kornflekskökur…grrrr…

15 04 2004

ég er ein af þeim manneskjum sem kýs að lifa mín lífi svolítið eftir sjörnuspám, og þá sérstaklega þeirri í mogganum. Sko þegar vel er að gáð segja þessar spár manni allt sem maður þarf að gera yfir daginn og bara í lífinu. Hun segir manni í hvernig skapi maður á að vera, hvort að maður sé hamingjusamur, hvort að maður sé að fara að hitta tilvonandi maka og svo framvegis. Alltaf gott að fá svona heads upp í byrjun dags svo að maður geti klætt sig í samræmi við það em koma skal. Til dæmis í gær átti ég að hafa mikil áhrif í vinnunni og leika við börnin. Ég á nú ekki börn en þá bara leikur maður við annarra manna börn. Svo í dag átti að vera góður dagur fyrir mig að kaupa hreinlætis-og snyrtivörur!!!! þá nottla fer mar og kaupir sér krem….. WHAT!?!?!??!!? ég væri til í að fá vinnu við að skrifa þetta bull…

En jújú nún eibiebeibie varð stór í gær. nennti ekki að blogga í gær þannig að hér kemur síðbúin opinber kveðja til stelpuskjátunnar!! kusskusskusskusskuss! Þetta er nottla aðallega skemmtilegur viðburður því að ég fékk kornflekskökur. þær þykja mér ekki vondar. Arnbjörg ætti að eiga ammæli oftar á ári.

jæja, vinna. svo verð ég að far með heilsu möntruna mína í allan dag: ekkidjammaumhelgina-ekkidjammaumhelgina-ekkidjammaumhelgina…..


Actions

Information

2 responses

22 12 2009
Snorri Sturluson (Gunnar Dofri Ólafsson, skáld) [Hið fyrrnefnda er skáldnefni mitt, þetta er míns list, að skella kommentum án sýnilegs tilgangs á slembistaði í netheimum]

Einn ég ráfa um Norðurland
fara kindur á beit
lolli í sig skeit
ekki hella, ekki meiða

—-eigi
skal meiða.

22 12 2009
Snorri Sturluson (Gunnar Dofri Ólafsson, skáld) [Hið fyrrnefnda er skáldnefni mitt, þetta er míns list, að skella kommentum án sýnilegs tilgangs á slembistaði í netheimum]

Ljáið mér nánar eyra eða heldur eyru, þau eru víst tvö á kolli okkar, til þess að útskýra mig, ef mig skyldi kalla. Ef segja ætti mína sögu þá væri hún kannski oggupons eins og dugga á rjóðri. Það veit að þar er ekki til, en það er samt til og mun einn daginn detta af rjóðrinum.

HAHAHAHA!

Þið hljótið að sjá! Við erum öll komin af öpum, en ég af apaketti.

Það er nú allt sama tóbakið, og af sömu plöntunni erum við öll.

Skrá ummæli