líka fyrir bestu sviðsframkomu….það eru komnar inn nokkrarmyndir hér …búningarnir voru bril! við vorum 3 í e-m abba samfestingum og öll með kollur og bara verrí bjútífúl. Reyndar var minn galli alveg gegnsær, þannig að ég opinberaði mitt nærfatasett fyrir alþjóð, sem blessuðum perrunum sem vinna með mér fannst ekkert verra:)…en sjón er sögu ríkari, og það koma inn fleiri myndir seinna.

En aðal mál á dagskrá er að núna er lou eina sem á eftir að uppfylla kröfurnar fyrir benidorm! GO ME!:) híhí…en ekki orð meira um það.

En djöfull var gott að eiga frí í gær! þetta var hinn fullkomni leti dagur (fyrir utan að ég þurfti að vinna í smá stund)…bestu beyglurnar á Bagle company, viddeo, grill og bara legið uppí rúmmi þess á milli….aaaaahhhh….





RÚVÓVISJÓN

21 05 2004

Veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja… svo margt að segja, so little time..

Að mér hafi tekist að vakna í morgun er kraftaverk. Er helaum í öllum líkamanum eftir miðvikudaginn – Rúvódaginn. Kom heim á miðnætti í gærkvöldi eftir að hafa farið í vinnuna á miðvikudagsmorgni. Algjörlega búin á því. En vá hvað það er aaaaalveg þess virði. Það var svo ÓGEÐSLEGA GAAAAAAAAMAN!!! :) :):) Ekki skemmdi svo að fara með sigur af hólmi!!! :) vei vei vei.. ég semsagt náði að “verja” rúvóvisjón titilinn í atriði með Baldvini, Eitt lag enn er sigurlag Rúvóvisjón 2004 :)

Var semsagt að skreyta allan daginn fyrir keppnina.. við Gurrý blésum upp svona 150 helíumblöðrur.. og alveg búnar að komast að því að gott dose af helíum plús slatti bjór er skemmtileg blanda :) Vorum alveg að kafna úr hlátri yfir þeim klassíska brandara að anda að sér og tala, og svo sungum við Vem kan segla í röddum með helíumröddinni, það var alveg sjúklega fyndið.

Fengum svo smink um kvöldið hjá þessum elskum sminkunum (yndislegt fólk þessar sminkur) og ég fékk síðan hártopp, þ.e.a.s. hárlengingu.. og það var svo EÐLILEGT að það eiginlega ekki nokkur leið að sjá hvað var mitt hár og hvað var kollan. Gaman að prófa að vera með þvílíkt sítt hár! Sokkabuxurnar sem ég hafði keypt voru ekki eins svartar og ég hafði vonað svo það skein smá í rassinn á mér hahahaha.. en jæja, þetta er búið og gert, þýðir ekki að væla yfir því hahaha.. allavega, búningarnir slógu vægast sagt í gegn og við unnum búningaverðlaunin..:) Ekki við öðru að búast þegar maður kemur fram á latex sundbol fyrir framan alla vinnufélagana!! :)

Gurr og co. af fréttastofunni slógu í gegn með sínu atriði, þau voru æðisleg í hrikalega hallærislegum búningum hahahahahah.. frábær sviðsframkoma hahahah..

Logi var ekkert að hafa eitthvað pleibakk lélegheit í sínu atriði, hann tók semsagt Eurovísu með Botnleðju.. MEÐ BOTNLEÐJU MEÐ SÉR Á SVIÐINU :) Live flutningur. Það var nú meiri snilldin.

Dómnefnd var skipuð valinkunnu fólki. Eyjólfur Kristjánsson, Sverrir Stormsker, Sigrún Ósk í Atinu og Björn Þór á Fréttablaðinu, en þau tvö bæði fyrrv Rúvarar. Svo var Birgitta Haukdal og Vignir í salnum, svo það var nóg af skemmtiatriðum í hléi. Logi og Eyfi tóku Nínu, Logi stóð sig bara eins og hetja sem Stebbi hahahahaha.. og svo Sókrates og Open your heart :) Þar sem yours truly söng bakraddir (og söng sko bakröddina í alvörunni og frekar fúl yfir hvað það heyrðist lágt í míkrafóninum hahahahha) ásamt Sunnu og Evu sem tóku Ruslönu svo glæsilega fyrr um kvöldið. Jájá maður er frægur, að syngja með Eurovision faranum hahahah..

Svo var bjórinn bara svolgraður. Það var alveg óendanlegt magn af honum og það var tjúttað í húsinu til hálfþrjú og BARA Eurovision lög spiluð.. það var nú ekkert ógurlegt úrval af diskum svo það voru sömu lögin aftur og aftur.. en það var bara ýkt stuð og enginn virtist láta það neitt skemma, eiginlega bara þvert á móti hahahhaha.. Þá var haldið í bæinn. Ég fór með gasblöðrubúnt með mér í bæinn, átti að vera gjöf.. en þegar blöðrurnar komust loksins til viðtakanda var nú bara ein eftir hahahahha.. hinar svona plokkuðust af á Vegamótum og Ölstofunni og á röltinu í bænum :)

Svo er ýkt fyndið.. það vita svo fáir hér að við Baldvin þekktust áður en við byrjuðum að vinna hér, vorum saman í leikfélaginu í MR og svona.. nema allir halda að við séum bara PAR hahahha því við nottla erum svo voða kammó við hvort annað.. við vorum víst vooooðalega sæt sem Sigga og Grétar og fólk alveg heldur að það sé bara hjónaband á leiðinni hahhhhaha.. þegar við tókum við verðlaununum var alveg “já þau vinna líka PAR KVÖLDSINS” og svo fengum við út að borða fyrir tvo á Sjanghæ og þá var sagt “já þið verðið að fara SAMAN” og við alveg já auðvitað hahahaha.. svo tókum við góðan vangadans seinna um kvöldið bara til að stríða híhíhí.. en já, atriðið okkar gekk semsagt bara vel, þrotlausar dansæfingar skiluðu sér.. nema hvað að við gleymdum að gera ráð fyrir því að míkrófónar hafa snúrur!! svo að við flæktum okkur aðeins í þeim hahahah.. svo stórslasaði ég mig næstum því.. en við gleymdum semsagt líka að gera ráð fyrir að sviðið er ekki endalaust stórt.. og ég bakkaði útaf því.. datt næstum á hausinn en náði að redda því og halda áfram að syngja.. fólk var mjög hrifið af þessari reddingu hahaha.. átti vel við textann á því mómenti “..VERÐ HÆTTULEG” hahhaha..

jæja við dælum inn myndum þegar þetta berst okkur í hendur.. eitthvað komið núna, svo verður þetta alveg alvöru eftir helgi :)

nú þarf að gera eitthvað í málunum. Ég er sú eina sem hefur ekki gert verkefnið fyrir Beni. Er ekki alveg sátt við það. Hef ekki verið þekkt fyrir að láta mitt eftir liggja. Koma sooohhh!!